Ferill 649. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1115  —  649. mál.




Fyrirspurn



til umhverfis- og auðlindaráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda.

Frá Sigríði Á. Andersen.


    Hvernig skiptist losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi á eftirfarandi geira á árinu 2012, eða síðar ef nýrri upplýsingar liggja fyrir, að teknu tilliti til nýjasta mats á losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi miðað við losunarstuðla í nýjum leiðbeiningum IPCC, sbr. svar ráðherra í 317. máli:
     a.      rafmagn og hita,
     b.      umferð fólksbíla,
     c.      aðrar samgöngur en með fólksbílum,
     d.      sjávarútveg,
     e.      iðnað/efnanotkun,
     f.      landbúnað,
     g.      úrgang,
     h.      framræst land,
     i.      aðra geira, ef um þá er að ræða?
    Spurt er um magnlosun (tonn CO 2-ígildi) og hlutfallslega (%) losun gróðurhúsalofttegunda.


Skriflegt svar óskast.