Ferill 667. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1282 — 667. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni
um vöruinnflutning frá Kína eftir staðfestingu fríverslunarsamnings.
1. Hvert var verðmæti innfluttrar vöru frá Kína eftir staðfestingu fríverslunarsamnings Íslands og Kína hinn 1. júlí 2014 til 28. febrúar sl. og hversu mikið jukust viðskiptin frá fyrra ári?
Eins og fram kemur var fríverslunarsamningur Íslands og Kína staðfestur 1. júlí 2014. Þar sem ekki hefur liðið heilt almanaksár frá staðfestingunni er fjöldi sendinga og tollverð gefið upp miðað við þrjú átta mánaða tímabil í þeim tilgangi að auðvelda samanburð. Rétt er að taka öllum tölum sem fram koma í svarinu með nokkrum fyrirvara. Til dæmis flutti eitt fyrirtæki inn vörur frá Kína á tímabili 2 fyrir rúmlega 6.500 millj. kr. en á tímabili 3 var innflutningur þess hins vegar 2.200 millj. kr. lægri eða um 4.300 millj. kr. Þá er rétt að geta þess að samanburðartímabilin eru tiltölulega stutt og mögulega koma árstíðabundnar breytingar fram í tölunum. Tímabilin eru eftirfarandi:
| Tímabil 1: | 1. mars 2013 – 31. október 2013 |
| Tímabil 2: | 1. nóvember 2013 – 30. júní 2014 |
| Tímabil 3: | 1. júlí 2014 – 28. febrúar 2015 |
Á tímabili 1 bárust 5.188 sendingar frá Kína og var samanlagt tollverð þeirra 11,4 milljarðar kr. eða 2,2 millj. kr. að meðaltali á sendingu. Á tímabili 2 bárust 6.228 sendingar frá Kína og var samanlagt tollverð þeirra 11,2 milljarðar kr. eða 1,8 millj. kr. að meðaltali á sendingu. Á tímabili 3 bárust 7.740 sendingar frá Kína og var samanlagt tollverð þeirra 10 milljarðar kr. eða 1,3 millj. kr. að meðaltali á sendingu.
Fjöldi sendinga frá Kína og tollverð þeirra (kr.) á tímabili 1–3
(1. mars 2013 – 28. febrúar 2015).
| Tímabil | Fjöldi sendinga |
Samanlagt tollverð allra sendinga |
Meðaltal tollverðs á sendingu |
| 1 | 5.188 | 11.354.965.259 | 2.188.698 |
| 2 | 6.228 | 11.188.571.987 | 1.796.495 |
| 3 | 7.740 | 9.976.901.451 | 1.289.005 |
Af þessum upplýsingum má sjá að sendingum hefur fjölgað um 2.552 eða 49,2% frá tímabili 1 til tímabils 3. Hins vegar hefur samanlagt tollverð lækkað um 1,4 milljarða kr. eða 12,14% á sama tíma auk þess sem meðaltal tollverðs á sendingu hefur lækkað um 899.693 kr. eða 41,1%. Af framangreindu leiðir einnig að sendingum frá Kína fjölgaði um 20,05% milli tímabila 1 og 2 og um 24,28% milli tímabila 2 og 3. Samanlagt tollverð allra sendinga á tímabili 2 var 1,47% lægra en á tímabili 1 og 10,83% lægra á tímabili 3 en á tímabili 2. Meðaltal tollverðs á sendingu var 17,92% lægra á tímabili 2 en á tímabili 1 og 28,25% lægra á tímabili 3 en á tímabili 2.
2. Hversu margar sendingar nutu fríðindameðferðar í samræmi við fríverslunarsamninginn á árinu 2014 og það sem af er þessu ári?
Á tímabilinu frá 1. júlí 2014 til 28. febrúar 2015 nutu 2.881 sendingar fríðindameðferðar í samræmi við fríverslunarsamninginn eða 37,22% allra sendinga á téðu tímabili.
3. Hvert var verðmæti vöru frá Kína sem flutt var inn með fríðindameðferð frá 1. júlí 2014 til 28. febrúar sl.?
Á tímabilinu frá 1. júlí 2014 til 28. febrúar 2015 nam samanlagt tollverð allra sendinga sem nutu fríðindameðferðar í samræmi við fríverslunarsamninginn 2.252.031.206 kr. Sú fjárhæð er 22,57% af samanlögðu tollverði allra sendinga frá Kína á téðu tímabili.
4. Hvert var verðmæti vöru, þar sem Kína er upprunaland, sem flutt var inn án fríðindameðferðar frá 1. júlí 2014 til 28. febrúar sl. (sundurliðað eftir mánuðum)?
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflu.
Tollverð vöru (kr.), þar sem Kína er upprunaland, sem flutt var inn
með og án fríðindameðferðar 1. júlí 2014 – 28. febrúar 2015.
| Ár | Mánuður | Samanlagt tollverð | Tollverð með fríðindameðferð |
Tollverð án fríðindameðferðar |
| 2014 | júlí | 3.824.556.534 | 50.419.856 | 3.774.136.678 |
| 2014 | ágúst | 3.784.069.011 | 191.148.119 | 3.592.920.892 |
| 2014 | september | 3.640.822.484 | 472.939.503 | 3.167.882.981 |
| 2014 | október | 4.971.869.055 | 492.858.286 | 4.479.010.769 |
| 2014 | nóvember | 4.324.767.561 | 532.833.370 | 3.791.934.191 |
| 2014 | desember | 3.992.130.762 | 498.047.633 | 3.494.083.129 |
| 2015 | janúar | 3.708.813.602 | 474.584.026 | 3.234.229.576 |
| 2015 | febrúar | 3.984.029.445 | 336.770.146 | 3.647.259.299 |
| Samtals | 32.231.058.454 | 3.049.600.939 | 29.181.457.515 |
5. Hversu mörg fyrirtæki fluttu inn vörur frá Kína á árinu 2014 og þessu ári (janúar–mars) eftir staðfestingu fríverslunarsamnings landanna?
Á tímabilinu frá 1. júlí 2014 til 28. febrúar 2015 fluttu 1.079 fyrirtæki inn vörur með Kína skráð sem viðskiptaland.
6. Hvert var heildarverðmæti fatnaðar og skóvöru sem flutt var inn frá Kína a) án tollfríðinda, b) með fríðindameðferð frá 1. júlí 2014 til 28. febrúar sl. (sundurliðað eftir mánuðum)?
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflu.
Tollverð (kr.) fatnaðar og skóvöru frá Kína með og án fríðindameðferðar
1. júlí 2014 – 28. febrúar 2015.
| Ár | Mánuður | Samanlagt tollverð |
Tollverð með fríðindameðferð |
Tollverð án fríðindameðferðar |
| 2014 | júlí | 118.859.530 | 8.234.033 | 110.625.497 |
| 2014 | ágúst | 185.388.554 | 116.058.021 | 69.330.533 |
| 2014 | september | 243.556.371 | 218.439.279 | 25.117.092 |
| 2014 | október | 88.841.200 | 74.499.160 | 14.342.040 |
| 2014 | nóvember | 139.676.622 | 122.099.344 | 17.577.278 |
| 2014 | desember | 111.205.981 | 101.199.133 | 10.006.848 |
| 2015 | janúar | 155.170.008 | 142.586.119 | 12.583.889 |
| 2015 | febrúar | 0.379.287 | 82.321.093 | 8.058.194 |
| Samtals | 1.133.077.553 | 865.436.182 | 267.641.371 |
7. Hver er lækkun á tollum vegna fríverslunarsamnings við Kína í heild frá 1. júlí 2014?
Þessum tölulið fyrirspurnarinnar er svarað með samanburði samtalna tolltekna af vörulínum þegar Kína var tilgreint sem viðskiptaland á sömu tímabilum og lögð voru til grundvallar í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
Á tímabili 1 námu tollgreiðslurnar 235.463.491 kr., á tímabili 2 námu þær 232.969.621 kr. og á tímabili 3 námu þær 75.079.325 kr. Af framangreindu leiðir að tolltekjurnar lækkuðu um 1,06% á milli tímabila 1 og 2 og um 67,77% á milli tímabila 2 og 3.
8. Hvert var verðmæti og fjöldi póstsendinga til einstaklinga frá Kína á árinu 2014 eftir staðfestingu fríverslunarsamnings landanna og hver var aukningin frá fyrra ári?
Í svarinu óskast verðmæti miðað við tollverð.
Þessum tölulið fyrirspurnarinnar er svarað með birtingu upplýsinga um fjölda sendinga og samanlagt tollverð þeirra á sömu tímabilum og lögð voru til grundvallar í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Upplýsingarnar sem lagðar eru til grundvallar eru úr E3-póstinnflutningsskýrslum fyrir vörur sem hafa verið teknar til einfaldari tollmeðferðar.
Fjöldi póstsendinga og samanlagt tollverð þeirra (kr.) á tímabili 1–3
(1. mars 2013 – 28. febrúar 2015).
| Tímabil | Fjöldi sendinga |
Samanlagt tollverð | Meðaltal tollverðs á sendingu |
| 1 | 17.252 | 62.830.110 | 3.642 |
| 2 | 65.082 | 192.178.558 | 2.953 |
| 3 | 62.489 | 207.882.811 | 3.327 |