Ferill 820. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1651  —  820. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um takmörkun á greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna lyfja.


     1.      Hefur fjöldatakmörkunum verið beitt við ákvörðun um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna lyfja? Ef svo er, óskast svar sundurliðað eftir því hvort um S-merkt lyf er að ræða eða önnur.
    Eins og í öðrum löndum gerir löggjafinn hérlendis ráð fyrir að tekin sé afstaða til greiðsluþátttöku ríkisins vegna lyfja, lækningatækja og einstakra heilbrigðisþjónustuþátta. Lyfjagreiðslunefnd er það lögbæra stjórnvald í landinu sem tekur ákvörðun um greiðsluþátttöku ríkisins í lyfjum og eru ákvarðanir nefndarinnar ekki kæranlegar til ráðherra.
    Lyfjagreiðslunefnd var sett á fót með lögum nr. 83/2004, um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, og var henni fengið það hlutverk að fjalla um verð allra lyfseðilsskyldra lyfja, greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði og greiðsluþátttökuverð. Í nefndinni sitja fulltrúar frá Sjúkratryggingum Íslands, fjármálaráðuneytinu, embætti landlæknis og Lyfjastofnun. Í 43. gr. lyfjalaga segir að ráðherra skipi fimm manna nefnd, lyfjagreiðslunefnd, til fjögurra ára í senn. Skuli hún skipuð fagmönnum á sviði læknisfræði, lyfjafræði og fjármála. Fjórir nefndarmenn skulu skipaðir eftir tilnefningu sjúkratryggingastofnunarinnar, þess ráðuneytis er fer með tekjuöflun ríkisins, landlæknis og Lyfjastofnunar. Formaður skuli skipaður af ráðherra án tilnefningar. Þá skuli varamenn skipaðir á sama hátt. Sérstaklega er tekið fram að lyfjagreiðslunefnd skuli við ákvarðanir sínar hafa í huga það markmið laganna að halda lyfjakostnaði í lágmarki. Lögin marka því þá stefnu í samræmi við ákvæði stjórnarskrár að við ákvarðanir nefndarinnar verði hún að haga þeim þannig að þær séu innan marka fjárlaga.
    Skipun nefndarinnar á að tryggja að hún búi yfir nauðsynlegri sérfræðiþekkingu til að taka ákvarðanir á grundvelli faglegra og fjárhagslegra sjónarmiða. Leiðir sérstaklega af orðum 43. gr. að nefndinni er ætlað faglegt, sérfræðilegt hlutverk við ákvarðanir sínar um greiðsluþátttöku í lyfjakostnaði. Þannig gerir löggjafinn ráð fyrir að ákvarðanir byggist bæði á faglegum og fjárhagslegum sjónarmiðum þannig að gætt sé að heimildum fjárlaga.
    Ákvörðun lyfjagreiðslunefndar um greiðsluþátttöku í lyfjum byggist annars vegar á mati á gagnsemi lyfs og hins vegar kostnaði við greiðsluþátttöku, sbr. 43. gr. lyfjalaga. Þetta á bæði við um almenn lyf og S-lyf. Við mat á því hvort veita skuli greiðsluþátttöku tekur lyfjagreiðslunefnd m.a. mið af áætluðum fjölda sjúklinga og áætluðu sölumagni lyfs samkvæmt söluáætlun, sbr. 9. gr. reglugerðar um lyfjagreiðslunefnd, nr. 353/2013. Til að meta kostnað við innleiðingu nýs lyfs er tekið mið af verði lyfsins, áætluðum fjöldi sjúklinga sem þurfa að nota lyfið og áætluðu sölumagni.
    Að mati lyfjagreiðslunefndar er ekki um eiginlega fjöldatakmörkun að ræða heldur byggist ákvörðun nefndarinnar m.a. á áætlun um kostnað við innleiðingu lyfsins sem er metinn út frá verði og áætlun um fjölda sjúklinga.

     2.      Ef fjöldatakmörkunum af þessu tagi hefur verið beitt:
                  a.      á hvaða lagagrundvelli hefur það verið gert,
                  b.      hversu mörgum sjúklingum hefur verið synjað um lyf á þessu ári,
                  c.      hvaða lyf var þeim sjúklingum synjað um, og
                  d.      hyggst þá ráðherra beita sér fyrir afnámi takmarkananna?

    Þótt ekki sé um eiginlega fjöldatakmörkun að ræða er rétt að taka fram að áætlanir um fjölda sjúklinga sem unnar eru af sérfræðingum Landspítala ganga ekki alltaf eftir eins og á t.d. við um augnlyfið Eylea á þessu ári. Þar gerði áætlun ráð fyrir meðferð fyrir 30 sjúklinga á árinu. Sú áætlun reyndist ekki raunhæf og hefur fjöldinn því verið aukinn í 50 sjúklinga nýlega. Hvað önnur S-merkt lyf snertir hefur greiðsluþátttaka verið heimiluð fyrir áætlaðan fjölda sjúklinga. Þetta á t.d. við um lyfin Benlysta (gigtarlyf), Perjeta (krabbameinslyf), Kadcyla (krabbameinslyf) o.fl.
    Engum hefur verið neitað um meðferð en sjúklingar eru hins vegar á biðlista fyrir Eylea- meðferð, og vandi þeirra sem voru í brýnustu þörf fyrir meðferð var leystur þegar fjöldinn var aukinn, sbr. framangreint.
    Möguleikar heilbrigðisyfirvalda til að vinna að markmiði laganna eru ávallt að stórum hluta háðir fjárveitingum til málaflokksins samkvæmt ákvörðunum löggjafans í fjárlögum hverju sinni en heilbrigðisyfirvöld hafa eins og önnur stjórnvöld á hverjum tíma skyldu til að gæta þess að kostn­aður við veitingu þjónustu sé innan þess fjárlagaramma sem löggjafinn markar. Ráðherra mun hér eftir sem hingað til beita sér fyrir auknum fjárveitingum til málaflokksins svo að ekki þurfi að koma til takmarkana á greiðsluþátttöku sem bitnar á sjúklingum.