Ferill 731. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1243 — 731. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um intersex.
Frá Björt Ólafsdóttur.
1. Hvernig er ákveðið hvort ástæða þyki til að gera aðgerð á intersex-barni? Hverjir koma að þeirri ákvörðunartöku?
2. Hvernig er upplýsingagjöf til foreldra um intersex og læknisfræðilegar meðferðir háttað?
3. Hvers kyns ráðgjöf og fræðslu fá foreldrar intersex-barna við greiningu og hver annast hana?
4. Hversu mörgum hefur verið boðin fóstureyðing á grundvelli þess að fóstur búi yfir intersex-breytileika?
5. Hversu margar aðgerðir á ári eru gerðar á börnum til þess að „leiðrétta“ kyn eins og það er kallað?