Ferill 744. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1547 — 744. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Páli Val Björnssyni um þjónustu
við framhaldsskólanema sem þurfa mikla persónulega aðstoð á skólatíma.
1. Hvað hefur verið gert til þess að stuðla að samfellu í þjónustu við fatlaða framhaldsskólanemendur sem þurfa mikla persónulega aðstoð á skólatíma?
Framhaldsskólar veita fötluðum nemendum þjónustu á grundvelli reglugerðar nr. 230/ 2012, um nemendur með sérþarfir í framhaldsskólum. Þar er í 4. og 5. gr. í II. kafla vísað til skyldna framhaldsskóla og réttinda nemenda. Í 7. gr. reglugerðarinnar er gerð grein fyrir ábyrgð skólameistara en hann skal hlutast til um að þeir nemendur sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda fái þann stuðning.
2. Hefur hafist formlegt samtal um samvinnu ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að kostnaðarþátttöku ríkisins í NPA-samningum framhaldsskólanema á skólatíma?
Þjónusta við fatlaða framhaldsskólanema á skólatíma er á ábyrgð þess framhaldsskóla þar sem viðkomandi stundar nám. Þegar tilraunaverkefnið um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) var sett á laggirnar var rætt um hvort samþætta mætti með heildstæðum hætti allan stuðning sem notandi með NPA gæti fengið, þar með talið á skólatíma. Hins vegar er ráðuneytinu ekki kunnugt um að viðræður hafi átt sér stað um sérstaka samvinnu ríkis og sveitarfélaga um þjónustu á skólatíma.