Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1481  —  416. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu ­sveitarfélaga,
nr. 40/1991, með síðari breytingum (skilyrði fjárhagsaðstoðar).

Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.


    Lög um félagsþjónustu ­sveitarfélaga voru lengi í undirbúningi og þegar þau loks urðu að veruleika árið 1991 mörkuðu þau tímamót sem rammalöggjöf um félagsþjónustu með það sem meginmarkmið að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar. Í lögunum er lögð áhersla á að við framkvæmd félagsþjónustunnar skuli þess gætt að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Félagsþjónusta nær til ólíkra þátta samkvæmt lögunum og fyrst eru þar talin félagsleg ráðgjöf og fjárhagsaðstoð.
    Með frumvarpinu er gerð tillaga að tvenns konar viðbótum við lögin. Annars vegar er lagt til að ráðherra gefi út leiðbeinandi reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar auk viðmiðunarfjárhæða fyrir fjárhagsaðstoð. 1. minni hluti telur þar ekki nógu langt gengið heldur þurfi að skilgreina lágmarksframfærslu sem ­sveitarfélögum sé skylt að greiða. Hins vegar er lagt til að kveðið verði á um heimild ­sveitarfélaga til að setja fjárhagsaðstoð skilyrði um virka atvinnuleit og skerða hana séu þau skilyrði ekki uppfyllt. 1. minni hluti telur þá breytingartillögu ekki nægilega vel ígrundaða og leggst því gegn henni.

Óvíst hvort breyting og beiting standast lög og stjórnarskrá.
    Sveitarfélögin setja sér hvert og eitt reglur um fjárhagsaðstoð. Víða hafa þau sameinast um þjónustuna og gert samninga þar að lútandi og í mörgum tilvikum einnig sameinast um reglur um fjárhagsaðstoð. Við samningu frumvarpsins tók ráðuneytið ekki saman yfirlit um það hvernig framkvæmd fjárhagsaðstoðar er háttað í mismunandi ­sveitarfélögum, né hverjar fjárhæðir aðstoðarinnar eru. Þá segir í svari ráðuneytisins við spurningum 1. minni hluta að samkvæmt lauslegri athugun megi draga þá ályktun að skerðingar á fjárhagsaðstoð séu frekar sjaldgæfar. Til þeirra sé fyrst og fremst gripið í tilvikum þar sem unnið hefur verið lengi með viðkomandi einstaklingi. Hjá flestum ­sveitarfélögum séu upplýsingar um skerðingu á fjárhagsaðstoð hins vegar ekki skráðar sérstaklega. 1. minni hluti telur mjög alvarlegt að ekki séu til aðgengilegar upplýsingar um svo íþyngjandi ákvarðanir ­sveitarfélaga. Þá liggur ekki fyrir hvort þessi framkvæmd ­sveitarfélaganna standist lög og í svari ráðuneytisins segir „umrætt frumvarp er lagt fram vegna þess að ekki er talið fullljóst að ­sveitarfélögunum sé heimilt að skerða fjárhagsaðstoð vegna framangreindra ástæðna, þ.e. að hafa hafnað vinnu eða vegna neyslu fíkniefna eða af öðru tilefni.“ Þá óskaði 1. minni hluti eftir lögfræðiáliti um að frumvarpið stæðist ákvæði stjórnarskrárinnar og alþjóðlegar skuldbindingar. Slíkt álit var ekki lagt fram og á fundi nefndarinnar kom fram að erfitt hefði reynst að finna fólk til verksins og að það tæki langan tíma að fá slíkt álit. Það bendir til þess að svarið sé langt í frá einfalt og því kann frumvarp þetta að stangast á við 76. gr. stjórnarskrárinnar.
    Í 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, segir að öllum, sem þess þurfa, skuli tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika. Hæstiréttur Íslands hefur túlkað ákvæðið svo að skylt sé að tryggja að lögum rétt sérhvers einstaklings til að minnsta kosti einhverrar lágmarksframfærslu eftir fyrir fram gefnu skipulagi sem ákveðið sé á málefnalegan hátt, sbr. dóm Hæstaréttar frá 19. desember 2000 í máli nr. 125/2000.
    Fyrsti minni hluti telur að einstaklingur, sem ekki treystir sér til að uppfylla skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð sem ­sveitarfélag hefur sett honum, geti engu að síður verið í brýnni þörf fyrir fjárhagsaðstoð. Margir þeirra sem þurfa að leita eftir fjárhagsaðstoð ­sveitarfélaga hafa verið lengi utan vinnumarkaðar og búa við bága heilsu og slæmar félagslegar aðstæður. Þeim einstaklingum getur reynst erfitt að uppfylla skilyrði um virka atvinnuleit, jafnvel þótt þeir hafi verið metnir færir til vinnu. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar ­sveitarfélaga er almennt lág og í sumum tilvikum svo lág að hún dugar engan veginn til framfærslu. Sé sú lága fjárhæð þar á ofan skert um helming, og önnur fjárhagsaðstoð vegna sérstakra aðstæðna felld niður, er að mati 1. minni hluta þar með gengið gegn rétti einstaklinga til lágmarksframfærslu. Ekki liggja fyrir upplýsingar um afdrif þeirra sem sæta slíkri skerðingu. Ákvæðið gæti því aukið enn á félagslegan vanda og leitt til útskúfunar.
    Þegar málið var tekið út úr nefnd lét 1. minni hluti bóka eftirfarandi: Við störf nefndarinnar hefur glögglega komið í ljós að mörgum áleitnum spurningum er varða áhrif skilyrðinga fjárhagsaðstoðar á þá sem fyrir þeim verða er ósvarað. Enn er óljóst hver reynslan er af skilyrðingum, hver gagnsemi slíkra skilyrðinga er og hvaða áhrif þær hafa á þá sem eru beittir slíkum skilyrðingum. Við teljum að skoða verði málið mun betur og leggjumst því gegn því að málið verði tekið út úr nefndinni.

Mikilvægi virkrar samfélagsþátttöku.
    Fyrsti minni hluti er sammála meiri hlutanum um að mikilvægt sé að stuðla að virkni viðtakenda fjárhagsaðstoðar. Öndvert við það sem segir í áliti meiri hlutans hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að hótun um skerðingu fjárhagsaðstoðar stuðli að því marki. Minni hluti óskaði eftir upplýsingum um áhrif skilyrðinga af þessu tagi. Af hálfu ráðuneytisins kom fram að ­rannsóknir bentu til þess að framboð virkniúrræða og félagsráðgjöf gagnist í þessu efni, en ekki lægi fyrir að orsakasamband væri milli skilyrðingar fjárhagsaðstoðar og aukinnar virkni. Þvert á móti benda ­rannsóknir til hins gagnstæða. Hvatning og aðstoð eru líklegri til að efla einstaklinga og getu þeirra til að sjá fyrir sér sjálfir. Þar sem ekkert liggur fyrir um að skerðingar af því tagi sem 2. gr. frumvarpsins gerir ráð fyrir séu til þess fallnar að ná því markmiði sem að er stefnt telur 1. minni hluti vafasamt að þær geti talist málefnalegar, sbr. fyrrgreindan dóm Hæstaréttar Íslands.
    Tölfræði á vef Hagstofu Íslands sýnir að fjöldi viðtakenda fjárhagsaðstoðar ­sveitarfélaga ræðst fyrst og fremst af efnahagsástandi hverju sinni. Viðbúið er að viðtakendum hennar fjölgi í kjölfar efnahagslægða, einkum eftir að bótatímabili atvinnuleysisbóta lýkur, en fækki á ný þegar hagkerfið tekur við sér. 1. minni hluti telur enga ástæðu til að ætla að annað muni eiga við nú, þótt efnahagslægðin eftir fjármálahrunið 2008 hafi verið óvenju djúp. Til eru önnur og vægari úrræði til að ýta undir samfélagsþátttöku viðtakenda fjárhagsaðstoðar, svo sem framboð virkniúrræða og félagsráðgjöf, líkt og fyrr greinir. Að mati 1. minni hluta stendur því engin nauðsyn til þess að kveða á um heimild ­sveitarfélaga til að skerða fjárhagsaðstoð niður fyrir mörk sem standa undir grunnframfærslu. Fólki á fjárhagsaðstoð fjölgar þegar atvinnuleysi er mikið og fækkar á ný þegar atvinnuástandið batnar. Fjölgun á þiggjendum fjárhagsaðstoðar er því ekki siðferðislegur vandi heldur birtingarmynd efnahagsástands.
    Fyrsti minni hluti gagnrýnir að ekki sé fjallað um tengingar við tekjur maka í frumvarpinu. Í svari ráðuneytisins kemur þó fram að ráðuneytið sé meðvitað um mögulegt fordæmisgildi Hæstaréttardóms í máli nr. 125/2000 (Öryrkjadóms I) varðandi það tillit sem tekið er til tekna maka þegar horft er á réttinn til fjárhagsaðstoðar ­sveitarfélaga.
    Fyrsti minni hluti bendir á að tilgangur frumvarpsins sé að auðvelda ­sveitarfélögum lækkun útgjalda í stað þess að ríkisvaldið finni leiðir til að mæta tímabundnum auknum útgjöldum vegna fjárhagsaðstoðar. Fyrsta skrefið í þá átt væri að lengja aftur atvinnuleysistryggingatímabilið í þrjú ár.
    Í ljósi framangreindra athugasemda við frumvarpið leggst 1. minni hluti gegn samþykkt þess. Nú stendur yfir endurskoðun laga um félagsþjónustu ­sveitarfélaga á vegum velferðarráðuneytisins. 1. minni hluti telur nær að við endurskoðun laganna verði mótaðar heildstæðar tillögur, byggðar á gagnreyndum rannsóknum um það hvernig efla megi samfélagsþátttöku og virkni viðtakenda fjárhagsaðstoðar með jákvæðum og uppbyggilegum hætti, m.a. með auknu framboði á vinnu, menntun, virkniúrræðum og félagsráðgjöf.

Alþingi, 22. maí 2015.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
form., frsm.
Guðbjartur Hannesson. Steinunn Þóra Árnadóttir.