Ferill 790. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1567  —  790. mál.




Svar


um­hverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Merði Árnasyni um friðlýsingu
og friðun samkvæmt náttúruverndaráætlun og rammaáætlun.


    Samkvæmt lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999, og samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, annast Um­hverfisstofnun undirbúning friðlýsinga. Hvað varðar stöðu einstakra friðlýsinga er bent á að á vefsíðu stofnunarinnar er að finna greinargóðar skýrslur um framgang friðlýsinga fyrir árin 2012 og 2013. Um­hverfisstofnun hefur nýlega skilað skýrslu um framgang friðlýsinga en aukin áhersla hefur verið lögð á gerð verndar- og stjórnunaráætlana fyrir svæði sem þegar hafa verið friðlýst og skapa virka náttúruvernd, en í verndar- og stjórnunaráætlunum er m.a. fjallað um landnýtingu, landvörslu, vöktun, fræðslu og miðlun upplýsinga auk aðgengi ferðamanna. Náttúruminjar eru undir miklu álagi, m.a. vegna aukins fjölda ferðamanna sem heimsækir landið. Við þessu álagi þarf að bregðast með uppbyggingu og stjórnun á friðlýstum svæðum. Þær aðgerðir eru skráðar, skipulagðar og þeim forgangsraðað með gerð verndar- og stjórnunaráætlana. Annar þáttur sem hefur einnig orðið til þess að auka eftirspurn eftir verndar- og stjórnunaráætlunum er svokallaður rauður listi sem Um­hverfisstofnun gefur út á tveggja ára fresti. Á rauða listann eru skráð svæði sem eru í verulegri hættu á að tapa verndargildi sínu eða hafa tapað því að hluta, en tækifæri þeirra svæða felast m.a. í gerð stjórnunar- og verndaráætlunar. Í upphafi ársins 2014 höfðu aðeins verið gefnar út fjórar verndar- og stjórnunaráætlanir fyrir friðlýst svæði, en ákveðið hefur verið að ráðast í átak í gerð þeirra fyrir friðlýst svæði í umsjón Um­hverfisstofnunar auk þess sem gerð annarra verndar- og stjórnunaráætlana hefur verið forgangsraðað.

     1.      Hvaða svæði og vistgerðir í náttúruverndaráætlun 2009–2013 hafa verið friðlýst? Hvaða svæði og vistgerðir í áætluninni á eftir að friðlýsa?
    Í þingsályktun um náttúruverndaráætlun 2009–2013 sem samþykkt var á Alþingi 2. febrúar 2010 er áætlun um friðlýsingu eftirfarandi fimm plöntusvæða: 1) Snæfjallaströnd – Kaldalón, 2) Eyjólfsstaðaskóg, 3) Egilsstaðaskóg og Egilsstaðakletta, 4) Gerpissvæðið og 5) Steinadal í Suður­sveit. Á áætluninni eru tvö dýrasvæði, annars vegar undir­hlíðar í Nesjum vegna tröllasmiðs og hins vegar Tjarnir á Innri-Hálsum vegna tjarnaklukku. Þá er áætlun fyrir friðun þriggja svæða til að tryggja verndun rústamýravistar og breiskjuhraunavistar, en þau eru: 1) Orra­vatnsrústir, 2) stækkun friðlands í Þjórsárverum og 3) svæði í Skaftártungum og á Síðuafrétti, eins svæðis vegna sérstakra jarðminja, þ.e. Langisjór og nágrenni. Unnið hefur verið að undirbúningi stækkunar friðlandsins í Þjórsárverum. Hluti þess svæðis sem um ræðir hefur verið til umfjöllunar hjá starfshópum og verkefnastjórn rammaáætlunar.
    Á náttúruverndaráætlun 2009–2013 eru svæði á fyrri náttúruverndaráætlun, þ.e. frá 2004– 2008 sem unnið er að, en það eru: 1) Látraströnd-Náttfaravík, 2) Njarðvík-Loðmundar­fjörður 3) Álftanes-Akrar-Löngufjörur, 4) Austara-Eylendið, 5) Látrabjarg-Rauðasandur, 6) Vestmannaeyjar, 7) Öxar­fjörður, 8) Geysir í Haukadal, 9) Reykjanes-Eldvörp-Hafnaberg og 10) stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs þannig að hann nái yfir allan Skeiðarársand til sjávar og landsvæði austan Jökulsárgljúfurs ásamt Meiðavallaskógi vestan Ásbyrgis. Friðlýsing Vestmannaeyja er langt komin og áfram er unnið að undirbúningi friðlýsingar Látrabjargs. Þá hafa þrjú svæði verið friðlýst, Guðlaugstungur, Vatnajökulsþjóðgarður og Vatnshornsskógur.
    Eftirtalin svæði á náttúruverndaráætlun 2009–2013 sem hafa verið friðlýst eru Tjarnir á Hálsum sem búsvæði tjarnaklukku, stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs á vestursvæði, þ.e. Langisjór og nágrenni, á austursvæði eru það Kverkfjöll og Krepputunga og stækkun á norðursvæði, þ.e. Meiðavallaskógur.

     2.      Hvaða teg­undir plantna og dýra í náttúruverndaráætlun 2009–2013 hafa verið friðaðar? Hvaða teg­undir á eftir að friða?
    Á náttúruverndaráætlun 2009–2013 eru teg­undir háplantna, mosa, fléttna og hryggleysingja sem eru tröllasmiður, tjarnaklukka og brekkubobbi. Um­hverfisstofnun hefur bent á í minnisblaði að um verulega galla sé að ræða á fyrirkomulagi þessara teg­unda friðlýsinga eins og núverandi reglugerð gerir ráð fyrir. Ekki sé ljóst hvernig standa eigi að eftirliti og hver viðurlögin eigi að vera. Mikilvægast er að koma í veg fyrir að teg­undir tapist en stofnunin hefur miklar efasemdir um að sú aðferð sem ákveðin var 1978 sé markviss í því augnamiði. Samkvæmt náttúruverndaráætlun 2009–2013 jókst fjöldi teg­unda og því afar mikilvægt að aðferðin sem notuð er sé markviss.

     3.      Hvaða náttúrusvæði í verndarflokki samkvæmt þingsályktun um vernd og orkunýtingu landsvæða frá 2013 hafa verið friðlýst? Hvaða svæði í ályktuninni á eftir að friðlýsa?
    Í þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem samþykkt var á Alþingi 14. janúar 2013 eru eftirtalin svæði í verndarflokki, en svæðin eru nefnd í samræmi við „virkjanaheiti“: Vegna tillögu að vatnsaflsvirkjunum, Arnardalsvirkjun, Helmingsvirkjun, Djúpárvirkjun, Hólmsárvirkjun við Einhyrning, með miðlun, Markar­fljótsvirkjun A, Markar­fljótsvirkjun B, Tungnaárlón, Bjallavirkjun, Norðlingaölduveita, 566–567,5 metrar yfir sjávarmáli, Gýgjarfossvirkjun og Bláfellsvirkjun.
    Á háhitasvæðum voru eftirtalin svæði sett í verndarflokk: Brennisteinsfjöll, Bitra, Grændalur, Geysir, Hvera­botn, Neðri-Hveradalir, Kisu­botnar, Þverfell og Gjástykki.
    Undir­búningur að friðlýsingum þessara svæða er hafin og er mislangt á veg komin,
en vinnan er umfangsmeiri við þetta verkefni en talið var í fyrstu.

     4.      Hafa önnur svæði verið friðuð eða teg­undir friðlýstar á núverandi kjörtímabili?

    Á árinu 2014 voru undirritaðar eftirfarandi þrjár nýjar friðlýsingar, auk þeirra svæða sem upp eru talin hér að framan.
    –        Fólkvangur í Garðahrauni, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum í Garðabæ, sbr. auglýsingu nr. 510/2014.
    –        Náttúruvættið Búrfell, Búrfellsgjá og eystri hluti Selgjár í Garðabæ, sbr. auglýsingu nr. 511/2014.
    –        Fólkvangurinn Bringur í Mosfellsdal, sbr. auglýsingu nr. 528/2014.