Ferill 635. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1093 — 635. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um starfsmannamál EFTA.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
1. Hversu margir starfsmenn EFTA eru frá hverri aðildarþjóð?
2. Hver ákveður, og greiðir, laun þeirra?
3. Hefur EFTA jafnréttisstefnu varðandi mannahald?
4. Hvernig er kynjaskipting meðal:
a. æðstu stjórnenda,
b. millistjórnenda og
c. annarra starfsmanna?
Skriflegt svar óskast.