Ferill 756. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1320  —  756. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um afgreiðslu mála hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Frá Birgittu Jónsdóttur.


     1.      Hve margar óafgreiddar kærur eru skráðar í málaskrá úrskurðarnefndar um upplýsingamál og í hve mörgum þeirra er allri gagnaöflun lokið þannig að úrskurða megi í málinu?
     2.      Fá kærur afgreiðslu í þeirri röð sem þær berast og ef ekki, hvernig er forgangsröðun þeirra metin?
     3.      Hver hefur meðalafgreiðslutími kæra verið frá 1. janúar 2014 og hver er áætlaður afgreiðslutími miðað við stöðu mála nú?


Skriflegt svar óskast.