Ferill 755. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1317  —  755. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga
vegna tannlæknakostnaðar örorku- og ellilífeyrisþega.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


1.      Hvaða skilyrði gilda um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna tannlæknakostnaðar örorku- og ellilífeyrisþega og hversu mikil er hún í einstökum tilvikum?
2.      Hversu mikil hefur greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tannlæknakostnaðar örorku- og ellilífeyrisþega verið í einstökum tilvikum frá árinu 2000? Svar óskast sundurliðað eftir árum og uppreiknað með tilliti til vísitölu neysluverðs.
3.      Hyggst ráðherra leggja til innleiðingu á nýju greiðsluþátttökukerfi vegna tannlæknakostnaðar örorku- og ellilífeyrisþega sambærilegu greiðsluþátttökukerfi sjúkratrygginga fyrir börn?


Skriflegt svar óskast.