Ferill 740. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.

Þingskjal 1260  —  740. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um vistvæna vottun matvæla.

Frá Brynhildi Pétursdóttur.


     1.      Hvaða kröfur eru gerðar um framleiðslu á vöru sem ber merkingu um vistvæna vottun?
     2.      Hvaða eftirlit er með framleiðslu á slíkum vörum og telur ráðherra eftirlitið nægjanlegt?


Skriflegt svar óskast.