Ferill 792. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1409 — 792. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um yfirfæranlegt tap
við samruna Arion banka og AFLs sparisjóðs.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
Hve mikið yfirfæranlegt tap fylgdi með AFLi sparisjóði við yfirtöku Arion banka á sparisjóðnum og hve mikið getur bankinn lækkað skattbyrði sína í framtíðinni með þeirri aðgerð?
Skriflegt svar óskast.