Ferill 653. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1119  —  653. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um niðurfellingu gjalda á vistvænt eldsneyti sem er framleitt innan lands.


Flm.: Katrín Júlíusdóttir, Árni Páll Árnason, Össur Skarphéðinsson,
Oddný G. Harðardóttir, Guðbjartur Hannesson.


    Alþingi ályktar fela ríkistjórninni að semja frumvarp með nauðsynlegum breytingum á lögum sem tryggi að vistvænt eldsneyti, sem framleitt er hér á landi fram til ársins 2020, verði undanþegið öllum opinberum gjöldum og sköttum að virðisaukaskatti undanskildum, og að nýjar rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar, sem fluttar eru til landsins eða keyptar eru hér á landi til ársins 2020, verði undanþegnar opinberum gjöldum og sköttum, að virðisaukaskatti undanskildum að hluta, eða þar til 10% bílaflotans nýta vistvæna orkugjafa að öllu eða mestu leyti.

Greinargerð.

    Samkvæmt nýútkominni skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC) er ástand loftslagsmála enn alvarlegra en áður hefur verið talið. Það sem áður var sterk vísbending er nú fullvissa um að styrkur koltvísýrings (CO 2) í lofthjúpi jarðar hefur ekki verið eins mikill í 800 þúsund ár. Líkön vísindamannanna spá fyrir um hrikalegar afleiðingar hlýnunar á lífsskilyrði mannkyns á þessari öld. Þjóðir heims verða samkvæmt skýrslunni að grípa til aðgerða sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
    Við Íslendingar getum og eigum að taka stór skref í að minnka losun loftslagsbreytandi efna á komandi árum og þar gegna aðgerðir í orkunýtingu samgöngutækja einu lykilhlutverkinu. Þessi aðgerð sem hér er lögð til er því mikilvægt skref í að búa til hvata til orkuskipta í samgöngum hér á landi.
    Tillaga um niðurfellingu gjalda á vistvænt eldsneyti sem er framleitt innan lands var lögð fram á 140. löggjafarþingi (637. mál) og 141. löggjafarþingi (56. mál) af Magnúsi Orra Schram o.fl. Hún var síðan lögð fram að nýju á 143. löggjafarþingi (503. mál). Tillagan er nú lögð fram að enn á ný með þeirri breytingu að einnig er gert ráð fyrir að vistvæn ökutæki verði undanþegin öllum opinberum gjöldum og sköttum að virðisaukskatti undanskildum, þó verði áfram gert ráð fyrir afslætti af virðisaukaskatti eins og mælt er fyrir um í bráðbirgðaákvæði í lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
    Hinn 3. febrúar 2012 mælti þáverandi iðnaðarráðherra, fyrsti flutningsmaður tillögunnar, fyrir skýrslu Grænu orkunnar, verkefnastjórnar um orkuskipti í samgöngum (377. mál á 143. löggjafarþingi). Mikilvægt er að hefja vinnu við þá aðgerðaáætlun sem þar var lögð fram og er þingsályktunartillaga þessi hluti af þeirri áætlun. Ísland er skuldbundið markmiðinu um 10% hlut endurnýjanlegrar orku í samgöngum árið 2020 með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/28/EB um aukinn hlut endurnýjanlegra orkugjafa. Árið 2012 uppfyllti 0,9% samgöngutækja skilyrði tilskipunarinnar, því er skammur tími til stefnu til að gera nauðsynlega bragarbót. Ljóst er að það þarf að vera með allar klær úti til að ná settu marki í tæka tíð þar sem tæknin er dýr, skortur er á innviðum fyrir nýja orkugjafa, endurnýjun bílaflotans er enn hæg og óvissa er um hvaða tækni verði ráðandi í framtíðinni.
    Liður í því að ryðja hindrunum úr vegi er að tryggja starfsumhverfi þeirra sem vinna nú að framleiðslu og þróun innlendra vistvænna orkugjafa. Mikilvægt er að hægt sé að treysta á stöðugt skattaumhverfi til lengri tíma þegar kemur að því að binda fjármagn í fjárfrekum sprotaverkefnum nýorkugeirans. Nú þegar hefur það áhrif t.d. á aðila sem eru að hugsa um að fjárfesta í metanbílum að margir búast við að metan hækki í verði vegna þess að ríkisvaldið hljóti að setja álögur á slíkt eldsneyti. Þingsályktun sú sem hér er lögð til tæki af allan vafa og styddi við fyrirhugaðar fjárfestingar í framleiðslu og dreifingu á t.d. metani.
    Með þingsályktun þessari væri tekin stefnumótandi ákvörðun um að innlent vistvænt eldsneyti muni ekki bera önnur opinber gjöld en virðisaukaskatt til ársins 2020 eða þar til 10% bílaflotans nýta vistvæna orkugjafa að öllu eða mestu leyti. Alþingi samþykkti þingsályktun um eflingu græna hagkerfisins á Íslandi (7. mál á 140. löggjafarþingi). Þar var ályktað að endurnýjanleg orka til samgangna yrði ekki skattlögð fyrr en hlutdeild hennar væri orðin 20% af heildarorkunotkun í samgöngum. Tillaga þessi miðast hins vegar við ártalið 2020, eða þegar 10% bílaflotans nýta vistvæna orkugjafa að öllu eða mestu leyti. Nefndinni um Grænu orkuna var ætlað að samræma markmið og stefnu Íslands við alþjóðastofnanir samkvæmt erindisbréfi. Þá væri þessi tillaga í samræmi við markmið tilskipunar 2009/28/EB. Það skýtur skökku við ef skattalegir hvatar eru ekki í takti við önnur markmið stjórnvalda. Samhliða þessu telja flutningsmenn mikilvægt að tekin séu af öll tvímæli um að vistvæn ökutæki verði undanþegin opinberum gjöldum og sköttum. Til skamms tíma hefur verið til staðar tímabundin undanþáguheimild frá virðisaukaskatti fyrir vistvæn ökutæki. Með lögum nr. 69/2012, um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, var bætt við bráðabirgðaákvæði. Í 2. mgr. ákvæðisins er lagt til að séu skilyrði ákvæðisins uppfyllt skuli tollstjóra, við útreikning og álagningu virðisaukaskatts af innflutningi, vera heimilt við tollafgreiðslu að lækka tollverð nýrrar rafmagns- eða vetnisbifreiðar að hámarki um 6.000.000 kr. og tengiltvinnbifreiðar að hámarki um 4.000.000 kr. fyrir útreikning virðisaukaskatts. Undanþáguheimild bráðabirgðaákvæðisins hefur verið framlengd, síðast með lögum nr. 125/2014.
    Með því að vistvæn ökutæki yrðu undanþegin opinberum gjöldum og sköttum til ársins 2020 væri eytt óvissu sem hefur ríkt þar sem núgildandi undanþágur hafa verið endurnýjaðar á ársgrundvelli. Verði þeirri óvissu eytt mun sú ráðstöfun verða til þess að ýta undir fjárfestingar í vistvænum ökutækjum sem mun flýta endurnýjun bílaflotans og stuðla að þeim markmiðum tillögunnar að 10% bílaflota landsins muni nýta vistvæna orkugjafa.
    Þær eldsneytistegundir sem nú þegar eru framleiddar innan lands fyrir bíla eru lífdísilolía, rafmagn, vetni, metanól og metan. Einnig ber að nefna að ammoníak og etanól væri hugsanlega hægt að framleiða í framtíðinni sem eldsneyti, þó að hið fyrrnefnda sé harla ólíklegt.

Rafmagn.
    Raforkukerfi landsins er nokkuð vel búið varðandi hleðslu rafbíla (rafgeyma eða tengiltvinnbíla) enda gert ráð fyrir að langstærsti hluti hleðslu fari fram í heimahúsum eða á vinnustað (+90%). Áætluð notkun vegna rafknúinna ökutækja er einungis lítið hlutfall af heildarraforkunotkun á landinu öllu og mun því ekki auka svo mjög á álag raforkuflutningskerfisins. Orka náttúrunnar (ON) hefur opnað átta hraðhleðslustöðvar, fimm á höfuðborgarsvæðinu og þrjár á landsbyggðinni. Þá vinna BL og Nissan í Evrópu að opnun tíu hraðhleðslustöðva til viðbótar á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum. Eigi að síður er líklegt að á einhverjum stöðum þurfi að styrkja dreifikerfi rafmagns þar sem notkun vegna hleðslu rafbíla er mikil, svo sem á heimilum, tengt vinnustöðum eða við hraðhleðslustaði. Jafnframt þarf að skoða sveigjanlegar lausnir varðandi hleðslumöguleika sem koma í veg fyrir yfirlestun á dreifikerfin og draga þannig úr kostnaði vegna styrkingar á þeim kerfum.
    Þónokkur kostnaður hlýst af uppbyggingu hraðhleðslustaura, vegna fjárfestinga í staurunum sjálfum en einnig vegna styrkingar á dreifikerfi tengdu þeim. Því er mikilvægt að efla samstarf opinberra aðila, sérstaklega sveitarfélaga, hálfopinberra aðila (orkufyrirtækjanna) og fyrirtækja sem huga að uppbyggingu á hraðhleðslu.

Vetni.
    Á undanförnum árum hefur byggst upp mikil þekking í landinu tengd vetnisrannsóknum. Framleiðsla vetnisknúinna bíla er takmörkuð enn sem komið er en stærstu bílaframleiðendur hafa lýst því yfir að fjöldaframleiðsla slíkra bíla ætti að geta hafist eigi síðar en 2015. Jafnframt gera þeir flestir ráð fyrir að vetnisknúnir bílar verði mjög áberandi í framtíðinni.
Tvær vetnisstöðvar hafa verið starfandi hér á landi, önnur við Vesturlandsveg en hin við Ægisgarð við Reykjavíkurhöfn. Með tvær vetnisstöðvar hér á landi er ljóst að erfitt verður að innleiða tæknina. Nú þegar hafa allmörg ríki ákveðið að styrkja verulega uppbyggingu vetnisstöðva, t.d. Þýskaland, Kórea, Noregur og Japan svo að einhver dæmi séu nefnd. Þjóðverjar telja að stærsti hluti visthæfra bíla í umferð þar í landi eftir 2025 verði vetnisrafbílar. Vetnisrafbílar á Íslandi munu því eiga erfitt uppdráttar ef nýir innviðir verða ekki byggðir upp. Vandamál við innleiðingu vetnisbíla eru því af sama toga og hvað varðar flestar aðrar tegundir vistvæns eldsneytis, þ.e. að styrkja verður uppbyggingu innviða.

Metan.
    Metandreifing er takmörkuð við þrjá staði á höfuðborgarsvæðinu, á Bíldshöfða, í Mjóddinni og í Álfheimum. Þá vinnur Olís að opnun metanstöðvar á Akureyri. Dreifing metans er dýr og á það bæði við um flutning á sölustað og dælubúnað. Dreifing með gasleiðslum virðist þó vera hagkvæmasti kosturinn en fjárfesting í upphafi er mikil, auk þess sem það tekur tíma að byggja upp nægilegan markað sem standi undir uppbyggingunni.
    Mikilvægt er að styðja við uppbyggingu á dreifikerfi fyrir metan en taka verður tillit til takmarkana sem eru á framleiðslu metans. Mikilvægast er að byggja upp dreifikerfin sem næst framleiðslueiningum. Samstarf metanframleiðenda við opinbera aðila er mikilvægt til að forðast offjárfestingar til lengri tíma litið en ljóst er að hægja mun verulega á innleiðingu metanbifreiða ef ekki verður fjárfest í nýjum innviðum.

Lífdísilolía.
    Meginkosturinn við lífdísil (etanól, metanól o.fl.) er að ekki þarf að byggja upp nýja innviði til dreifingar.
    Telja verður ólíklegt að forsvaranlegt verði að hefja mikla uppbyggingu á nýjum orkugjöfum ef ekki er hægt að sýna fram á að slík framleiðsla og framtíðarrekstur geti gengið á viðskiptalegum forsendum með eðlilegum endurgreiðslutíma fjárfestinga.

Metanól.
    Metanól er framleitt í verksmiðju CRI á Reykjanesi. Metanólið verður til við blöndun vetnis (sem framleitt er á staðnum) og CO 2 frá jarðhitavirkjuninni í Svartsengi. Metanólið er notað sem íblöndunarefni í bensín.
    Einnig er mögulegt að nýta metanól um borð í skipum, t.d. með Molten Carbonate efnarafölum eða öðrum leiðum. Möguleikar eru nokkrir, en a.m.k. er hægt að drýgja bensínbrennslu með metanóli til skemmri tíma.

Ammoníak.
    Mögulegt væri að framleiða ammoníak á svipaðan hátt og gert var í áburðarverksmiðjunni í Gufunesi. Nokkrar erlendar rannsóknir hafa verið gerðar á nýtingu á ammoníaki, t.d. í fyrrnefndum Molten Carbonate efnarafölum eða á annan hátt. Ólíklegt verður að teljast að ammoníak verði notað í bílum en skip kæmu til greina í framtíðinni. Áður þyrfti þó að verða nokkur tækniþróun í búnaði sem nýtir ammoníak.

Etanól.
    Etanól er nú þekkt eldsneyti víða erlendis, hreint eða blandað í bensín á bíla. Mögulegt er að framleiða etanól úr lífrænum leifum (þó að einnig væri hægt að gasgera þær í metan). Það er því ekki líklegt að slík framleiðsla yrði viðamikil á Íslandi. Nokkuð hefur þó verið framkvæmt af rannsóknum varðandi hugsanlega orkuplönturæktun á Íslandi (t.d. repju) og því ekki hægt að útiloka innlenda etanólframleiðslu í framtíðinni.

Að lokum.
    Ólíklegt verður að teljast að aðrar innlendar eldsneytistegundir geti komið á markað en ekki skal útiloka neitt. Í fyrrnefndri skýrslu um „Orkuskipti í samgöngum“ var einnig lögð á það áhersla að stofna fjárfestingarsjóð til að stuðla að uppbyggingu innviða. Mikilvægt er að lögð verði á það áhersla á næstu missirum að slíkum sjóði verði komið á laggirnar til að ýta enn frekar undir uppbyggingu innviða fyrir vistvænt eldsneyti. Með slíkum aðgerðum verður hægt að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum. Það er mikið hagsmunamál fyrir Ísland að auka notkun innlendra orkugjafa sem mun enn auka orkusjálfstæði þjóðarinnar og sýna að landið er fyrirmynd annarra þegar kemur að losun svokallaðra gróðurhúsalofttegunda.