Ferill 763. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1458 — 763. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn
frá Katrínu Júlíusdóttur um utanlandsferðir.
Hversu margar utanlandsferðir hefur ráðherra farið það sem af er kjörtímabilinu? Óskað er eftir upplýsingum um tilefni, lengd og kostnað hverrar ferðar ásamt fjölda í fylgdarliði.
Frá því að Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, tók við embætti ráðherra árið 2013 og fram til dagsins í dag hefur ráðherra farið samtals í 15 utanlandsferðir á vegum embættisins. Í töflunni hér á eftir kemur fram hvert tilefni hverrar ferðar var, lengd og kostnaður hverrar ferðar og fjöldi í fylgdarliði með ráðherra í hverri ferð.
| Tilefni | Lengd, dagar | Heildarkostnaður | Fjöldi í fylgdarliði |
| Feneyjatvíæringurinn 2013 | 3 | 319.664 | 0 |
| Norðurlandaráðsþing í Ósló | 4 | 1.569.459 | 5 |
| Aðalráðstefna UNESCO í París og opnun Nordatlantisk hus í Óðinsvéum | 6 | 1.387.367 | 2 |
| Umspilsleikur, Ísland – Króatía í Zagreb | 3 | 280.287 | 1 |
| Ólympíuleikar 2014, Sochi, Rússlandi | 8 | 722.061 | 0 |
| Edinburgh International Culture Summit, Edinborg | 3 | 793.416 | 2 |
| Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands á BBC Proms í Royal Albert Hall, London | 2 | 444.730 | 1 |
| Norðurlandaráðsþing, Svíþjóð, vegna formennsku Íslands | 4 | 637.958 | 3 |
| Kynnisferð ásamt fulltrúa frá SA, SI, BSRB, KÍ og ASÍ vegna verknáms, Kaupmannahöfn | 3 | 1.678.931 | 7 |
| Opnun Eurosonic Noorder hátíðarinnar, Hollandi – kynningarboð um íslenska tónlist | 3 | 330.144 | 1 |
| Opnun sýningar um Björk í MoMa í N4, New York – kynning á Biophiliu-verkefninu | 3 | 921.426 | 4 |
| uLead 2015 – The Summit of Educational Leadership, Kanada | 6 | 313.686 | 2 |
| Opinber heimsókn til Kína ásamt fulltrúum frá Rannís, HÍ, LHÍ og HR | 9 | 1.657.504 | 4 |
| MR-U fundur í Kaupmannahöfn | 2 | 570.351 | 1 |
| Ein og sama ferðin farin á MR-K fund í Færeyjum (2) + Bologna fund í Jerevan í Armeníu vegna formennsku Íslands í Bologna-samstarfinu (5) + kvikmyndahátíð í Cannes – boð fyrir íslenska kvikmyndagerðarmenn (Hrútar) (2). | 9 | 2.779.189 | Sjá fjölda í svigum |