Ferill 629. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1570  —  629. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um verndarsvæði í byggð.

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið að nýju eftir 2. umræðu. Nefndin fjallaði sérstaklega um 3. tölul. 12. gr. frumvarpsins sem kveður á um brottfall hverfisskipulags úr skipulagslögum, nr. 123/2010, en þau áform voru nokkuð gagnrýnd af hálfu umsagnaraðila. Mat meiri hlutans er að ekki sé nauðsynlegt að fella brott ákvæði um hverfisskipulag til að frumvarpið nái markmiðum sínum. Meiri hlutinn leggur því til að ákvæði um hverfisskipulag haldi gildi, en til einföldunar að tilvísun um varðveislugildi byggðar verði felld brott.
    Það er mat meiri hlutans að mikilvægt sé að sá ráðherra sem fer með þjóðmenningarmál, og þar með hlutverk sem lýtur að verndarsvæðum í byggð, og sá ráðherra sem fer með skipulagsmál hafi með sér samráð um framkvæmd málefna sem lúta að verndarsvæðum í byggð og skipulagi. Sú vinna tæki m.a. til undirbúnings að setningu reglugerða um skipulag og verndarsvæði í byggð, þannig að vinna ­sveitarfélaga varðandi verndarsvæði í byggð og skipulag samræmist sem best. Slík samvinna er að auki til þess fallin að undirbyggja frekar að framkvæmd laganna nái markmiðum þeirra.
    Meiri hlutinn vekur athygli á því að hugtakanotkun og orðskýringar er varða hverfisskipulag eru ekki ítarlegar í skipulagslögum, nr. 123/2010. Meiri hlutinn telur því brýnt að verði þetta frumvarp að lögum fari fram endurskoðun á 37. gr. skipulagslaga, með það í huga að skýrar sé kveðið á um hverfisskipulag og í hverju það felist.
    Af hálfu meiri hlutans er áréttað að ákvæði skipulagslaga um húsakönnun er óbreytt og ekki er lögð til nein breyting á því fyrirkomulagi, sbr. álit nefndarinnar við 2. umræðu (þingskjal 1440).
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    3. tölul. 12. gr. orðist svo: Orðin „og varðveislugildi“ í 2. málsl. 5. mgr. 37. gr. laganna falla brott.

Alþingi, 1. júlí 2015.

Unnur Brá Konráðsdóttir,
form.
Líneik Anna Sævarsdóttir, frsm. Ásmundur Daðason.
Elsa Lára Arnardóttir. Vilhjálmur Árnason.