Ferill 742. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1366  —  742. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni
um innleiðingu tilskipunar um endurnot opinberra upplýsinga.


     1.      Hve langt er vinna við innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/37/ESB, um endurnot opinberra upplýsinga, komin í ráðuneytinu?
    Tilskipun 2013/37/ESB hefur enn sem komið er ekki verið tekin upp í EES-samninginn, en stefnt er að því að það verði gert í XI. viðauka samningsins. Aðildarríki Evrópusambandsins hafa frest til innleiðingar tilskipunarinnar til 18. júlí nk. Af hálfu forsætisráðuneytisins hefur verið fylgst með hvernig aðildarríkin útfæra ákvæði tilskipunarinnar til undirbúnings innleiðingar hérlendis. Hefur þar m.a. verið horft til Danmerkur, en þar hafa verið sett sérstök lög um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 596 frá 24. júní 2005. 1 Lögin voru sett til að innleiða ákvæði tilskipunar 2003/98/EB en hefur nú verið breytt til samræmis við tilskipun 2013/37/ESB með lögum nr. 553 frá 2. júní 2014. 2 Þá hefur verið fylgst með því hvernig Norðmenn hyggjast innleiða tilskipunina. 3
    Ljóst er að gera þarf breytingar á ýmsum reglum sem er að finna í VII. kafla upplýsingalaga, nr. 140/2012, en núgildandi ákvæði kafla­ns taka mið af texta tilskipunar 2003/98/EB.
    Vinnan í ráðuneytinu beinist nú að því að undirbúa upptöku í EES-samninginn. Þeirri vinnu ætti að ljúka í síðasta lagi 1. september nk.

     2.      Hvenær er áætlað að frumvarp þess efnis verði lagt fram á Alþingi?
    
Gerð frumvarps hefst þegar nauðsynlegum undirbúningi tilskipunarinnar í EES-samninginn hefur verið lokið, sbr. svar við 1. tölul. Gera má ráð fyrir að frumvarp verði lagt fram á Alþingi í síðasta lagi haustið 2016.

     3.      Hvernig er áætlað að rétti til hagnýtingar opinberra upplýsinga verði háttað hér á landi í kjölfar innleiðingarinnar?
    Rétti til hagnýtingar opinberra upplýsinga verður háttað með þeim hætti sem tilskipunin mælir fyrir um. Helstu efnisatriði tilskipunarinnar eru þau að gengið er lengra við að gera stjórnvöldum skylt að heimila endurnot opinberra upplýsinga, gildissvið endurnotatilskipunar 2003/98/EB víkkað út svo að hún nái til safna, bókasafna o.þ.h., sbr. 3. mgr. 29. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, breytingar gerðar á gjaldtökuheimildum, sbr. svar við 4. tölul., og loks að til staðar sé úrskurðaraðili sem fari með ágreiningsmál um aðgang að opinberum upplýsingum. Hvað síðasta atriðið varðar verður að telja að ákvæði tilskipunarinnar séu uppfyllt með úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Við innleiðinguna verður jafnframt litið til markmiða vinnuhóps innanríkisráðherra um opin gögn, en þau eru eftirfarandi:
    –        Að almenningur, fyrirtæki og hagsmunaaðilar hafi greiðan aðgang að ópersónubundnum upplýsingum úr skrám í vörslu ríkis og ­sveitarfélaga.
    –        Að upplýsingarnar verði finnanlegar/aðgengilegar í einni gátt og endurnýtanlegar.
    –        Að mótuð verði stefna um opin gögn.
    –        Að opnað verði fyrir aðgang að 80% af mikilvægustu gagnagrunnum ríkisins fyrir árslok 2016.
    Til greina kemur að breyta ákvæðum VII. kafla upplýsingalaga, nr. 140/2012, til samræmis við tilskipun 2013/37/ESB, eða hann verði felldur úr gildi og lagt verði fram frumvarp til sérlaga um endurnot opinberra upplýsinga. Ætla má að báðar leiðir séu færar.

     4.      Má búast við breytingu á gjaldtökuheimildum í upplýsingalögum í kjölfar innleiðingarinnar?
    Ljóst er að gjaldtökuheimild 6. mgr. 31. gr. núgildandi upplýsingalaga samræmist ekki þeim kröfum sem gerðar eru í 6. gr. tilskipunar 2013/37/ESB sem kemur til með að breyta 6. gr. tilskipunar 2003/98/EB. Samkvæmt núgildandi ákvæði upplýsingalaga skal hvert stjórnvald setja sér gjaldskrá sem ráðherra staðfestir á grundvelli 2. og 3. mgr. 18. gr. laganna. Í 3. mgr. 18. gr. segir að ákveða skuli gjaldskrá þannig að mætt sé þeim kostnaði sem hlýst af ljósritun eða afritun.
    EFTA-dómstóllinn hefur hins vegar túlkað ákvæði 6. gr. tilskipunar 2013/37/ESB á þann veg að eftir gildistöku tilskipunarinnar megi ekki telja með kostnað vegna söfnunar gagna og fjölföldunar, sbr. t.d. dóm dómstólsins frá 16. desember 2013 í máli nr. E-7/13, 60. efnisgrein. 4 Við innleiðingu tilskipunarinnar verður litið til þess hvernig aðildarríkin hafa útfært gjaldtökuheimildir sínar, sem og dómaframkvæmdar Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins.

     5.      Hefur í vinnu við innleiðinguna verið haft samráð við vinnuhóp innanríkisráðherra sem tók til starfa í haust og á að skila tillögu að stefnu um opin gögn ríkis og ­sveitarfélaga o.fl.?

    Starfsmaður forsætisráðuneytisins á sæti í vinnuhópi innanríkisráðherra og verður tengiliður hópsins við þá vinnu sem á sér stað í forsætisráðuneytinu.
Neðanmálsgrein: 1
1     www.retsinformation.dk/Forms/r0710.aspx?id=29235#FN501
Neðanmálsgrein: 2
2     www.retsinformation.dk/Forms/r0710.aspx?id=163488
Neðanmálsgrein: 3
3     www.regjeringen.no/nb/sub/eos-notatbasen/notatene/2013/sep/endringsdirektiv-psi/id747753/
Neðanmálsgrein: 4
4     www.eftacourt.int/uploads/tx_nvcases/7_13_Judgment_IS.pdf