Ferill 725. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1387  —  725 mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni um innleiðingu samnings OECD um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna
í alþjóðlegum viðskiptum.


     1.      Að hve miklu leyti hefur samningur OECD um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum verið innleiddur í íslensk lög?
    Samningur um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum, sem gerður var á vettvangi OECD, var undirritaður í París 17. desember 1997. Hann var fullgiltur af Íslands hálfu 17. ágúst 1998 og öðlaðist gildi 15. febrúar 1999 hér á landi.
    Til að unnt væri að fullgilda samninginn lagði þáverandi dómsmálaráðherra á árinu 1998 fram tvö frumvörp til samþykktar á Alþingi, annars vegar lög nr. 147 22. desember 1998, um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940, með síðari breytingum (mútur til opinbers starfsmanns) og hins vegar lög nr. 144/1998, um refsiábyrgð lögaðila vegna mútugreiðslu til opinbers starfsmanns.
    Með breytingarlögum nr. 147/1998 voru gerðar nokkrar breytingar á 109. gr. almennra hegningarlaga, en í ákvæðinu er lögð refsing við því að múta opinberum starfsmanni. Það ákvæði var áður fyrr bundið við innlenda opinbera starfsmenn og því varð að kveða sérstaklega á um refsinæmi mútugreiðslna til erlendra opinberra starfsmanna til að unnt yrði að fullgilda samninginn. Verknaðarlýsingu ákvæðisins var því breytt með breytingarlögunum til samræmis við samninginn um baráttu gegn mútugreiðslum. Þá var enn fremur bætt við nýjum tölulið við 6. gr. almennra hegningarlaga þannig að unnt yrði að sækja menn til saka hér á landi þótt brotið væri framið erlendis.
    Lög um refsiábyrgð lögaðila vegna mútugreiðslu til opinbers starfsmanns, nr. 144/1998, voru leidd í lög til fullgildingar samningsins um baráttuna gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum. Með lögunum var lögð ábyrgð á lögaðila vegna mútugreiðslna til erlendra opinberra starfsmanna.
    Frá því að Ísland gerðist aðili að framangreindum samningi hafa farið fram reglulegar úttektir á framkvæmd samningsins af hálfu íslenskra stjórnvalda á vegum vinnuhóps OECD. Á árinu 2010 fór fram þriðja úttekt á framkvæmd Íslands á samningnum. Á fundi í desember 2010 samþykkti vinnuhópurinn skýrslu um Ísland sem var liður í þriðju úttekt vinnuhópsins hér á landi. Í skýrslunni er litið jákvæðum augum til þeirra breytinga sem átt hafa sér stað á íslenskri löggjöf frá því önnur úttekt vinnuhópsins var gerð. Var í því sambandi sérstaklega vikið að breytingum á upptökuákvæðum almennra hegningarlaga, sem og ákvæði laganna um peningaþvætti. Að því er varðar refsilöggjöfina beindi vinnuhópurinn þeim tilmælum til Íslands að:
     a.      tryggja að ákvæði almennra hegningarlaga um mútur taki til mútugreiðslna til opinberra starfsmanna sem starfa fyrir fyrirtæki sem eru í opinberri eigu eða stjórnað af hálfu hins opinbera,
     b.      þyngja refsingu fyrir brot gegn 2. mgr. 109. gr. sömu laga, og
     c.      taka til skoðunar að heimila jafnframt beitingu annars konar viðurlaga fyrir lögaðila líkt og heimil eru fyrir einstaklinga, en hér er einkum átt við sviptingu réttinda skv. 68. gr. almennra hegningarlaga sem nú er bundin við einstaklinga.
    Með samþykkt laga nr. 5/2013, um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (mútubrot) var tekið tillit til framangreindra tilmæla og lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum.
    Í fréttatilkynningu vinnuhóps OECD frá 9. apríl 2015 kemur fram að vinnuhópurinn lýsi yfir sérstökum vonbrigðum með að Ísland hafi ekki innleitt tilmæli vinnuhópsins og vísar þar til eftirfarandi ábendinga vinnuhópsins:
     a.      að mútuþægni embættismanna í erlendum ríkisfyrirtækjum sé ekki refsiverð,
     b.      að hámarksrefsing einstaklinga vegna mútugreiðslna hafi ekki verið hækkuð,
     c.      að skortur sé á sérstökum rannsóknarúrræðum í málum er varða mútugreiðslur erlendra opinberra starfsmanna,
     d.      að skortur sé á skýrum ákvæðum um skyldur embættismanna um að tilkynna mútugreiðslur í alþjóðlegum viðskiptum, og
     e.      að ekki séu fyrir hendi lög er verndi sérstaklega uppljóstrara í einkageiranum.
    Ráðuneytið vinnur nú að því að skipa starfshóp vegna þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi gegn mútubrotum og spillingu. Starfshópurinn mun hafa það m.a. að markmiði að brugðist sé við ábendingum vinnuhóps OECD um mútubrot og að gerðar verði breytingar sem þörf er talin vera á til að ábendingarnar séu að fullu innleiddar. Þá hefur refsiréttarnefnd tvívegis tekið afstöðu til þessara athugasemda og telur gerðar breytingar fullnægja þessum athugasemdum. Í ljósi nýjustu athugasemda vinnuhóps OECD verður sú niðurstaða skoðuð að nýju.

     2.      Er frekari innleiðing samningsins í lög fyrirhuguð? Ef svo er, að hvaða marki og hvenær? Ef svo er ekki, hver er ástæða þess?

    Ráðuneytið vinnur að skipun starfshóps vegna þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi gegn mútubrotum og spillingu, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Í hópnum munu eiga sæti fulltrúar frá viðeigandi stjórnvöldum sem hlut eiga að máli. Hópurinn mun hafa það að markmiði að brugðist verði við ábendingum alþjóðastofnana, sem Ísland á aðild að, um aðgerðir gegn spillingu og mútum. Það verður því í höndum starfshópsins að fara yfir þær athugasemdir sem beint hefur verið að íslenskum stjórnvöldum á grundvelli alþjóðasamninga um aðgerðir gegn spillingu og mútum, greina þær og leggja fram tillögur að breytingum og koma þeirri vinnu í ferli.