Ferill 776. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1365  —  776. mál.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um aðkomu foreldra eða forráðamanna
að ráðningu barna og unglinga í vinnu.

Frá Fanný Gunnarsdóttur.


     1.      Telur ráðherra rétt þegar litið er til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum að foreldrar eða forráðamenn veiti samþykki sitt þegar barn eða ungmenni sækir um launaða vinnu?
     2.      Telur ráðherra eðlilegt að barn geti ráðið sig til starfa og samið um kaup og kjör við vinnuveitanda án aðkomu foreldra eða forráðamanna, sérstaklega þegar hugsanleg áhætta fylgir starfi?
     3.      Telur ráðherra ástæðu til að foreldrar eða forráðamenn barna og ungmenna fái fræðslu og nauðsynlegar upplýsingar um viðkomandi starf áður en gengið er frá samningi, eins og vinnuskólar á vegum ­sveitarfélaga eiga að gera?
     4.      Telur ráðherra, með hliðsjón af framangreindu, rétt að endurskoða reglugerð nr. 426/ 1999 um vinnu barna og unglinga, þannig að ákvæðum sem lúta að framangreindum þáttum verði bætt inn í hana?


Skriflegt svar óskast.