Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.

Þingskjal 1227  —  305. mál.
Viðbót.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003,
með síðari breytingum (kerfisáætlun).

Frá minni hluta atvinnuveganefndar (LRM).


    Við 2. gr.
     a.      Í stað orðanna „raforkunotkunar, markaðsþróunar og raforkuflutnings til annarra landa eftir því sem við á“ í 3. mgr. a-liðar (9. gr. a) komi: raforkunotkunar og markaðsþróunar.
     b.      Við b-lið (9. gr. b) bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
             Ákvörðun Orkustofnunar um samþykkt eða synjun kerfisáætlunar er kæranleg til úrskurðarnefndar um­hverfis- og auðlindamála.