Ferill 749. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1305 — 749. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um skerðingu á bótum almannatrygginga.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Hversu oft hafa bætur skv. 69. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, svo og greiðslur skv. 63. gr. og fjárhæðir skv. 22. gr. sömu laga, verið skertar frá því að lögin tóku gildi?
2. Hvað má gera ráð fyrir að ríkissjóður hafi sparað háar fjárhæðir vegna skerðinganna? Árlegur sparnaður og heildarsparnaður óskast settur fram miðað við launaþróun annars vegar og verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs hins vegar frá því að lögin tóku gildi.
3. Hvað má gera ráð fyrir að margir lífeyrisþegar hafi sætt skerðingu árlega samkvæmt skerðingarákvæðunum?
4. Hver er að mati ráðherra mismunur á ráðstöfunartekjum helstu hópa þeirra sem þiggja bætur samkvæmt framangreindu og áætluðum framfærslukostnaði viðkomandi hópa samkvæmt neysluviðmiðum Hagstofu Íslands?
5. Hvað telur ráðherra að lífeyrisþegar, annars vegar einstaklingar og hins vegar hjón eða sambúðaraðilar, þurfi árlega í bætur til að þeim sé kleift að framfleyta sér og lifa sjálfstæðu lífi, sbr. markmið frumvarps til laga um lífeyrisréttindi almannatrygginga og félagslegan stuðning sem lagt var fram á 142. löggjafarþingi árið 2013 (7. mál)?
Skriflegt svar óskast.