Ferill 630. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1086 — 630. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um skógrækt og landgræðslu.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvernig hefur verið brugðist við þingsályktun um eflingu skógræktar sem atvinnuvegar og sameiningu stjórnsýslueininga á sviði skógræktar og landgræðslu, nr. 39/143?
2. Álítur ráðherra heppilegt að sameina Skógrækt ríkisins, Landgræðslu ríkisins og landshlutaverkefni í skógrækt í eina stjórnsýslueiningu? Ef svo er óskast rökstuðningur fyrir því áliti.
3. Hefur verið lagt mat á það hvort unnt sé og æskilegt að samþætta markmið um landgræðslu og skógrækt sem atvinnugrein?
4. Fer endurskoðun laga um landgræðslu, sbr. svar ráðherra í 496. máli, fram samkvæmt markmiðum um samræmingu laga um skógrækt og laga um landgræðslu?
5. Hafa verið sett magn- og tímabundin markmið um eflingu skógræktar og landgræðslu í samræmi við kafla í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 22. maí 2013 þar sem talið er brýnt að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda „með því að draga úr beinni losun af mannavöldum og með því að stórauka landgræðslu, skógrækt og aðra eflingu gróðurlenda“? Ef svo er, í hverju felast markmiðin? Hafi engin markmið verið sett, hvenær og hvernig hyggst þá ráðherra uppfylla fyrrgreind markmið stefnuyfirlýsingarinnar?
Skriflegt svar óskast.