Ferill 779. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.

Þingskjal 1380  —  779. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um samspil örorkugreiðslna
almannatrygginga og lífeyrissjóða.

Frá Helga Hjörvar.


    Hvers vegna hefur ekki verið framlengt samkomulag við lífeyrissjóði sem kemur í veg fyrir skerðingar örorkugreiðslna almannatrygginga og lífeyris, sbr. lög nr. 137/2014? Geta lífeyrisþegar treyst því að gildistími umræddra lagaákvæða verði framlengdur fyrir for­göngu ráðherra á yfirstandandi ári? Hyggst ráðherra leita leiða til að finna framtíðarlausn á málinu?


Skriflegt svar óskast.