Ferill 708. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1289 — 708. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Össuri Skarphéðinssyni
um verðskerðingargjald af hrossakjöti.
1. Hversu mikið hefur verið innheimt í verðskerðingargjald af hrossakjöti frá því að innheimta á því var hafin, skipt á ár og samtals?
Samkvæmt 20. gr. laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, er innheimt 2% verðskerðingargjald af framleiðendaverði hrossakjöts. Upplýsingar um verðskerðingargjöld liggja fyrir frá árinu 1998 og voru eftirfarandi:
| Ár | Krónur |
| 1998 | 2.048.089 |
| 1999 | 2.730.588 |
| 2000 | 2.546.299 |
| 2001 | 5.011.612 |
| 2002 | 1.860.484 |
| 2003 | 1.723.947 |
| 2004 | 1.562.076 |
| 2005 | 1.784.582 |
| 2006 | 1.918.141 |
| 2007 | 1.957.967 |
| 2008 | 2.222.162 |
| 2009 | 2.451.190 |
| 2010 | 1.080.090 |
| 2011 | 2.210.140 |
| 2012 | 3.222.144 |
| 2013 | 2.747.680 |
| 2014 | 2.727.725 |
| Samtals | 40.804.916 |
2. Hversu stórum hluta gjaldsins hefur ár hvert verið varið til markaðsaðgerða innan lands og hversu miklum erlendis?
Verðskerðingargjaldi hefur verið ráðstafað til markaðsmála Félags hrossabænda eins og fram kemur í töflu hér á eftir. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvaða hluta gjaldsins hefur verið varið til markaðsaðgerða innan lands og hversu miklum hluta gjaldsins hefur verið ráðstafað erlendis.
Ráðstöfun á verðskerðingargjöldum af hrossakjöti til
markaðsaðgerða Félags hrossabænda 1998–2014.
| Ár | Krónur |
| 1998 | 86.522 |
| 1999 | 1.651.851 |
| 2000 | 1.167.282 |
| 2002 | 503.800 |
| 2006 | 1.000.000 |
| 2007 | 2.028.902 |
| 2008 | 2.651.674 |
| 2009 | 1.050.000 |
| 2010 | 2.200.000 |
| 2014 | 3.500.000 |
| Samtals | 15.840.031 |
Ráðstöfun á verðskerðingargjöldum af hrossakjöti
til markaðsmála Kjötframleiðenda ehf. 1998–2014.
| Ár | Krónur |
| 1998 | 2.379.204 |
| 1999 | 4.205.683 |
| 2000 | 4.066.027 |
| 2001 | 3.221.919 |
| 2002 | 7.013.150 |
| 2003 | 1.700.048 |
| 2004 | 2.604.641 |
| 2005 | 1.148.029 |
| 2006 | 594.460 |
| Samtals | 26.933.161 |
3. Hver hefur tekið ákvörðun um veitingu fjárins og í krafti hvaða laga og reglna?
Bændasamtök Íslands (áður Framleiðsluráð landbúnaðarins) hafa tekið ákvörðun um ráðstöfun verðskerðingargjalda að fengnu samþykki ráðherra samkvæmt reglugerð nr. 478/1996 um innheimtu og ráðstöfun á verðskerðingargjöldum af hrossakjöti en reglugerðin er sett með stoð í ákvæðum laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum.
4. Hefur einhverju fjárins verið varið í annað en beinar markaðsaðgerðir fyrir hrossakjöt?
Hluta fjárins hefur verið varið til einstakra verkefna annarra en beinna markaðsaðgerða. Það var gert árið 2012 þegar úthlutað var til eftirtalinna verkefna:
| Styrkur MFK fagkeppni | 200.000 kr. |
| Styrkur Kjötbók (netbók) | 500.000 kr. |
| Styrkur Eldum íslenskt | 100.000 kr. |
| Kostnaður og vinnuframlag til framkvæmdastjóra og formanns | 500.000 kr. |
Einnig var úthlutað styrk til MFK fagkeppni árið 2014 að fjárhæð 150.000 kr.
Þá hefur Bændasamtökum Íslands verið greidd 2% þóknun fyrir umsýslu með verðskerðingarsjóði samkvæmt samkomulagi við ráðuneytið.
Þóknun Bændasamtaka Íslands fyrir umsýslu
með verðskerðingarsjóði 1998–2014.
| Ár | Krónur |
| 1998 | 0 |
| 1999 | 54.132 |
| 2000 | 53.000 |
| 2001 | 53.000 |
| 2002 | 53.000 |
| 2003 | 53.000 |
| 2004 | 36.000 |
| 2005 | 35.692 |
| 2006 | 38.363 |
| 2007 | 43.792 |
| 2008 | 51.506 |
| 2009 | 51.922 |
| 2010 | 42.887 |
| 2011 | 46.098 |
| 2012 | 66.547 |
| 2013 | 58.782 |
| 2014 | 59.211 |
| Samtals | 796.932 |