Ferill 814. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1571  —  814. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, með síðari breytingum
(tilfærsla á viðmiðun aflareynslu, ráðstöfun makríls,
framlenging bráðabirgðaákvæða o.fl.).


Frá meiri hluta atvinnuveganefndar (JónG, HarB, ÁsF, ÞorS, ÞórE).


1. gr.

    4. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:
    Við frádrátt skv. 1. málsl. 3. mgr. skal taka mið af sérstakri tilgreiningu eigenda veiðiskipa á þeim teg­undum sem hlutfall skv. 1. málsl. 3. mgr. skal dregið frá. Slíkt er þó aðeins heimilt að því leyti sem samanlögð þorskígildi aflaheimilda sérstaklega tilgreindra teg­unda eru jöfn samanlögðum þorskígildum frádreginna aflaheimilda skv. 1. málsl. 3. mgr. Ráðherra getur bundið þessa heimild við tilteknar teg­undir.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
     a.      2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
     b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Fiskistofu er heimilt, fyrir úthlutun aflahlutdeilda samkvæmt lögum þessum, 5. eða 6. gr. laga nr. 151/1996 eða öðrum lögum, að heimila tilfærslu á viðmiðun aflareynslu og annarra réttinda er tengjast veiðum milli fiskiskipa, að hluta til eða öllu leyti, þegar um er að ræða breytingu á skipastól. Það er skilyrði þessa að fyrir liggi samþykki eigenda beggja skipa fyrir tilfærslunni ef ekki er um að ræða skip í eigu sömu útgerðar.

3. gr.

    Í stað orðanna „lokafrest til 1. september 2015“ í ákvæði til bráðabirgða V í lögunum, sbr. 9. gr. laga nr. 48/2014, kemur: lokafrest til 1. september 2016.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða VIII í lögunum:
     a.      Í stað orðanna „2014/2015“ í 1. mgr. kemur: 2015/2016.
     b.      Á eftir orðunum ,,800 lestir til smábáta“ í 1. mgr. kemur: 2.000 lestir af makríl til smábáta.
     c.      Á eftir orðunum ,,20 lestum af síld“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: eða makríl.
     d.      Í stað ,,16 kr.“ í 3. mgr. kemur: 8 kr.
     e.      Í stað orðsins „síld“ í 3. mgr. kemur: síld eða makríl.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.


Greinargerð.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að lögfest verði ákvæði sem heimili að því aflamagni sem dregið er frá heildarafla í hverri teg­und fyrir úthlutun aflamarks, skv. 3. og 5. mgr. 8. gr. laganna, verði skilað í tilteknum teg­undum bolfisks, samkvæmt sérstakri tilgreiningu eigenda veiðiskipa. Um skiptaverðmæti skal byggt á þorskígildum. Sams konar ákvæði og tillagan hefur að geyma var í eldri lögum en féll niður við setningu laga nr. 70/2011, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.
    Lögð er til breyting á 9. gr. laganna í þá veru að veita Fiskistofu heimild til að færa viðmiðun aflareynslu milli fiskiskipa að hluta eða öllu leyti þegar skipastóll er endurnýjaður. Með orðalaginu „breyting á skipastól“ er m.a. átt við það þegar skip eru seld innan lands og einnig þegar útgerð fækkar skipum og sameinar þannig veiðireynslu og veiðiheimildir tveggja eða fleiri skipa.
    Lagðar eru til breytingar á tveimur ákvæðum til bráðabirgða í lögunum.
    Annars vegar er lagt til að framlengd verði um eitt ár undanþága frá hámarksaflahlutdeildarreglu fyrir báta með leyfi til veiða með krókaaflahlutdeild í ákvæði til bráðabirgða V.     Hins vegar eru lagðar til breytingar á ákvæði til bráðabirgða VIII. Lagt er til að heimild ráðherra til að ráðstafa síld, þ.e. sumargotssíld og norsk-íslenskri síld, gegn greiðslu endurgjalds verði framlengd til næsta fiskveiðiárs. Jafnframt er lagt til að ráðherra fái heimild til að ráðstafa 2.000 lestum af makríl til smábáta. Þá er lagt til að verð þeirra aflaheimilda sem falla undir 1. mgr. ákvæðisins lækki úr 16 kr. í 8 kr.