Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1109  —  30. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða).

(Eftir 2. umræðu, 24. mars.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 36. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „skulu hafa skráð kaup- og sölugengi á skipulegum markaði“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: skulu hafa verið tekin til viðskipta á skipulegum markaði.
     b.      Í stað orðsins „markaðurinn“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: skipulegur markaður.
     c.      Á eftir 1. málsl. 3. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Að því viðbættu er heimilt að fjárfesta fyrir allt að 5% af hreinni eign sjóðsins í verðbréfum sem falla undir 1., 2., 5., 6., 8. og 9. tölul. 1. mgr. og verslað er með á markaðstorgi fjármálagerninga (MTF). Með markaðstorgi fjármálagerninga (MTF) er átt við markaðstorg fjármálagerninga samkvæmt skilgreiningu laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, með síðari breytingum, sem rekið er á grundvelli leyfis frá Fjármálaeftirlitinu.

2. gr.

    Við a-lið 1. mgr. 36. gr. a laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Að því viðbættu er heimilt að fjárfesta fyrir allt að 5% af hreinni eign sjóðsins í verðbréfum sem verslað er með á markaðstorgi fjármálagerninga (MTF).

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.