Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1350  —  512. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.

Frá Róbert Marshall.


    Við 12. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    2. málsl. 1. mgr. 3. gr., 2.–3. mgr. 3. gr., 4. gr., 6. gr., orðin „um sinubrennur“ í 1. mgr. 7. gr., 5.–7. tölul. 2. mgr. 7. gr. og 8. gr. falla brott 1. janúar 2020.

Greinargerð.

    Hér er lagt til að frá 1. janúar 2020 verði óheimilt með öllu að brenna sinu. Því er lagt til að ákvæði frumvarpsins sem snúa að sinubrennu og leyfi fyrir henni falli brott 1. janúar 2020.