Ferill 4. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1498 — 4. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir,
nr. 46 13. maí 2005 (EES-reglur, innleiðing).
(Eftir 2. umræðu, 29. júní.)
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
a. Orðin „Viðreisnarsjóður Evrópuráðsins“, „Þróunarbanki Mið-Ameríkuríkja“ og „Fjárfestingarlánastofnun Ameríkuríkja“ í 2. tölul. falla brott.
b. Í stað orðanna „og Fjárfestingarbanki Evrópu“ í 2. tölul. kemur: Fjárfestingarbanki Evrópu, Fjölþjóðlega fjárfestingarábyrgðarstofnunin, Alþjóðlegi ónæmisaðgerðasjóðurinn, Íslamski þróunarbankinn og Þróunarbanki Evrópuráðsins.
c. B–d-liður 3. tölul. orðast svo:
b. vátryggingafélög og líftryggingafélög, sbr. lög nr. 56/2010, um vátryggingastarfsemi,
c. verðbréfasjóðir, sbr. 1. tölul. 2. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði,
d. lánastofnun, fjármálafyrirtæki, fyrirtæki tengd fjármálasviði, vátryggingafélög, líftryggingafélög, sjóðir um sameiginlega fjárfestingu og rekstrarfélög verðbréfasjóða sem hafa staðfestu og starfsleyfi í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu.
2. gr.
a. 1. tölul. orðast svo: Fjármálagerningur: Hlutabréf í félögum og önnur verðbréf, sem jafngilda hlutabréfum í félögum, og skuldabréf og skuldagerningar í öðru formi, ef unnt er að versla með þau á fjármagnsmarkaði, og önnur verðbréf, sem venja er að höndla með og veita rétt til kaupa á slíkum hlutabréfum, skuldabréfum eða öðrum verðbréfum, með áskrift, kaupum eða skiptum, eða bréf sem eru gerð upp í reiðufé (að undanskildum greiðsluskjölum), þ.m.t. hlutdeildarskírteini í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu, peningamarkaðsgerningar og kröfur í tengslum við eða réttindi í eða viðkomandi einhverju af framangreindu, að undanskildum eigin hlutabréfum tryggingarveitanda, hlutabréfum hans í móðurfélagi eða dótturfélagi og óskráðum hlutabréfum hans í félögum sem eingöngu er ætlað að eiga fasteignir.
b. Á eftir 2. tölul. koma tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
3. Lítið fyrirtæki: Fyrirtæki sem er með færri en 50 starfsmenn og árlega veltu og/eða efnahagsreikning undir 1,5 milljörðum kr., sbr. leiðbeinandi reglur Eftirlitsstofnunar EFTA um aðstoð við örfyrirtæki, lítil og meðalstór fyrirtæki.
4. Neytandi: Einstaklingur sem á lánaviðskipti enda séu þau ekki gerð í atvinnuskyni af hans hálfu.
c. 6. og 7. tölul., sem verða 8. og 9. tölul., orðast svo:
8. Samningur um framsal eignarréttinda yfir fjárhagslegri tryggingu: Samningur, þ.m.t. endurhverf verðbréfamarkaðsviðskipti, um að eigandi fjárhagslegrar tryggingar framselji öll eignarréttindi sín, eða rétt til að eignast trygginguna, til framsalshafa til tryggingar á efndum á fjárhagslegum skuldbindingum.
9. Samningur um veðsetningu á fjárhagslegri tryggingu: Samningur um veðsetningu á fjárhagslegri tryggingu þar sem veðþoli veitir veðhafa veðréttindi til tryggingar á efndum á fjárhagslegum skuldbindingum án þess að framselja hinn beina eða fullgilda eignarrétt eða rétt til að eignast fjárhagslegu trygginguna.
d. Á eftir 8. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Skuldakrafa: Fjárhagsleg krafa sem hefur orðið til á grundvelli samnings þegar lánastofnun veitir fyrirgreiðslu í formi láns. Lán veitt neytanda, örfyrirtæki eða litlu fyrirtæki í skilningi laga þessara falla ekki undir skuldakröfur nema þegar tryggingarhafi eða tryggingarveitandi eru ein þeirra stofnana sem taldar eru upp í 2. tölul. 1. gr.
e. Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Örfyrirtæki: Fyrirtæki sem er með færri en 10 starfsmenn og árlega veltu og/eða efnahagsreikning undir 300 millj. kr.
3. gr.
4. gr.
Ákvæðið á ekki við um skuldakröfur.
5. gr.
1. verðgildi reiðufjár eða skuldakrafna sé jafnað á móti fjárskuldbindingum og gert upp,
2. fjármálagerningar eða skuldakröfur séu seldar,
3. tryggingarhafi taki fjármálagerninga eða skuldakröfur til eignar, enda sé samið um aðferð við verðmat á fjármálagerningunum eða skuldakröfunum í samningnum.
6. gr.
Með hliðsjón af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2010, frá 30. apríl 2010, sem birt var 10. júní 2010 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, fela lög þessi í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/44/EB frá 6. maí 2009, um breytingu á tilskipun 98/26/EB um endanlegt uppgjör í greiðslukerfum og uppgjörskerfum fyrir verðbréf og tilskipun 2002/47/EB um samninga um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir að því er varðar tengd kerfi og skuldaviðurkenningar.
7. gr.