Ferill 630. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1231 — 630. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur
um skógrækt og landgræðslu.
1. Hvernig hefur verið brugðist við þingsályktun um eflingu skógræktar sem atvinnuvegar og sameiningu stjórnsýslueininga á sviði skógræktar og landgræðslu, nr. 39/143?
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er fjallað um vilja hennar til að efla skógrækt og landgræðslu, auk þess sem á Alþingi var vorið 2014 samþykkt samhljóða þingsályktun nr. 39/143. Í stefnumótandi byggðaáætlun 2014–2017 eru sett fram markmið um eflingu stuðnings við skógrækt á bújörðum, með áherslu á viðarframleiðslu, kolefnisbindingu, aukin landgæði, betri búsetuskilyrði og atvinnusköpun. Þá verður aukið við framkvæmdir í skógrækt og landgræðslu á árinu með 20 millj. kr. fjárframlagi ríkisins sem samþykkt var í síðustu fjárlögum. Með þessum fjármunum verða stigin skref í átt að auknum aðgerðum í skógrækt og landgræðslu. Í framhaldinu er markmiðið að veita enn frekara fjármagn í gróðursetningu á vegum landshlutaverkefna í skógrækt, Landgræðsluskóga og Hekluskóga. Sömuleiðis er stefnt að því að auka starf á vegum Landbótasjóðs Landgræðslu ríkisins og að styrkja verkefnið Bændur græða landið. Með þessum aðgerðum eru vistkerfi landsins styrkt til muna, búsetuskilyrði bætt og kolefnisbinding aukin auk þess sem þær eru atvinnuskapandi.
Unnið er mjög gott starf á vegum Skógræktar ríkisins, Landbúnaðarháskóla Íslands og fleiri aðila á sviði rannsókna og þróunarstarfs í skógrækt. Hluta þess fjármagns sem Skógrækt ríkisins notar til rannsókna og þróunarstarfs er ráðstafað af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Eins hafa farið fram viðræður við skógareigendur um aukna áherslu á hlutverk þeirra við úrvinnslu úr þeirra eigin skógum. Ráðherra ákvað haustið 2014 að hefja vinnu við samningu frumvarps til laga um landgræðslu og skógrækt. Starf þetta byggist á tillögum tveggja nefnda um endurskoðun laga um landgræðslu og skógrækt sem skiluðu greinargerðum til ráðherra í júní 2012. Samráðsvettvangi hagsmunaaðila var komið á fót til að starfa með ráðuneytinu og vera því til ráðgjafar við gerð frumvarpsins. Gert er ráð fyrir að leggja fram frumvörp til laga um málefni landgræðslu og skógræktar á Alþingi veturinn 2015–2016. Markmið starfsins er m.a. að samræma reglur á þessu sviði með það í huga að viðfangsefni þessara málaflokka séu skýr og að þau veiti góða leiðsögn fyrir þær stofnanir sem munu sjá um framkvæmd laganna. Annars vegar að þau veiti skýra leiðsögn um ræktun og meðferð skóga og hins vegar um jarðvegs- og gróðurvernd, uppgræðslu og endurheimt vistkerfa.
2. Álítur ráðherra heppilegt að sameina Skógrækt ríkisins, Landgræðslu ríkisins og landshlutaverkefni í skógrækt í eina stjórnsýslueiningu? Ef svo er, óskast rökstuðningur fyrir því áliti.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur haft til skoðunar ýmsar sviðsmyndir varðandi sameiningar eða aukið samstarf stofnana ráðuneytisins. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um sameiningu stofnana sem starfa að skógrækt og landgræðslu. Landshlutaverkefni í skógrækt hafa stundum verið með í þeirri umræðu. Styrkja þarf landshlutaverkefnin til að efla atvinnulíf og renna styrkari stoðum undir búsetu í byggðum landsins.
Ekki er nokkur vafi á því að ýmiss konar samlegð getur fylgt sameiningu stofnana. Þá er einnig hægt að ná fram hagræðingu og styrkja starfsemi beggja stofnana með samþættingu verkefna og aukinni samvinnu þeirra á milli. Með hliðsjón af verksviði Skógræktar ríkisins, landshlutaverkefna í skógrækt og Landgræðslu ríkisins er ákveðin samfella í viðfangsefnum sem snúa að vernd jarðvegs og gróðurs. Hekluskógar eru dæmi um verkefni þar sem landgræðsla og skógrækt hafa mikla snertifleti. Þar er unnið að uppgræðslu til að hefta sandfok og síðan gróðursett og sáð birki.
3. Hefur verið lagt mat á það hvort unnt sé og æskilegt að samþætta markmið um landgræðslu og skógrækt sem atvinnugrein?
Markmið um landgræðslu og skógrækt sem atvinnugrein hafa ekki verið samþætt. Ræktun nytjaskóga, svo sem til viðarframleiðslu, er eins og hver önnur ræktun og því auðvelt að horfa til hennar sem atvinnugreinar í framtíðinni eftir því sem skógarauðlind byggist upp. Skógar eru auk þess í eðli sínu þannig að af þeim má hafa fjölþætt not, t.d. til útivistar. Horfa má til skóga eins og Vaglaskógar, Hallormsstaðaskógar, Haukadalsskógar og skóga í Þjórsárdal. Landgræðsla felur einnig í sér margþættar aðgerðir, svo sem sjálfbæra nýtingu lands, jarðvegs- og gróðurvernd, uppgræðslu og endurheimt vistkerfa. Víða á landinu má sjá fyrir sér að byggja upp atvinnugrein sem fælist í vinnu við uppgræðslu lands, svo sem fyrir bændur sem búa á svæðum þar sem gróðri og jarðvegi hefur hnignað mjög og aðgerðir eru brýnar. Slíkt getur kallað á samþættingu búvörusamninga og landgræðslusjónarmiða.
4. Fer endurskoðun laga um landgræðslu, sbr. svar ráðherra í 496. máli, fram samkvæmt markmiðum um samræmingu laga um skógrækt og laga um landgræðslu?
Sjá svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
5. Hafa verið sett magn- og tímabundin markmið um eflingu skógræktar og landgræðslu í samræmi við kafla í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 22. maí 2013 þar sem talið er brýnt að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda „með því að draga úr beinni losun af mannavöldum og með því að stórauka landgræðslu, skógrækt og aðra eflingu gróðurlenda“? Ef svo er, í hverju felast markmiðin? Hafi engin markmið verið sett, hvenær og hvernig hyggst þá ráðherra uppfylla fyrrgreind markmið stefnuyfirlýsingarinnar?
Á fjárlögum fyrir árið 2015 eru tekin fyrstu skref í átt að frekari framkvæmdum næstu árin. Í ár verður 20 millj. kr. varið aukalega til landgræðslu og skógræktar. Gert er ráð fyrir að því fjármagni verði varið til að auka gróðursetningu trjáplantna og uppgræðslu lands, m.a. með það að markmiði að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda. Skógrækt og landgræðsla eru tveir þættir af mörgum í aðgerðaáætlun Íslands til að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda.