Ferill 808. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1484  —  808. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um staðsetningu Landspítala.

Frá Jóni Þór Ólafssyni.


     1.      Er ráðherra tilbúinn til að láta óháðan fagaðila yfirfara útreikninga Samtaka um betri spítala á betri stað og forsendur þeirra og leggja niðurstöður þeirrar athugunar fyrir Alþingi í haust samhliða framlagningu frumvarps til fjárlaga?
     2.      Ef útreikningar benda til þess að lækka megi stofnkostnað um marga milljarða króna og einnig árlegan kostnað notenda og skattgreiðenda er ráðherra tilbúinn til að láta óháða fagaðila undirbúa nýtt staðarval fyrir spítalann og leggja niðurstöðurnar fyrir Alþingi til ákvörðunar?


Skriflegt svar óskast.