Ferill 655. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1121  —  655. mál.




Fyrirspurn



til umhverfis- og auðlindaráðherra um samning Sameinuðu þjóðanna
um líffræðilega fjölbreytni.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


1.      Hvert er að mati ráðherra gildi samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni?
2.      Til hvaða ráðstafana verður gripið til að tryggja að ákvæðum samningsins verði fylgt eftir?