Ferill 784. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1394 — 784. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um móttökustöð fyrir hælisleitendur.
Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.
1. Er hafinn undirbúningur að uppbyggingu móttökustöðvar fyrir hælisleitendur að norrænni fyrirmynd?
2. Ef svo er, hefur verið gerð tímaáætlun um uppbygginguna og hefur kostnaður við framkvæmdina verið metinn?
Skriflegt svar óskast.