Ferill 443. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1646 — 443. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Árna Páli Árnasyni
um ráðstafanir vegna íbúðalána í búseturéttaríbúðum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Til hvaða ráðstafana hyggst ríkisstjórnin grípa til að tryggja skuldurum íbúðalána í búseturéttaríbúðum sambærilega úrlausn og skuldarar í eigin húsnæði hafa nú þegar fengið með niðurfærslu verðtryggðra lána?
Aðgerðir stjórnvalda frá hruni í tengslum við skuldavanda heimilanna hafa ekki náð til húsnæðissamvinnufélaga frekar en til annarra lögaðila. Þó hafa félögin getað fengið greiðslujöfnun á lánum sínum hjá Íbúðalánasjóði, enda sé sú skilmálabreyting til þess fallin að lækka húsnæðiskostnað íbúa.
Eins og í fyrri úrræðum tekur leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána samkvæmt lögum nr. 35/2014 til einstaklinga en ekki lögaðila og afmarkast leiðréttingin við hvert heimili. Engin ákvörðun hefur verið tekin á vettvangi ríkisstjórnarinnar um að tryggja húsnæðissamvinnufélögum sambærilega úrlausn og skuldarar í eigin húsnæði fengu við leiðréttingu verðtryggðra fasteignalána.
Málefni húsnæðissamvinnufélaga hafa hins vegar verið til skoðunar í stjórnkerfinu. Á vorþingi var lagt fram frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á lögum um húsnæðissamvinnufélög (697. mál). Í frumvarpinu er fjallað um réttarstöðu búseturéttarhafa og rekstur húsnæðissamvinnufélaga. Frumvarpið er í samræmi við skýrslu verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála þar sem lagt er til að löggjöf um húsnæðissamvinnufélög verði efld svo að félögin styðji betur við nýtt framtíðarskipulag húsnæðismála, t.d. þannig að þetta rekstrarform geti hentað þátttöku opinberra aðila og jafnvel stéttarfélaga í leigufélögum vegna uppbyggingar leigumarkaðar og eflingu félagslegs húsnæðis þar sem þörf krefur.
Mörg húsnæðissamvinnufélög eru í fjárhagsvandræðum sem má rekja til efnahagshrunsins og erfiðleika við að selja búseturétti. Mörg þeirra eru fjármögnuð með lánveitingum frá Íbúðalánasjóði sem hefur sett sér reglur um fjárhagslega endurskipulagningu lögaðila. Nokkur húsnæðissamvinnufélög hafa óskað eftir fjárhagslegri endurskipulagningu hjá sjóðnum.
Samkvæmt framangreindu eru mál er varða húsnæðissamvinnufélög til skoðunar, bæði lagaleg umgjörð um réttarstöðu búseturéttarhafa og rekstrarformið, sem og fjárhagsstaða þeirra.