Ferill 581. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1495  —  581. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, með síðari breytingum (undantekningar frá tryggingavernd).

(Eftir 2. umræðu, 29. júní.)


1. gr.

    1. tölul. 6. mgr. 9. gr. laganna orðast svo: innstæður í eigu fjármálafyrirtækja, fjármálafyrirtækja í slita- eða gjaldþrotameðferð og fyrirtækja sem hafa misst starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda á næsta gjalddaga iðgjaldagreiðslna í sjóðinn.