Ferill 754. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1316  —  754. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna tannígræðslu.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


1.      Hversu margir gengust undir tannígræðsluaðgerð með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga á árunum 2005–2014? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
2.      Hver voru útgjöld sjúkratrygginga vegna tannígræðsluaðgerða á árunum 2005–2014? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
3.      Hvaða reglur gilda um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna tannígræðsluaðgerða og hversu mikil er hún í einstökum tilvikum?
4.      Stendur til að auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannígræðsluaðgerðum?


Skriflegt svar óskast.