Ferill 698. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1359  —  698. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar,
nr. 78/2002, með síðari breytingum (full niðurgreiðsla vegna flutnings og dreifingar).


Frá atvinnuveganefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingva Má Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Byggðastofnun, Bændasamtökum Íslands, Grundar­fjarðarbæ, Orkubúi Vestfjarða ohf., Rúnari Lárussyni, Samorku, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum ­sveitarfélaga á köldum svæðum.
    Með frumvarpinu er lagt til að lokið verði við að innleiða breytingar sem starfshópur þáverandi iðnaðarráðuneytis lagði til í skýrslu frá desember 2011. Vinna starfshópsins hófst í kjölfar samþykktar ríkisstjórnarinnar 5. apríl 2011 um að unnið yrði að því með Samtökum ­sveitarfélaga á köldum svæðum að leita leiða til að lækka og jafna kostnað við húshitun. Nokkrar tillögur starfshópsins hafa þegar komið til framkvæmda. Lagt er til að flutningur og dreifing á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis verði niðurgreidd að fullu hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma.
    Við meðferð málsins kom fram það viðhorf að einnig bæri að niðurgreiða kostnað við hitun opinberra bygginga á köldum svæðum. Nefndin bendir á að kostn­aður við slíka breytingu hefur ekki verið metinn nákvæmlega en gróflega áætlað er hann talinn geta numið allt að tvöföldum kostnaði við niðurgreiðslur samkvæmt frumvarpinu, verði það að lögum.
    Nefndin leggur til breytingu á frumvarpinu sem felst í því að breyta orðinu ,,olía“ í „eldsneyti“ á tveimur stöðum til samræmis við önnur ákvæði frumvarpsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



     1.      Við 6. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Í stað orðsins ,,olíu“ í 4. tölul. 11. gr. laganna kemur: eldsneyti.
     2.      Í stað orðanna ,,1. málsl. 1. mgr.“ í 7. gr. komi: 1. og 5. málsl. 1. mgr.

Alþingi, 28. maí 2015.

Jón Gunnarsson,
form.
Kristján L. Möller,
frsm.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Haraldur Benediktsson. Ásmundur Friðriksson. Róbert Marshall.
Páll Jóhann Pálsson. Þorsteinn Sæmundsson. Þórunn Egilsdóttir.