Ferill 792. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1626 — 792. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Össuri Skarphéðinssyni
um yfirfæranlegt tap við samruna Arion banka og AFLs sparisjóðs.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hve mikið yfirfæranlegt tap fylgdi með AFLi sparisjóði við yfirtöku Arion banka á sparisjóðnum og hve mikið getur bankinn lækkað skattbyrði sína í framtíðinni með þeirri aðgerð?
Ríkissjóður átti ekki eignarhlut í AFLi sparisjóði og er einungis lítill hluthafi í Arion banka. Bankasýsla ríkisins fer með þann eignarhlut fyrir hönd ríkissjóðs í samræmi við lög um stofnunina. Ríkissjóður hafði ekki aðkomu að þessum samruna og hefur engar upplýsingar um þær forsendur sem liggja þar að baki. Þegar hið sameinaða fyrirtæki skilar skattframtali mun embætti ríkisskattstjóra fara yfir þær upplýsingar sem þar koma fram en ráðuneytið hefur ekki aðgang að framtölum einstakra fyrirtækja.