Ferill 776. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1643 — 776. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Fanný Gunnarsdóttur um aðkomu foreldra eða forráðamanna að ráðningu barna og unglinga í vinnu.
1. Telur ráðherra rétt þegar litið er til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum að foreldrar eða forráðamenn veiti samþykki sitt þegar barn eða ungmenni sækir um launaða vinnu?
Lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, og reglugerðir á sviði vinnuverndar ná til alls vinnandi fólks í landi. Þar kemur m.a. fram að atvinnurekendur bera ábyrgð á að meta hættur á vinnustað, að viðeigandi forvarnir séu gerðar í samræmi við áhættumatið og að viðeigandi þjálfun og kennsla starfsmanna fari fram. Enn fremur kemur fram að atvinnurekendur skuli taka sérstakt tillit til ungmenna og byrjenda í starfi á grundvelli þess að þá skortir þjálfun, reynslu og skilning á starfinu. Viðbótarkröfur gilda um starfsfólk undir 18 ára aldri þar sem ætla má að það vanti reynslu og gæti einnig skort bæði líkamlegan og andlegan þroska til að gegna því starfi sem um ræðir. Þá eru takmörk sett við vinnutíma þessa hóps.
Samkvæmt 62. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, er óheimilt að ráða ungmenni til vinnu sem er ofvaxin líkamlegu eða andlegu atgervi þeirra, vinnu þar sem hætta er á varanlegu heilsutjóni, vinnu þar sem hætta er á skaðlegri geislun, vinnu sem felur í sér slysahættu, vinnu sem felur í sér hættu fyrir heilsu þeirra vegna kulda, hita, hávaða eða titrings eða vinnu þar sem hætta er á ofbeldi eða annarri sérstakri áhættu. Þá fjallar X. kafli laganna sérstaklega um vinnu barna og ungmenna sem og reglugerð nr. 426/1999, um vinnu barna og unglinga, en í henni er nánar kveðið á um hvaða störfum ungmenni mega gegna.
Í lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, merkir ungmenni einstakling undir 18 ára aldri. Barn merkir einstakling sem er undir 15 ára aldri eða sem er í skyldunámi. Unglingur merkir einstakling sem er minnst 15 ára að aldri en hefur ekki náð 18 ára aldri og er ekki lengur í skyldunámi.
Í 1. mgr. 60. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, kemur fram sú meginregla að börn megi ekki ráða til vinnu. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er þó að finna undantekningar á meginreglunni. Undantekningarnar ná m.a. til menningar- eða listviðburða og íþrótta- eða auglýsingastarfsemi. Þannig skal sá sem ræður börn til starfa sem ekki hafa náð 13 ára aldri afla leyfis frá Vinnueftirliti ríkisins áður en til ráðningar kemur. Jafnframt kemur fram í b-lið sömu greinar að heimilt er að ráða börn 14 ára og eldri til vinnu sem er hluti af fræðilegu eða verklegu námsfyrirkomulagi, sbr. a-lið 2. mgr. 60. gr. laganna. Þá kemur fram í c-lið að heimilt er að ráða börn, sem náð hafa 14 ára aldri, til starfa af léttara tagi og börn, sem náð hafa 13 ára aldri, má ráða til starfa af léttara tagi í takmarkaðan stundafjölda á viku, svo sem léttra garðyrkju- og þjónustustarfa og annarra hliðstæðra starfa. Þá kemur fram í 1. mgr. 26. gr. reglugerðar 426/1999, um vinnu barna og unglinga, að heimilt sé að ráða ungmenni, 13 ára eða eldri, til léttra starfa á sumarleyfistíma skóla þegar vinnan er hluti af fræðilegu og verklegu námi en skal slík vinna takmarkast við störf sem talin eru upp í 14 töluliðum í viðauka fjögur við umrædda reglugerð, svo sem létt garðyrkjustörf, létt fiskvinnslustörf, málningarvinnu og fúavörn með umhverfisvænum efnum, þó ekki sprautumálun, og létt skrifstofustörf.
Ljóst er að í lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, er ekki kveðið á um að foreldrar eða forráðamenn skuli veita samþykki sitt þegar barn eða ungmenni sækir um launaða vinnu. Hins vegar skal atvinnurekandi við ráðningu barna, sem eru undir 15 ára aldri eða þeirra sem eru í skyldunámi, kynna foreldrum eða lögráðamönnum ráðningarkjör, þar með talið lengd vinnutíma sem og hugsanlega áhættu sem tengist starfinu og allar ráðstafanir sem eru gerðar til að auka öryggi og heilbrigði hlutaðeigandi barna við störf, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar. Jafnframt er bent á 1. mgr. 76. gr. lögræðislaga, nr. 71/1997, með síðari breytingum, þar sem fram kemur að löggerningar ólögráða manns, sem hann hafði ekki heimild til að gera, binda hann ekki.
2. Telur ráðherra eðlilegt að barn geti ráðið sig til starfa og samið um kaup og kjör við vinnuveitanda án aðkomu foreldra eða forráðamanna, sérstaklega þegar hugsanleg áhætta fylgir starfi?
Ljóst er að mikilvægt er að kenna ungu fólki hvernig verjast megi slysum, álagsmeinum og áreitni og stuðla þannig að vellíðan þessa hóps í vinnu strax í upphafi sem og síðar á starfsævinni. Í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, er fjallað um þær takmarkanir og skyldur sem hvíla á atvinnurekendum þegar börn eða ungmenni eru ráðin til vinnu. Atvinnurekandi skal gera mat á áhættu sem starf getur skapað börnum og ungmennum og gera nauðsynlegar ráðstafanir byggðar á niðurstöðu matsins til að tryggja öryggi og heilbrigði þeirra. Þetta mat skal fara fram áður en ungmenni hefja störf og í hvert sinn sem verulegar breytingar eru gerðar á starfsskilyrðum. Sýni matið að öryggi, líkamlegri eða andlegri heilsu eða þroska ungmennis geti verið stofnað í hættu skal atvinnurekandi sjá til þess að reglulega fari fram viðeigandi skoðun og eftirlit með heilsu ungmennanna þeim að kostnaðarlausu.
Samkvæmt 6. gr. reglugerðar um vinnu barna og unglinga skal atvinnurekandi tryggja að ungmenni fái fullnægjandi kennslu og leiðbeiningar þannig að tryggt sé að vinnan sé ekki hættuleg öryggi eða heilsu þeirra. Atvinnurekandi skal kynna ungmennum þær ráðstafanir sem gerðar eru til að tryggja öryggi þeirra og heilbrigði. Vinnan skal fara fram undir viðeigandi eftirliti af einstaklingi sem orðinn er 18 ára og hefur nægilega innsýn í eðli vinnunnar. Jafnframt kemur fram að atvinnurekanda ber að kynna foreldrum barna eða forráðamönnum hugsanlega áhættu og allar ráðstafanir sem eru gerðar til að tryggja öryggi þeirra og heilbrigði.
Í þriðja kafla reglugerðar um vinnu barna og unglinga er fjallað um störf sem eru óheimil ungmennum undir 18 ára aldri og er þar m.a. nefnd vinna við hættuleg tæki og verkefni, hættuleg efni eða þar sem önnur sérstök áhætta er til staðar. Í fjórða kafla sömu reglugerðar er fjallað um vinnutíma unglinga og honum settar ákveðnar skorður. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar mega börn sem eru á aldrinum 13–14 ára eða sem eru í skyldunámi einungis vinna þá vinnu sem fellur undir skilgreininguna „starf af léttara tagi“ og eru talin upp í viðauka fjögur við reglugerðina. Í 62. gr. laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, er kveðið á um að óheimilt sé að ráða ungmenni til vinnu sem unnin er við tilteknar aðstæður og eru þær taldar upp í ákvæðinu.
Í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, merkir barn einstakling sem er undir 15 ára aldri eða sem er í skyldunámi. Samkvæmt framangreindu er óheimilt að ráða börn í starf sem áhætta fylgir. Enn fremur eru atvinnurekendur skuldbundnir til að fylgja kjarasamningum þegar kemur að ákvörðun launa, auk þess sem sérstök ákvæði í reglugerð um vinnu barna og unglinga gilda um vinnutíma þessa hóps. Líkt og fram hefur komið þurfa atvinnurekendur, sem ráða börn yngri en 13 ára, að afla sérstaks leyfis frá Vinnueftirliti ríkisins áður en til ráðningar kemur.
3. Telur ráðherra ástæðu til að foreldrar eða forráðamenn barna og ungmenna fái fræðslu og nauðsynlegar upplýsingar um viðkomandi starf áður en gengið er frá samningi, eins og vinnuskólar á vegum sveitarfélaga eiga að gera?
Ljóst er að íslensk ungmenni byrja almennt snemma að vinna, mörg hver með skyldunámi, og í ýmsum starfsgreinum, t.d. í matvöruverslunum, á skyndibitastöðum og við blaðaútburð. Líkt og fram hefur komið ber atvinnurekanda að kynna foreldrum barna eða forráðamönnum ráðningarkjör hlutaðeigandi barna, þar á meðal lengd vinnutíma sem og hugsanlega áhættu og allar ráðstafanir sem gerðar eru til að tryggja öryggi þeirra og heilbrigði. Atvinnurekandi skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja öryggi og heilbrigði ungmenna, m.a. með gerð mats á áhættu sem starf getur skapað þeim, þannig að þau fái að þroskast og dafna í starfi við eins öruggar aðstæður og mögulegt er. Þetta mat skal fara fram áður en ungmenni hefja störf og í hvert sinn sem verulegar breytingar eru gerðar á starfsskilyrðum. Samkvæmt 6. gr. reglugerðar um vinnu barna og unglinga skal atvinnurekandi kynna foreldrum barna eða forráðamönnum hugsanlega áhættu og allar ráðstafanir sem eru gerðar til að tryggja öryggi þeirra og heilbrigði.
Þá má geta þess að brjóti atvinnurekendur gegn ákvæðum laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, eða reglugerðar um vinnu barna og unglinga skal viðkomandi atvinnurekandi sæta sektum, nema þyngri refsing liggi við að öðrum lögum.
4. Telur ráðherra, með hliðsjón af framangreindu, rétt að endurskoða reglugerð nr. 426/ 1999 um vinnu barna og unglinga, þannig að ákvæðum sem lúta að framangreindum þáttum verði bætt inn í hana?
Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur ákveðið að skipa nefnd, haustið 2015, um mótun tillögu að vinnuverndarstefnu og skipulagi vinnuverndarmála hér á landi. Þegar vinnuverndarstefna liggur fyrir er stefnt að því að hafin verði vinna við heildarendurskoðun á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, þar sem höfð verði hliðsjón af því sem þar kemur fram. Ætla má að í þeirri vinnu verði m.a. skoðað hvort nauðsynlegt sé að treysta löggjöfina enn frekar hvað varðar vinnu barna og ungmenna.