Ferill 463. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.

Þingskjal 1135  —  463. mál.
Meiri hluti.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi
vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar.

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur, Hinriku Söndru Ingimundardóttur og Margréti Kristínu Pálsdóttur frá innanríkisráðuneyti, Margréti Steinarsdóttur frá Mannréttindaskrifstofu Íslands og Einar Tryggvason frá ríkissaksóknara.
Umsagnir bárust frá Lögreglustjórafélagi Íslands, lögreglustjóranum á Suðurnesjum, Mannréttindaskrifstofu Íslands og ríkissaksóknara.
    Með frumvarpinu er gerð tillaga um heildarlöggjöf sem sameini lagaákvæði sem nú eru í lögum um handtöku og afhendingu manna milli Norðurlandanna vegna refsiverðra verknaða, nr. 12/2010, og ný lagaákvæði sem leiðir af skuldbindingum Íslands vegna samnings um málsmeðferð um afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs sem var undirritaður 28. júní 2006.
    Gestir voru almennt jákvæðir fyrir efni frumvarpsins og sömuleiðis umsagnir sem bárust. Meðal annars kom fram að það fyrirkomulag sem frumvarpið gerir ráð fyrir, sem byggist á gagnkvæmri viðurkenningu og trausti á réttarkerfum ríkjanna í stað hefðbundins framsalsfyrirkomulags, gæti stuðlað að árangursríkari baráttu gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi.
    Meiri hlutinn telur frumvarpið til þess fallið að bæta samstarf Íslands við önnur evrópsk ríki um meðferð sakamála. Í nefndinni var sérstaklega rætt um 5. gr. frumvarpsins sem mælir fyrir um að ákvæði laganna gildi einnig um afhendingu íslenskra ríkisborgara. Meiri hlutinn fellst á að æskilegt sé að Ísland taki með þessu móti fyllri þátt í samstarfi evrópskra réttarríkja um rannsókn og meðferð sakamála, enda eru í frumvarpinu ákvæði því til tryggingar að gætt sé réttaröryggis og mannréttinda við afhendingu sakamanna, sbr. t.d. 2. mgr. 9. gr. frumvarpsins þar sem segir að synja skuli um afhendingu manns samkvæmt evrópskri handtökuskipun ef hún er í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og þá samningsviðauka sem hafa lagagildi hér á landi.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Jóhanna María Sigmundsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 24. mars 2015.

Páll Valur Björnsson,
1. varaform.
Vilhjálmur Árnason,
frsm.
Líneik Anna Sævarsdóttir.
Ingibjörg Óðinsdóttir. Elsa Lára Arnardóttir. Guðbjartur Hannesson.
    Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.