Ferill 717. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1200  —  717. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um ráðstafanir
vegna riðuveiki í sauðfé.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Á hversu mörgum býlum hefur sauðfjárstofn verið skorinn niður vegna riðuveiki síðan hert var á aðgerðum gegn riðu árið 1996, hvar á landinu eru þessi býli, hversu mörgu fé var fargað af þessum ástæðum og hvenær var það gert?
     2.      Hvernig er hræjum riðusjúks fjár fargað?
     3.      Hver hefur kostn­aður ríkissjóðs vegna ráðstafana gegn riðuveiki verið frá 1996?
     4.      Fer fram á vegum hins opinbera skipuleg fræðsla og upplýsingamiðlun um riðuveiki til bænda, sláturleyfishafa og annarra sem málið varðar?
     5.      Telur ráðherra að grípa þurfi til frekari ráðstafana til að vinna bug á riðuveiki í sauðfé og þá hverra?


Skriflegt svar óskast.