Ferill 635. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1251  —  635. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Össuri Skarphéðinssyni
um starfsmannamál EFTA.


     1.      Hversu margir starfsmenn EFTA eru frá hverri aðildarþjóð?
    Í starfsliði EFTA-skrifstofunnar ( EFTA Secretariat) eru 16 frá Íslandi, 15 frá Sviss, 1 frá Liechtenstein og 27 frá Noregi. Auk þess eru í hópi aðstoðarfólks 4 frá Belgíu og 17 einstaklingar af ýmsu öðru þjóðerni. Í starfsliði skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES ( Financial Mechanism Office – FMO) eru 7 frá Íslandi, 20 frá Noregi, 3 frá Belgíu og 28 af ýmsu öðru þjóðerni. Byggjast þessar tölur á upplýsingum frá EFTA-skrifstofunni.

     2.      Hver ákveður, og greiðir, laun þeirra?
    Laun eru ákveðin af EFTA-ráðinu, þar sem hvert aðildarríkjanna fjögurra á sinn fulltrúa. Samkvæmt upplýsingum frá EFTA-skrifstofunni var núverandi launakerfi EFTA tekið upp í ársbyrjun 2006 á grundvelli ítarlegs samanburðar óháðs ráðgjafa sem bar saman launakjör EFTA og launakjör í öðrum alþjóðastofnunum. Við ákvörðun launa er miðað við að laun starfsmanna EFTA-skrifstofunnar séu sambærileg við aðrar alþjóðastofnanir. Jafnframt er tekið tillit til þess að starfsmenn EFTA-skrifstofunnar hafa tímabundna samninga til þriggja ára sem aðeins er unnt að endurnýja einu sinni til annars þriggja ára tímabils ef stofnunin hefur hagsmuni af því.
    Launataflan er byggð á samhæfðu kerfi alþjóðastofnana ( Co-ordinated Organisations) sem í eru Atlantshafsbandalagið (NATO), Evrópuráðið og Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD). Er það í verkahring reikningsstofunnar International Service for Remunerations and Pensions (ISRP) að afla gagna, útreikninga og annars sem snýr að mati og þróun á launum starfsmanna þeirra alþjóðastofnana sem byggja launatöflur sínar á samhæfða kerfinu og þeirra alþjóðastofnana sem nýta sér kerfið, líkt og í tilfelli EFTA-skrifstofunnar.
    EFTA-ráðið endurskoðar laun árlega að teknu tilliti til tilmæla frá ISRP. Tilmælin taka mið af launaþróun meðal opinberra starfsmanna í átta aðildarríkjum samhæfða kerfisins ( Co- ordinated Organisations) og verðlagsþróun í starfsstöðvum EFTA-skrifstofunnar í Genf og Brussel. Á undanförnum árum hefur hin árlega endurskoðun í nokkrum tilvikum leitt til frystingar eða lækkunar launa.
    Laun eru greidd af fjárveitingum til EFTA-skrifstofunnar, sem eru fjármögnuð af aðildarríkjunum fjórum. Árið 2015 greiðir Ísland 2,61% af heildarfjárveitingum til EFTA, Liechtenstein greiðir 0,94%, Noregur 55,17% og Sviss 41,28%. Ísland greiðir því 2,61% af launakostnaði EFTA.
    Laun starfsfólks Uppbyggingarsjóðs EES, sem lúta sama kerfi og EFTA-skrifstofan, eru fjármögnuð af EES/EFTA-ríkjunum þremur Noregi, Íslandi og Liechtenstein. Kostnaðarskiptingin milli ríkjanna er sú að Noregur greiðir 95,8% af heildarfjárveitingum til Uppbyggingarsjóðsins, Ísland 3% og Liechtenstein 1,2%.

     3.      Hefur EFTA jafnréttisstefnu varðandi mannahald?
    Samkvæmt upplýsingum frá EFTA-skrifstofunni er jafnrétti eitt af grunngildum stofnunarinnar. EFTA-skrifstofan veitir jöfn tækifæri og mismunar ekki á grundvelli kyns, trúarbragða, kynþáttar, kynhneigðar eða annarra persónulegra eiginleika. Launatafla EFTA er aðgengileg öllum starfsmönnum.

     4.      Hvernig er kynjaskipting meðal:
              a.      æðstu stjórnenda,
              b.      millistjórnenda og
              c.      annarra starfsmanna?

    Fjórir æðstu stjórnendur EFTA, framkvæmdastjóri ( Secretary-General), aðstoðarframkvæmdastjóri ( Deputy Secretary-General) og varaframkvæmdastjóri ( Assistant Secretary- General), sem skipaðir eru af aðildarríkjunum eru allir karlar um þessar mundir.
    Í hópi forstöðumanna ( Directors) eru 2 konur og 3 karlar. Í hópi sérfræðinga ( Officers og Senior Officers) eru 22 konur og 24 karlar. Í hópi annarra starfsmanna ( Administrative Assistants og Senior Administrative Assistants) eru 20 konur og 6 karlar.
    Æðsti stjórnandi Uppbyggingarsjóðs EES er kona. 2 af 5 forstöðumönnum eru konur og 3 eru karlar. Í hópi sérfræðinga eru 26 konur og 21 karl. Í hópi annarra starfsmanna eru 4 konur og 2 karlar.