Ferill 794. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1413 — 794. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um stefnu í loftslagsmálum.
Frá Merði Árnasyni.
1. Hver verða landsmarkmið Íslands (INDC) á loftslagsráðstefnunni í París í desember?
2. Hyggjast íslensk stjórnvöld verða samferða Evrópusambandinu og Noregi á Parísarráðstefnunni líkt og í Doha árið 2012 þegar íslensk stjórnvöld tóku á sig sameiginlegar skuldbindingar með ESB á öðru skuldbindingartímabili Kyoto-bókunarinnar? Ef ekki, hyggjast stjórnvöld þá leita samstarfs við önnur einstök ríki eða ríkjahópa um pólitískar megináherslur á ráðstefnunni?
3. Á hvern hátt hyggjast íslensk stjórnvöld kynna stefnu og málstað Íslands í París, einkum í ljósi þess hversu brýnt er að hægja á og stöðva súrnun sjávar og vinna gegn neikvæðum áhrifum hlýnunar á líffræðilega fjölbreytni í hafinu?
Skriflegt svar óskast.