Ferill 491. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1181  —  491. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Willum Þór Þórssyni
um störf og hlutverk fjölmiðlanefndar og endurskoðun laga um fjölmiðla.


    Við vinnslu svars við fyrirspurninni óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá fjölmiðlanefnd og eru svör ráðuneytisins að hluta til byggð á svörum nefndarinnar.

     1.      Hvers vegna taldi fjölmiðlanefnd ekki ástæðu til að kalla eftir upplýsingum frá 365 miðlum um breytingar á eignarhaldi um leið og breytingarnar lágu fyrir og hvers vegna snerist nefndinni síðar meir hugur og kallaði eftir upplýsingum?
    Fjölmiðlanefnd benti á að á vef nefndarinnar, www.fjolmidlanefnd.is, væru birtar upplýsingar um eignarhald allra fjölmiðla hér á landi. Frumkvæðisskylda hvíldi á fjölmiðlaveitu að tilkynna fjölmiðlanefnd um allar breytingar sem kynnu að verða á högum fjölmiðlaveitunnar, þar á meðal breytt eignarhald. Ef fjölmiðlaveita sinni ekki þessari tilkynningarskyldu kalli fjölmiðlanefnd eftir því að hún verði uppfyllt. Vinna við heildarendurskoðun skráningar upplýsinga um alla skráða fjölmiðla hér á landi hafi byrjað haustið 2014 og hafi upplýsingar um velflesta hérlenda fjölmiðla, þ.m.t. upplýsingar um eignarhald, nú verið uppfærðar, auk þesssem fjöldi nýrra fjölmiðla hafi verið skráður.
    Vegna þess sérstaka tilefnis sem fyrirspurnin lúti að taldi fjölmiðlanefnd rétt að upplýsa að allt frá því í ágúst 2014 hafi fjölmiðlanefnd verið í stöðugum samskiptum við forstjóra og lögmann 365 miðla, auk lögmanns verðbréfasjóðsins Virðingar, þar sem óskað hafi verið eftir upplýsingum um breytingar á yfirstjórn og eignarhaldi 365 miðla.
    Á árinu 2013 voru gerðar þær breytingar á lögum um fjölmiðla að skylt varð að veita fjölmiðlanefnd öll gögn og upplýsingar svo rekja mætti eignarhald og/eða yfirráð til einstaklinga, almennra félaga, opinberra aðila og/eða þeirra sem veittu þjónustu fyrir opinbera aðila og getur fjölmiðlanefnd hvenær sem er krafist þess að framangreindar upplýsingar verði veittar.
    Fjölmiðlanefnd benti á það í svörum sínum til ráðuneytisins að það teljist ekki stjórnvaldsákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, að fjölmiðlanefnd óski, eða óski ekki, eftir upplýsingum um eignarhald fjölmiðla. Sú heimild sé ávallt fyrir hendi. Fjölmiðlanefnd hafi því hvorki fyrr né síðar tekið stjórnvaldsákvörðun í máli er varðar eignarhald á 365 miðlum. Fjallað hafi verið um málið á 45. fundi fjölmiðlanefndar 24. nóvember 2014 og hafi það verið niðurstaðan eftir þann fund að ekki þyrfti að birta frekari eignarhaldsupplýsingar að svo stöddu. Ekki hafi verið fjallað frekar um málið á fundum fjölmiðlanefndar þegar samrunaferli 365 miðla og Tals lauk formlega 16. desember 2014.
    Hinn 16. desember 2014 hafi Samkeppniseftirlitið heimilað samruna 365 miðla ehf. og IP- fjarskipta með skilyrðum. Þá fyrst hafi fagfjárfestasjóðurinn Auður 1 orðið formlegur eigandi að 18,59% hlut í 365 miðlum. Beiðni fjölmiðlanefndar um ítarlegar upplýsingar varðandi eignarhald Auðar 1 hafi verið send lögmanni 365 miðla daginn eftir eða 17. desember 2014 og hafi verið ítrekuð bæði 5. og 12. janúar sl. þar sem uppgefnar upplýsingar hafi ekki þótt fullnægjandi.
    Hinn 22. janúar 2015 hafi fjölmiðlanefnd borist fullnægjandi upplýsingar um eigendur Auðar 1 og AC eignarhalds, sem og þá einstaklinga sem standa að baki áðurnefndum félögum. Upplýsingarnar hafi verið birtar á vef fjölmiðlanefndar samdægurs.

     2.      Hversu oft kallaði fjölmiðlanefnd árin 2011–2014 eftir upplýsingum og gögnum um starfsemi fjölmiðla og eftir hvaða upplýsingum var þá kallað?
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að nefndin hafi tekið saman yfirlit yfir mál þar sem fjölmiðlanefnd kallaði eftir upplýsingum og gögnum um starfsemi fjölmiðla á árunum 2011– 2014. Nefndin vakti athygli á því að málaskrá hafi verið komið á fót í byrjun árs 2012 og mál frá árinu 2011 eru því skráð undir ártalinu 2012. Einnig benti fjölmiðlanefnd á það að hvert mál fyrir sig geti innihaldið samskipti yfir langt tímabil en nánast ógerningur sé að tilgreina hvern einasta tölvupóst eða bréf sem sent hafi verið í tengslum við hvert mál. Nefndin vakti athygli á því að mál sem varða skammtímaleyfi til hljóð- og myndmiðla, þ.m.t. útvarpsleyfi til fram­halds- og grunnskóla og frístundamiðstöðva, séu hér undanskilin. Jafnframt sé eftirlit fjölmiðlanefndar með lögum nr. 62/2006, um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum, undanskilið í yfirlitinu en úttekt fjölmiðlanefndar á framkvæmd laganna hafi byrjað í upphafi árs 2012 og sé enn ólokið. Fjöldi erinda hafi verið send ábyrgðaraðilum til að nefndin gæti glöggvað sig á stöðu mála og séu ábyrgðaraðilar, samkvæmt skilgreiningu þeirra laga, ekki í öllum tilvikum fjölmiðlaveitur.

Upplýsingar og gögn sem fjölmiðlanefnd kallaði eftir
um starfsemi fjölmiðla 2011–2012.

Málaflokkur Fjöldi mála

Efni upplýsinga sem eftir var kallað

Kvartanir og ábendingar 6 Sjónarmið fjölmiðlaveitna vegna kvartana til fjölmiðlanefndar
Vernd barna skv. 28. gr. 6 Sjónarmið fjölmiðlaveitna vegna meintra brota á 28. gr. laga um fjölmiðla
Eignarhald og skráning 64 Upplýsingar sem liggja skráningu fjölmiðla til grundvallar, sbr. 14., 17. og 22. gr. laga um fjölmiðla
Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði 17 Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði, sbr. 24. gr. laga um fjölmiðla
Ársskýrslur 72 Upplýsingar vegna ársskýrslugerðar, sbr. 23. gr. laga um fjölmiðla
Almenn leyfi til hljóð- og myndmiðlunar 50 Upplýsingar vegna leyfisumsóknar, sbr. 17. gr. laga um fjölmiðla
Önnur mál 4 Upplýsingar vegna 15. gr. laga um fjölmiðla um erlent endurvarp
Sjónarmið vegna meintra brota á 29. gr. um tal og texta á íslensku
Fjöldi mála samtals 219



Upplýsingar og gögn sem fjölmiðlanefnd kallaði eftir um starfsemi fjölmiðla 2013.

Málaflokkur
Fjöldi mála

Efni upplýsinga sem eftir var kallað

Kvartanir og ábendingar
3 Sjónarmið fjölmiðlaveitna vegna kvartana til fjölmiðlanefndar
Vernd barna skv. 28. gr. 4 Hvernig vernd barna skv. 28. gr. er tryggð við myndmiðlun eftir pöntun. Sjónarmið vegna meints brots á 28. gr. laga um fjölmiðla
Eignarhald og skráning 6 Upplýsingar sem liggja skráningu fjölmiðla til grundvallar, sbr. 14., 17. og 22. gr. laga um fjölmiðla
Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði 29 Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði, sbr. 24. gr. laga um fjölmiðla
Ársskýrslur 74 Upplýsingar vegna ársskýrslugerðar, sbr. 23. gr. laga um fjölmiðla
Almenn leyfi til hljóð- og myndmiðlunar 12 Upplýsingar vegna leyfisumsóknar, sbr. 17. gr. laga um fjölmiðla
Önnur mál 10 Beiðni um lista yfir fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu
Sjónarmið vegna meintra brota á 5. mgr. 41. gr. um auglýsingar í barnadagskrá
Sjónarmið vegna 6. mgr. 45. gr. um aðgang að myndskeiðum frá viðburðum sem vekja áhuga almennings
Sjónarmið vegna meints brots á 19. gr. um tekjuöflun
Sjónarmið vegna meintra brota á 29. gr. um tal og textun á íslensku
Upplýsingar vegna 15. gr. um erlent endurvarp
Fjöldi mála samtals 138
    

Upplýsingar og gögn sem fjölmiðlanefnd kallaði eftir
um starfsemi fjölmiðla 2014 og janúar 2015.

Málaflokkur Fjöldi mála Efni upplýsinga sem eftir var kallað
Kvartanir og ábendingar 4 Sjónarmið fjölmiðlaveitna vegna kvartana til fjölmiðlanefndar
Vernd barna skv. 28. gr. 3 Sjónarmið fjölmiðlaveitna vegna meintra brota á 28. gr. laga um fjölmiðla
Eignarhald og skráning fjölmiðla 93 Upplýsingar sem liggja skráningu fjölmiðla til grundvallar, sbr. 14., 17. og 22. gr. laga um fjölmiðla. Einnig óskað eftir reglum um ritstjórnarlegt sjálfstæði, sbr. 24. gr.
Almenn leyfi til hljóð- og myndmiðlunar 41 Upplýsingar vegna leyfisumsóknar, sbr. 17. gr. laga um fjölmiðla
Önnur mál 1 Upplýsingar vegna árlegs mats á Ríkisútvarpinu skv. 15. gr. laga nr. 23/2013, um Ríkisútvarpið. (Upplýsingar vegna tímabilsins 22. mars til 31. ágúst 2013)
Fjöldi mála samtals 142

     3.      Hvernig vinnur nefndin að því að sinna starfsskyldum sínum, sem skv. 10. gr. laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, eru að efla fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum og að standa vörð um tjáningarfrelsið?
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að ákvæði 10. gr. laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, fjalli um starfssvið fjölmiðlanefndar og þá þætti þess sem telja megi kjarnasvið í starfi nefndarinnar, þ.e. að efla fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum, standa vörð um tjáningarfrelsi, rétt almennings til upplýsinga og vernd barna samkvæmt ákvæðum laga um fjölmiðla. Nánari grein verði gerð fyrir þeim starfsskyldum fjölmiðlanefndar sem framangreind spurning lýtur að:

Skráning eignarhalds á fjölmiðlum.
    Í svari fjölmiðlanefndar var bent á að á meðal þess sem hugtakið miðlalæsi feli í sér sé að almenningur geti skilið hvaða hagsmunir liggi að baki þeim upplýsingum og/eða sjónarmiðum sem komið sé á framfæri í fjölmiðlum og notað þá með gagnrýnum hætti. Með því að standa vörð um gagnsæi eignarhalds á fjölmiðlum sé talið að efla megi miðlalæsi almennings og stuðla að fjölbreytni og fjölræði á fjölmiðlamarkaði. Eitt meginmarkmið fjölmiðlalaga sé að stuðla að rétti almennings til upplýsinga um eignarhald á fjölmiðlum.
    Á vef fjölmiðlanefndar www.fjolmidlanefnd.is séu birtar upplýsingar um eignarhald allra fjölmiðla hér á landi eins og þær berist nefndinni. Fjölmiðlanefnd uppfæri skráningarupplýsingar þegar tilkynningar um breytingar berist nefndinni og kalli eftir því að breytingar verði tilkynntar sinni fjölmiðlar ekki tilkynningarskyldu sinni. Síðastliðið haust hafi fjölmiðlanefnd óskað formlega eftir því að allar skráðar fjölmiðlaveitur hér á landi endurskoðuðu og uppfærðu þær upplýsingar sem lægju skráningu fjölmiðla þeirra til grundvallar. Á sama tíma hafi fjölmiðlanefnd óskað eftir skráningu nýrra fjölmiðla og hafi upplýsingar um eignarhald 20nýrra fjölmiðla verið skráðar og birtar á vef fjölmiðlanefndar í kjölfarið.

Útgáfa fræðsluefnis: Bæklingurinn Börn og miðlanotkun.
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að nefndin hafi þýtt og staðfært bæklinginn Börn og miðlanotkun í samstarfi við samtökin Heimili og skóla. Bæklingurinn kemur út á næstunni en hann hafi upphaflega verið gefinn út af systurstofnun fjölmiðlanefndar í Finnlandi. Honum sé ætlað að auka þekkingu og vitund foreldra á miðlanotkun og miðlalæsi og stuðla að samtali barna og foreldra um fjölmiðla og notkun þeirra. Lögð sé áhersla á að beina börnum og miðlanotkun þeirra í heilbrigða átt, hjálpa þeim að nálgast upplýsingar, meta þær og greina, miðla eigin efni og taka virkan þátt í upplýsingasamfélaginu. Bæklingnum verði dreift í alla grunnskóla landsins og verði einnig aðgengilegur á stafrænu formi á netinu.

Endurmenntunarnámskeið í miðlalæsi fyrir grunnskólakennara.
    Fjölmiðlanefnd nefndi í svari sínu að 13. ágúst 2014 hafi farið fram endurmenntunarnámskeið grunnskólakennara í miðlalæsi í Háaleitisskóla í Reykjavík. Markmið námskeiðsins hafi verið að þátttakendur skildu hlutverk fjölmiðla og nýrra miðla, gætu með gagnrýnum hætti notað miðla, skilið hvaða hagsmunir lægju að baki upplýsingum og sjónarmiðum sem komið sé á framfæri og fengið yfirsýn yfir það með hvaða hætti notendur geti komið skoðunum á framfæri og verið þátttakendur í umræðunni. Markmiðið hafi jafnframt verið að þátttakendur gætu síðan miðlað þessari þekkingu til nemenda á ólíkum skólastigum. Á meðal þess sem fjallað hafi verið um væri þáttur leitarvéla við að leita sér upplýsinga, máttur auglýsinga og markaðssetningar og hlutverk samfélagsmiðla við að dreifa upplýsingum/hugmyndafræði. Auk þess væri fjallað um hvers konar efni væri álitið skaðlegt börnum í fjölmiðlum og ­rannsóknir sem lægju því til grundvallar.

Fræðslunámskeið í grunnskólum um miðlanotkun og miðlalæsi.
    Þá kom fram að fjölmiðlanefnd og SAFT hafi sótt um styrk til Reykjavíkurborgar í október sl. vegna samstarfsverkefnis um námskeið í miðlanotkun og miðlalæsi sem ætlað var foreldrum, kennurum og frístundaleiðbeinendum. Verkefnið hafi verið að sænskri fyrirmynd og hafi átt að halda námskeiðið í þremur hverfum Reykjavíkurborgar á vormánuðum 2015. Hugmyndin hafi verið að á námskeiðinu yrðu fyrirlestrar um miðlalæsi, auk þess sem börn og unglingar yrðu á staðnum og leyfðu gestum að kynnast af eigin raun því tæknium­hverfi sem íslensk börn og unglingar lifa og hrærast í. Fjármögnun verkefnisins hafi ekki verið tryggð, þar sem Reykjavíkurborg synjaði um styrk, en unnið sé að því að leita annarra leiða í þeim efnum.

Námsefni í miðlalæsi og ítarefni á netinu.
    Fram kom að fjölmiðlanefnd og SAFT væru í samstarfi um að hanna ítarefni um miðlalæsi sem birt yrði á netinu, þar á meðal gagnvirkt sjálfspróf fyrir börn og fullorðna. Þá væri í bígerð að hanna kennslueiningar um miðlalæsi fyrir grunn-, mið- og efsta stig grunnskóla, sem ætlaðar eru kennurum. Með verkefninu væri ætlunin að ná til foreldra, kennara, barna og unglinga, til að auka þekkingu þeirra á miðlalæsi og af hverju það skipti máli.

Umsagnir í samrunamálum.
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að nefndin veitti umsagnir í samrunamálum á fjölmiðlamarkaði, að beiðni Samkeppniseftirlitsins. Í 8. mgr. 62. gr. b í lögum um fjölmiðla, nr. 38/ 2011, segi að við mat á lögmæti samruna á fjölmiðlamarkaði, þar sem a.m.k. ein fjölmiðlaveita með minnst 100 millj. kr. ársveltu á aðild, skuli Samkeppniseftirlitið taka til skoðunar hvort samruni kunni að hafa skaðleg áhrif á fjölræði og/eða fjölbreytni í fjölmiðlun á þeim markaði eða mörkuðum sem viðkomandi fjölmiðlaveita eða fjölmiðlaveitur starfa á. Samkeppniseftirlitið skuli afla umsagnar fjölmiðlanefndar um áhrif samrunans að því leyti. Frá því að nefnt lagaákvæði hafi tekið gildi í apríl 2013 hafi fjölmiðlanefnd veitt umsagnir í fjórum samrunamálum:
     a.      Umsögn vegna samrunamáls 365 miðla og Tónlist.is, september 2013.
     b.      Umsögn vegna samrunamáls 365 miðla og Konunglega kvikmyndafélagsins, júní 2014.
     c.      Umsögn vegna samrunamáls 365 miðla og IP-fjarskipta, september 2014.
     d.      Umsögn vegna samrunamáls Vefpressunnar og DV, desember 2014.

Móttaka og meðferð kvartana frá almenningi.
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að nefndin tæki við ábendingum og kvörtunum frá almenningi, m.a. vegna meintra brota á lýðræðislegum grundvallarreglum, þ.m.t. tjáningarfrelsi, sbr. 26. gr. laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, og/eða öðrum ákvæðum þeirra laga sem fjölmiðlanefnd hafi eftirlit með, þ.e. lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, og lögum um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum, nr. 62/2006. Telji nefndin að nægar ástæður séu til meðferðar hefjist viðkomandi stjórnsýslumál. Telji nefndin að kvörtun gefi ekki nægar ástæður til meðferðar sé kvartanda sent skriflegt svar með skýringum og rökstuðningi þess efnis. Um sjónarmið sem máli skipta við mat á því hvort kvörtun er tekin til meðferðar vísar nefndin til svars við 9. tölul. fyrirspurnarinnar.

Opinber umræða, fundir og málþing.
    Fjölmiðlanefnd benti á í svari sínu að nefndin vekti auk þess reglulega athygli á mikilvægi tjáningarfrelsis, miðlalæsis og fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum með því að efna til málþinga, samtals og opinberrar og fræðilegrar umræðu um þessi réttindi og málaflokka, auk þess sem nefndin leitaðist almennt við að taka virkan þátt í umræðu um fjölmiðlamál á opinberum vettvangi.
    Eftirfarandi eru dæmi um nýlegt framlag fjölmiðlanefndar til opinberrar og/eða fræðilegrar umræðu er varðaði tjáningarfrelsi, miðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum:
     a.      Fræðigreinin Grýtt slóð – Reglur um eignarhald á fjölmiðlum í íslenskum rétti eftir Karl Axelsson formann og Elfu Ýri Gylfadóttur framkvæmdastjóra sem birtist í afmælisriti Páls Sigurðssonar 16. ágúst 2014. (Bókaútgáfan Codex, Reykjavík 2014.)
     b.      Umræður um stöðu og horfur á fjölmiðlamarkaði í útvarpsþættinum Víðsjá á Rás 2 7. janúar sl., þar sem Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, var meðal þátttakenda.
     c.      Viðtal við Elfu Ýri Gylfadóttur framkvæmdastjóra í útvarpsþættinum Samfélagið á Rás 1 9. janúar sl. þar sem fjallað var um hlutverk fjölmiðlanefndar og það mikilvæga hlutverk sem fjölmiðlar gegna í að viðhalda lýðræði og tjáningarfrelsi.
     d.      Viðtal við Karl Axelsson, formann fjölmiðlanefndar, í sjónvarpsþættinum Viðtalið á RÚV 12. janúar sl. þar sem fjallað var um stöðu íslenskra fjölmiðla, mikilvægi fjölræðis og fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði og mörk og mikilvægi tjáningarfrelsis.
     e.      Hádegisfundur fjölmiðlanefndar og Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands 20. janúar sl., þar sem fjallað var um stöðu tjáningarfrelsisins í kjölfar voðaverkanna á ritstjórnarskrifstofu Charlie Hebdo í París. Yfirskrift fundarins var „Penninn eða sverðið – er tjáningarfrelsið í hættu?“ Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, var einn þriggja frummælenda.
     f.      Viðtal Fréttablaðsins við Elfu Ýri Gylfadóttur framkvæmdastjóra 20. janúar, þar sem fjallað var um mikilvægi tjáningarfrelsis og fjölbreytni í fjölmiðlum, þar á meðal þess að ólíkir hópar eigi sér rödd í fjölmiðlum og að blaða- og fréttamenn hafi ólíkan bakgrunn.
     g.      Umfjöllun um efni hádegisfundarins Penninn eða sverðið í Síðdegisútvarpi Rásar 2 hinn 19. janúar sl. þar sem talað var við Elfu Ýri Gylfadóttur framkvæmdastjóra og Þóri Jónsson Hraundal sagnfræðing.
     h.      Umfjöllun í Speglinum í Ríkisútvarpinu 20. janúar sl. þar sem fjallað var um efni hádegisfundarins Penninn eða sverðið og talað við Þóri Jónsson Hraundal.
     i.      Greinin Penninn eða sverðið? Hugleiðing um tjáningarfrelsið eftir Elfu Ýri Gylfadóttur sem birtist í Kjarnanum 20. janúar sl.
     j.      Framsaga Elfu Ýrar Gylfadóttur framkvæmdastjóra á Pressukvöldi Blaðamannafélags Íslands og Félags fréttamanna 20. janúar sl. þar sem sviptingar á fjölmiðlamarkaði voru til umfjöllunar.
     k.      Greinin Þarf einnig annars konar læsi á 21. öld? eftir Elfu Ýri Gylfadóttur framkvæmdastjóra og Hrefnu Sigurjónsdóttur, framkvæmdastjóra Heimilis og skóla, sem birtist í Fréttablaðinu 7. febrúar 2015.
     l.      Fyrirhugað viðtal við Elfu Ýri Gylfadóttur í 3. tbl. 10. árgangs Tímarits Lögréttu sem helgað er réttinum til tjáningarfrelsis.
    Þá kom fram að fjölmiðlanefnd hefði einnig haldið málþing um önnur mál tengd fjölmiðlum, t.d. ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla, vernd barna og fleira. Samantekt á efni hádegisfunda og málþinga á vegum fjölmiðlanefndar og hlekki á fjölmiðlaumfjöllun væri að finna á vef fjölmiðlanefndar.

     4.      Hvernig túlkar nefndin rétt almennings til upplýsinga og hvernig sinnir nefndin varðstöðu sinni um þann rétt?
    Fjölmiðlanefnd benti á að rétturinn til að taka við og skila áfram upplýsingum væri varinn í tjáningarfrelsisákvæði 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem hafi verið lögfestur í íslenskum rétti með lögum nr. 62/1994. Þá hnigju rök til þess að skýra mætti ákvæði 73. gr. stjórnarskrár Íslands á þann veg að það tæki einnig til upplýsingafrelsis vegna efnislegra tengsla við 10. gr. sáttmálans. Kveðið væri á um frelsi til að leita, taka við og miðla upplýsingum í 19. gr. mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna, auk þess sem réttur almennings til aðgangs að gögnum í opinberri stjórnsýslu væri varinn í upplýsingalögum, nr. 140/2012.
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að eitt meginmarkmið laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, væri að stuðla að rétti almennings til upplýsinga um fjölmiðla, þar með talið um eignarhald þeirra. Í 21. gr. laganna segði að á vefsíðu fjölmiðlanefndar skuli birta upplýsingar um:
     a.      nafn þess sem tilkynnt hefur starfsemi sína eða hlotið leyfi, kennitölu, lögheimili, netfang og vefsetur og gildistíma leyfis þegar slíkt á við,
     b.      nafn ábyrgðarmanns,
     c.      dagskrárstefnu hljóð- og myndmiðla og síðari tilkynningar um breytingu á henni,
     d.      ritstjórnarstefnu prentmiðla og rafrænna ritmiðla og síðari tilkynningar um breytingu á henni,
     e.      eignarhald á fjölmiðlaþjónustuveitanda,
     f.      reglur fjölmiðlaþjónustuveitanda um ritstjórnarlegt sjálfstæði, ef við á, og
     g.      ákvarðanir fjölmiðlanefndar í málum fjölmiðlaþjónustuveitenda; úr hinni birtu útgáfu úrskurðar skuli þó fella brott upplýsingar um viðkvæm einkamálefni einstaklinga og mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni lögaðila sem sanngjarnt sé og eðlilegt að leynt fari.
    Reglur um birtingu upplýsinga um fjölmiðla miði að því að upplýsingar og upplýsingagjöf um fjölmiðla sé með gagnsæjum hætti og almenningur eigi greiðan aðgang að upplýsingum um hverjir eigi fjölmiðla á hverjum tíma. Reglur um gagnsæi eignarhalds auðveldi almenningi að fá upplýsingar um hverjir eigi hagsmuna að gæta í miðlunum og hversu miklir þeir hagsmunir eru. Gagnsæi í eignarhaldi sé því nauðsynlegt til að almenningur geti tekið afstöðu til ritstjórnar-, dagskrárstefnu og efnis miðlanna og sé hluti af því að efla miðlalæsi almennings og standa vörð um tjáningar- og upplýsingafrelsi. Þá sé gagnsæi eignarhalds lykilþáttur þess að standa megi vörð um fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum og koma í veg fyrir samþjöppun eignarhalds á fjölmiðlamarkaði.
    Fjölmiðlanefnd hafi veigamiklu hlutverki að gegna við að framfylgja reglum um upplýsingagjöf og gagnsæi eignarhalds. Nefndin skrái og birti upplýsingar um eignarhald allra fjölmiðla hér á landi á vef fjölmiðlanefndar. Sinni fjölmiðlar ekki tilkynningarskyldu sinni þegar breytingar verði á högum þeirra kalli fjölmiðlanefnd eftir því að upplýsingar sem liggi skráningu þeirra til grundvallar verði uppfærðar og leiðréttar. Þá hafi fjölmiðlanefnd jafnframt óskað eftir almennri endurskoðun skráningarupplýsinga, sbr. bréf þess efnis sem sent var til allra skráðra fjölmiðla síðastliðið haust, auk þess sem óskað hafi verið eftir skráningu nýrra fjölmiðla um sama leyti.
    Ásamt því að birta ýmsar upplýsingar um fjölmiðla og fjölmiðlaum­hverfið á vef fjölmiðlanefndar sinni nefndin upplýsingagjöf um margvísleg málefni tengd fjölmiðlum með greinaskrifum og með því taka þátt í málþingum, málfundum og annarri umræðu á opinberum vettvangi. Þá hafi nýverið verið opnaðar Facebook- og Twitter-síður fjölmiðlanefndar þar sem fyrirhugað sé að birta ýmsar upplýsingar um fjölmiðla, fjölmiðlalöggjöf, ákvarðanir fjölmiðlanefndar og fleira. Á Facebook-síðu fjölmiðlanefndar gefist almenningi einnig tækifæri til að koma óformlegum ábendingum á framfæri við nefndina, auk þess sem áfram megi senda formleg erindi í tölvupósti eða á heimilisfang nefndarinnar.
    Loks mætti geta þess að fjölmiðlanefnd svari öllum fyrirspurnum, um íslenskt fjölmiðlaum­hverfi og regluverk, sem berist reglulega í tölvupósti og símleiðis frá fjölmiðlum, almenningi og erlendum aðilum, systurstofnunum fjölmiðlanefndar, Evrópustofnunum o.fl. Starfsmenn fjölmiðlanefndar hafi einnig tekið á móti háskólanemendum í fjölmiðlarétti við Háskólann í Reykjavík, tekið að sér gestakennslu í fjölmiðlarétti við Háskólann í Reykjavík og í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, auk þess að sinna fyrirspurnum háskólanemenda í blaða- og fréttamennsku, fjölmiðlafræði, lögfræði og fleiri fögum við hérlenda háskóla vegna lokaritgerðarskrifa nemenda.

     5.      Starfar fjölmiðlanefnd að því að kortleggja fjölmiðlamarkaðinn, fylgjast með stöðu og þróun og safna upplýsingum þar að lútandi? Safnar fjölmiðlanefnd og vinnur úr upplýsingum um aldursdreifingu, kynjahlutföll, menntunardreifingu og menntunarstig notenda fjölmiðlanna, eða öðrum viðeigandi upplýsingum?
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að í b-lið 2. mgr. 10. gr. laga um fjölmiðla segði að fjölmiðlanefnd skuli fylgjast með stöðu og þróun á fjölmiðlamarkaði og safna upplýsingum þar að lútandi. Í 23. gr. sömu laga væri kveðið á um árlega skýrslugjöf allra skráðra fjölmiðlaveitna og hvaða upplýsingar slík skýrsla ætti að innihalda. Þetta væru nánar tiltekið:
    –        upplýsingar um hlutfall evrópsks myndefnis í línulegri dagskrá,
    –        hlutfall myndefnis frá sjálfstæðum framleiðendum í línulegri dagskrá,
    –        hlutfall íslensks myndefnis í línulegri dagskrá,
    –        hlutfall pantana á evrópsku myndefni í ólínulegri dagskrá,
    –        hlutfall pantana á myndefni frá sjálfstæðum framleiðendum í ólínulegri dagskrá,
    –        hlutfall pantana á íslensku myndefni í ólínulegri dagskrá,
    –        aðgerðir viðkomandi fjölmiðlaveitu til að efla kynningu og framboð á evrópsku myndefni,
    –        aðgerðir fjölmiðlaveitunnar til að auka aðgengi sjón- og heyrnarskertra að myndefni hennar,
    –        birtingarmyndir kynjanna, þ.m.t. hlutfall karla og kvenna í hópi viðmælenda í fréttum og fréttatengdu efni,
    –        starfsfólk á fjölmiðlum, fjölda kvenna og karla, greint eftir starfsheitum,
    –        aðgerðir fjölmiðlaveitunnar til að vinna gegn staðalímyndum kynjanna,
    –        annað sem nauðsynlegt er til að mæla stöðu og þróun á fjölmiðlamarkaði.
    Ekki væru gerðar sérstakar kröfur til þess í lögum um fjölmiðla að upplýsingum um aldursdreifingu, menntunardreifingu eða menntunarstig sé safnað og úr þeim unnið, þótt slíkar upplýsingar geti fallið undir það að teljast „annað sem nauðsynlegt er til að mæla stöðu og þróun á fjölmiðlamarkaði“.
    Frumkvæðisskylda til að afhenda fjölmiðlanefnd framangreindar upplýsingar hvíldi á fjölmiðlunum sjálfum og bæri þeim að uppfylla hana fyrir 31. mars ár hvert. Fjölmiðlanefnd væri ætlað að kalla eftir þessum upplýsingum sinni fjölmiðlar ekki tilkynningarskyldu sinni. Mikil vinna væri í því fólgin að kalla eftir og safna saman framangreindum upplýsingum, bæði fyrir fjölmiðlana sjálfa og starfsmenn fjölmiðlanefndar, en rúmlega 150 prent- og netmiðlar væru skráðir hjá fjölmiðlanefnd og rúmlega 40 hljóð- og myndmiðlar. Reynslan sýndi að margir fjölmiðlar sinntu ekki þessari skyldu sinni nema ítrekað væri gengið eftir því.
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að nefndin teldi afar mikilvægt að upplýsingum um stöðu og þróun á fjölmiðlamarkaði væri haldið til haga, þeim safnað árlega og unnið markvisst úr þeim, í þeim tilgangi að fullnægjandi yfirsýn fengist yfir breytingar, þróun og starfsemi á fjölmiðlamarkaði. Fjölmiðlanefnd fylgdist eins og kostur er með þróun fjölmiðla- og auglýsingamarkaðar, breytingum á fjölmiðlanotkun og tækninýjungum á þessu sviði. Vegna mannfæðar og fjárskorts gæti nefndin engu síður ekki sinnt þessu mikilvæga hlutverki nægilega.

     6.      Óskaði nefndin eftir upplýsingum um meint afskipti útgefanda 365 miðla, starfandi í umboði eigenda, af fréttaflutningi á fjölmiðlaveitunni Vísi sem ritstjórar töldu brjóta í bága við ritstjórnarreglur miðilsins og lög um fjölmiðla? Ef ekki, hvers vegna ekki? Ef upplýsinga var óskað hjá fjölmiðlaveitunni, hvers vegna heyrðist ekkert opinberlega frá nefndinni um málið?
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að fulltrúar fjölmiðlanefndar hafi fundað með nýjum forstjóra 365 miðla og lögmanni 365 hinn 5. september 2014. Á þeim fundi hefði m.a. komið fram að breytingar hefðu orðið á eignarhaldi 365 miðla og óskaði fjölmiðlanefnd eftir því að þær breytingar yrðu tilkynntar formlega. Á sama fundi hefðu breytingar á ritstjórn 365 miðla verið ræddar og þá aðallega starfslok þáverandi aðalritstjóra 365 miðla, 25. ágúst 2014, og starfslok þáverandi ritstjóra Fréttablaðsins, sem sagði upp störfum 26. ágúst 2014.
    Á fundinum hefði forstjóri 365 miðla lýst aðdraganda og ástæðum uppsagnanna, sjónarmiðum sínum þar að lútandi og svarað spurningum starfsmanna nefndarinnar. Fjölmiðlanefnd benti á að nefndin ætti í reglulegum samskiptum við forsvarsmenn fjölmiðla í viku hverri, ýmist í gegnum tölvupóst, síma eða á fundum en upplýsingar sem nefndinni væru veittar munnlega væru fyrst og fremst til upplýsinga fyrir nefndina og í flestum tilfellum trúnaðarmál. Fjölmiðlanefnd gæti ekki greint frá málum er vörðuðu hagi einstakra fjölmiðlafyrirtækja eða starfsmanna þeirra, sbr. 4. mgr. 11. gr. laga um fjölmiðla, þar sem segði að fjölmiðlanefnd skyldi eftir því sem við ætti gæta trúnaðar við meðferð upplýsinga og gagna sem hún aflar eða henni bærust.
    Fjölmiðlanefnd benti á í svari sínu að nefndinni væri ætlað að staðfesta reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði sem fjölmiðlum er rækju fréttastofu væri skylt að setja sér og endurskoða árlega. Fjölmiðlanefnd hefði þannig eftirlit með því að reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði væru settar og endurskoðaðar og hefði jafnframt heimild til að leggja á dagsektir vanræktu fjölmiðlaveitur að setja slíkar reglur. Fjölmiðlanefnd hefði hins vegar ekki lagaheimild til að hafa eftirlit með því hvort og hvernig reglum um ritstjórnarlegt sjálfstæði væri framfylgt á einstaka fjölmiðlum. Í reglu þessari, sem nefnd væri lögmætisreglan, fælist annars vegar að ákvarðanir stjórnvalda mættu ekki vera í andstöðu við lög og hins vegar að ákvarðanir stjórnvalda yrðu að styðjast við heimild í lögum. (Forsætisráðuneytið. Starfsskilyrði stjórnvalda, bls. 17–18).
    Þá teldi fjölmiðlanefnd að það samræmdist ekki hlutverki nefndarinnar, eins og það væri skilgreint í lögum um fjölmiðla, að gefa út opinberar yfirlýsingar um málefni einstakra fjölmiðla eða fjölmiðlafyrirtækja.

     7.      Hefur fjölmiðlanefnd kallað eftir upplýsingum um viðskipti og breytingar á eignarhaldi DV og greint möguleg áhrif á ritstjórnarlegt frelsi fjölmiðilsins?
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að frumkvæðisskylda hvíldi á fjölmiðlaveitu að tilkynna fjölmiðlanefnd um allar breytingar sem kynnu að verða á högum fjölmiðlaveitunnar, þar á meðal breytingar á upplýsingum um eignarhald. Sinnti fjölmiðlaveita ekki þessari tilkynningarskyldu kallaði fjölmiðlanefnd eftir því að hún yrði uppfyllt.
    Fram kom að fjölmiðlanefnd hefði óskað eftir upplýsingum um breytingar á eignarhaldi DV og fleiri upplýsingum tengdu eignarhaldi og yfirráðum DV í haust. Jafnframt hafi fjölmiðlanefnd óskað eftir endurskoðuðum reglum DV ehf. um ritstjórnarlegt sjálfstæði, ef það ætti við. Hafi DV svarað óskum nefndarinnar.
    Við þessar upplýsingar mætti bæta að fjölmiðlanefnd hefði á síðastliðnu ári borist erindi frá fyrrverandi blaðamanni á DV, þar sem fram kæmu áhyggjur af því að ritstjórnarlegu sjálfstæði á fréttaritstjórn DV hefði verið stefnt í hættu í ritstjórnartíð fyrrverandi ritstjóra vegna fjárhagslegra hagsmuna. Nefndin hefði fjallað um málið og komist að þeirri niðurstöðu að lög um fjölmiðla tækju ekki til þeirrar atvikalýsingar sem erindið hafi falið í sér. Þannig væri fjölmiðlanefnd t.d. ætlað að kalla eftir reglum um ritstjórnarlegt sjálfstæði en henni væri ekki ætlað að framfylgja því að farið væri eftir reglunum. Með hliðsjón af lögmætisreglu stjórnsýsluréttar teldi fjölmiðlanefnd sig ekki geta aðhafst á grundvelli erindisins.
    Einnig nefndi fjölmiðlanefnd að Samkeppniseftirlitið hefði óskað eftir umsögn fjölmiðlanefndar vegna samruna Vefpressunnar ehf. og DV ehf. Um hlutverk fjölmiðlanefndar í samrunamálum væri fjallað í 8. mgr. 62. gr. b laga um fjölmiðla þar sem segði að við mat á lögmæti samruna skyldi Samkeppniseftirlitið afla umsagnar fjölmiðlanefndar um áhrif samrunans á fjölræði og/eða fjölbreytni í fjölmiðlum á þeim markaði eða mörkuðum sem viðkomandi fjölmiðlaveita eða fjölmiðlaveitur störfuðu á. Fjölmiðlanefnd hafi sent Samkeppniseftirlitinu umsögn sína 5. desember 2014 en þar hafi nefndin metið möguleg áhrif samrunans á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram hefðu komið í samrunatilkynningu félaganna og þeirra gagna sem fylgdu henni.
    Að lokum benti nefndin á að upplýsingar um eignarhald DV ehf. væri að finna á vef fjölmiðlanefndar.

     8.      Hvernig tryggir fjölmiðlanefnd jafnræði og gagnsæi gagnvart aðilum sem leita réttar síns hjá nefndinni vegna ágreinings við Blaðamannafélag Íslands þar sem félagið á fulltrúa í nefndinni?
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að engin ákvæði, hvorki í lögum um fjölmiðla, nr. 38/ 2011, né öðrum gerðu ráð fyrir að aðilar gætu leitað réttar síns hjá fjölmiðlanefnd eða skotið til fjölmiðlanefndar málum vegna ágreinings við Blaðamannafélag Íslands.
    Um hæfi nefndarmanna færi að öðru leyti eftir ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga um fjölmiðla. Ef nefndarmaður væri svo tengdur máli eða aðilum þess að hann teldist vanhæfur til meðferðar málsins viki hann sæti og yfirgæfi fundarsal við afgreiðslu máls.

     9.      Hversu margar kvartanir hafa borist fjölmiðlanefnd skv. 11. gr. laga um fjölmiðla og hversu margar hafa verið afgreiddar með áliti?
    Í svari fjölmiðlanefndar kom fram að nefndinni hafi borist 32 formlegar kvartanir frá byrjun árs 2011 til ársloka 2014. Meðferð tveggja formlegra kvartana hafi lokið með álitum sem birt hafi verið á vef fjölmiðlanefndar. Átta málum hafi lokið með ákvörðunum, byggðum á málum sem tekin voru upp á grundvelli formlegra kvartana, eftir óformlegar ábendingar eða að frumkvæði nefndarinnar. Öll álit og ákvarðanir fjölmiðlanefndar séu aðgengileg á vef fjölmiðlanefndar.
    Þá taldi fjölmiðlanefnd rétt að benda á að gerður væri greinarmunur á formlegum erindum/ kvörtunum og ábendingum til fjölmiðlanefndar, sbr. starfsreglur fjölmiðlanefndar nr. 1363/ 2011. Formleg erindi þar sem farið væri fram á aðgerðir á grundvelli fjölmiðlalaga eða annarra laga sem fjölmiðlanefnd væri ætlað að hafa eftirlit með skyldu vera skrifleg og undirrituð. Greint skyldi frá nafni, heimilisfangi og kennitölu þess sem sendi erindið. Ef um lögaðila væri að ræða skyldi greina stuttlega frá því hvers kyns starfsemi hann stundaði. Jafnframt skyldi greina frá þeim lögaðila eða einstaklingi sem erindið beindist að. Þegar kvartað væri undan meintu broti skyldi greina frá dagsetningu og tímasetningu miðlunar efnisins, eftir því sem við ætti, og gefa nákvæma lýsingu á atvikum. Þá skyldi rökstutt hvers vegna atvikið væri talið vera brot á lögum. Teldi nefndin að kvörtun gæfi ekki nægar ástæður til meðferðar væri kvartanda sent skriflegt svar með skýringum og rökstuðningi þess efnis. Við mat á því hvort erindi gæfi nægar ástæður til meðferðar hefði fjölmiðlanefnd hliðsjón af málefnalegum sjónarmiðum sem þættu skipta máli í hverju tilviki fyrir sig. Á meðal þess sem máli gæti skipt við mat fjölmiðlanefndar á því hvort hefja bæri rannsókn væri hvort meint brot varði þau lagaákvæði sem fjölmiðlanefnd hefði eftirlit með, hvort meint brot virtist alvarlegt og hvort fjölmiðlaveita, sem kvartað væri yfir, hefði ekki látið af þeirri hegðun sinni. Teldi nefndin að nægar ástæður væru til meðferðar hæfist viðkomandi stjórnsýslumál. Um málsmeðferðina giltu ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Ákvörðun á grundvelli kvörtunar teldist stjórnvaldsákvörðun og um hana giltu reglur stjórnsýsluréttar, þar á meðal um andmælarétt, málshraða og meðalhóf.
    Um leið benti fjölmiðlanefnd á það að meiri hluti ákvarðana sem fjölmiðlanefnd tæki í störfum sínum teldist ekki til stjórnvaldsákvarðana í skilningi stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Þar mætti nefna ákvarðanir sem lytu að því að kalla eftir upplýsingum um eignarhald á fjölmiðlum og reglum um ritstjórnarlegt sjálfstæði, umsýslu vegna skráningar rúmlega 150 prent- og netmiðla, útgáfu nokkurra tuga leyfa til hljóð- og myndmiðlunar o.fl.

     10.      Hver er staðan á endurskoðun á lögum um fjölmiðla sem er kveðið er á um í lögunum að skuli fara fram innan þriggja ára frá setningu þeirra? Stendur til að fara í þá vinnu ef hún er ekki þegar hafin?

    Undirbúningur að endurskoðun á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, hófst í mennta- og menningarmálaráðuneyti sumarið 2013 en ýmislegt hefur hins vegar tafið framgang þeirrar vinnu sem lagt var af stað með.
    Í fyrsta lagi skal nefna að þegar Alþingi ákvað lækkun fjárveitinga til mennta- og menningarmálaráðuneytis um ríflega 42 millj. kr. í fjárlögum fyrir árið 2014 miðað við upphaflegar forsendur í fjárlagafrumvarpi þurfti í kjölfarið að forgangsraða verkefnum í ráðuneytinu, m.a. á lögfræðisviði ráðuneytisins, þar sem verkefnum var sinnt af færri starfsmönnum en áður. Ráðuneytið hafði sökum niðurskurðar ekki nægar fjárheimildir til að framlengja tímabundna ráðningu sérfræðings í fjölmiðlarétti sem hafði unnið að undirbúningi endurskoðunar laga um fjölmiðla og starfar nú enginn slíkur sérfræðingur hjá ráðuneytinu.
    Í öðru lagi skal nefna að í tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar, sem litu dagsins ljós í nóvember 2013, var í tillögu nr. 40 lagt til að fjölmiðlanefnd yrði lögð niður og byggja skyldi á fyrri lagaramma, þ.e. útvarpslögum, nr. 53/2000, þar sem útgáfa útvarpsleyfa og eftirlit var á hendi þriggja manna útvarpsréttarnefndar, og að stjórnsýslu- og eftirlitsverkefni fjölmiðlanefndar skyldu færð til Póst- og fjarskiptastofnunar. Segja má að þessi tillaga hagræðingarhópsins hafi sett endurskoðun laga um fjölmiðla í ákveðna biðstöðu.
    Í þriðja lagi má nefna að tveir starfshópar innan Stjórnarráðs Íslands hafa undanfarið fjallað um hlutverk og stöðu fjölmiðlanefndar. Annars vegar hafa málefni fjölmiðlanefndar komið til umfjöllunar hjá starfshópi á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og innanríkisráðuneytis sem hóf störf á vormánuðum 2014 og fjallar um mögulega sameiningu Póst- og fjarskiptastofnunar, Samkeppniseftirlitsins, hluta Orkustofnunar og fjölmiðlanefndar. Hins vegar hefur hlutverk fjölmiðlanefndar verið til skoðunar í vinnuhópi forsætisráðuneytis um lög, reglur og stjórnsýslu mikilvægra eftirlitsstofnana sem hóf störf síðsumars 2014. Í báðum starfshópum er unnið að tillögum sem munu, ef þær ná fram að ganga, kalla á breytingar á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011. Í ljósi aðstæðna hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti metið það svo að rétt sé að bíða átekta uns ljóst er hver afrakstur þeirrar vinnu sem nú fer fram á vegum fyrrnefndra ráðuneyta verður.