Ferill 715. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1652  —  715. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ragn­heiði Ríkharðsdóttur
um öryggisbúnað í bifreiðum fyrir fatlað fólk .


     1.      Hver hefur eftirlit með að viðeigandi öryggisbúnaður sé í bifreiðum sem fatlað fólk á og ekur eða nýtir sem farþegar?
     Bifreiðar sem fatlað fólk ekur: Í reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 822/2004, er ökutæki fyrir hreyfihamlaða skilgreint sem: „Ökutæki sem er búið þannig að það mæti sérþörfum hreyfihamlaðra til aksturs.“ Þegar ökutækjum er breytt á þennan hátt fyrir hreyfihamlaða og einhver sérútbúnaður settur í þau er það gert af viðurkenndum aðila og þá nær ávallt með aðkomu Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands og/eða Tryggingastofnunar.
    Að breytingu ökutækis lokinni er skylt skv. 12. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja, nr. 8/2009, að færa það til svokallaðrar breytingarskoðunar á faggiltri skoðunarstofu. Utan þeirra breytinga, sem eru gerðar á ökutækinu og þeirra sérreglna sem um þær gilda, eru í gildi allar sömu kröfur um öryggisbúnað umræddra ökutækja og annarra ökutækja. Allt slíkt ber að taka út við almenna skoðun ökutækja á skoðunarstofum en eigandi eða umráðamaður ber ábyrgð á að ökutæki sé í lögmæltu ástandi skv. 2. mgr. 59. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987.
    Lögreglu er skv. 68. gr. umferðarlaga heimilt að stöðva ökutæki og skoða ástand þess. Reynist ökutæki ekki vera í lögmæltu ástandi má krefjast þess að það skuli fært til sérstakrar skoðunar.
    Samkvæmt reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011, skal sýslumaður einungis gefa út ökuskírteini eftir að hafa kannað hvort umsækjandi uppfyllir heilbrigðisskilyrði reglugerðarinnar en slíkt er sannað með læknisvottorði eða heilbrigðisyfirlýsingu. Sýslumanni er heimilt að skilyrða ökuskírteini, t.d. takmarka ökuréttindi við ökutæki af sérstakri gerð eða með sérstökum búnaði, ef nauðsyn krefur, fyrir líkamlega fatlaðan umsækjanda eða ökumann, eða takmarka útgáfuna með öðrum hætti til að auka öryggi í akstri. Vísast hér til 4. og 21. gr. reglugerðarinnar. Takmörkun skal færa á ökuskírteini sem tákntölu skv. I. viðauka reglugerðarinnar. Samkvæmt 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga má enginn stjórna bifreið eða bifhjóli nema hann hafi til þess gilt ökuskírteini. Ökumaður skal hafa skírteinið meðferðis við akstur og sýna það er löggæslumaður krefst þess.
    Segja má að samspil allra framangreindra þátta eigi að stuðla að því að viðeigandi öryggisbúnaður sé í bifreiðum sem fatlað fólk á og ekur og að búnaðurinn sé í góðu ásigkomulagi. Það má segja að það sé ökumaður sem ber ábyrgð á því að ökutæki sé búið í samræmi við þær skorður sem honum kunna að vera settar vegna fötlunar. Skoðunarstofur hafa eftirlit með því að sá búnaður sem og annar sé í lagi og lögregla með því að samræmi sé á milli ökuréttinda og heimilda ökumanns sem og ástandi ökutækis þegar svo ber undir. Sýslumaður gefur út ökuréttindin og sér til að þau séu byggð á sannreyndum staðreyndum um heilsufar þess sem þau hefur.
     Bifreiðar sem flytja fatlað fólk: Faggiltar skoðunarstofur hafa eftirlit með bifreiðum sem flytja fatlað fólk. Séu gerðar breytingar á bifreið til að sinna slíkum flutningum er skylt skv. 12. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja, nr. 8/2009, að færa það til breytingarskoðunar að þeim loknum. Þar skal skoða ökutækið sérstaklega til þess að ganga úr skugga um að breytingin sé í samræmi við reglur um gerð og búnað ökutækja. Því til viðbótar skal taka út öryggisbúnað bifreiða við almenna reglubundna skoðun. Eigandi eða umráðamaður ber ábyrgð á að ökutæki sé í lögmæltu ástandi skv. 2. mgr. 59. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987.
    Lögreglu er skv. 68. gr. umferðarlaga heimilt að stöðva ökutæki og skoða ástand þess. Reynist ökutæki ekki vera í lögmæltu ástandi má krefjast þess að það skuli fært til sérstakrar skoðunar.
    Þess skal getið að „lögmælt ástand“ í framangreindum skilningi merkir í stuttu máli það að ökutæki fullnægi þeim kröfum sem gerðar eru í reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 830/2004.
    Því má segja að það sé eigandi sem ber ábyrgð á því að ökutæki sé búið í samræmi við lög og reglur. Skoðunarstofur hafa eftirlit með því að sá búnaður sé í lagi sem og lögregla þegar svo ber undir.

     2.      Hvers konar öryggisbúnaðar er krafist í bifreiðum í almennum akstri á vegum sveitarfélaga með og fyrir fatlað fólk?
    Í reglugerð um gerð og búnað ökutækja er að finna eftirfarandi skilgreiningu á bifreið til að flytja hreyfihamlaða:
    „01.208 Bifreið til að flytja hreyfihamlaða.
    (1) Bifreið sem er búin til flutnings á hreyfihömluðu fólki í a.m.k. tveimur hjólastólum.“
    Það að bifreiðar falli undir þessa skilgreiningu felur það í sér að nokkrar sérreglur gilda um þær vegna eðlis þeirra, t.d. að því er varðar öryggisbúnað. Tekið skal fram að þær bifreiðar sem falla ekki undir framangreinda skilgreiningu samkvæmt ákvæði 01.208, en eru engu að síður notaðar til að flytja fatlað fólk, lúta almennum öryggiskröfum sem gerðar eru til bifreiða samkvæmt reglugerð um gerð og búnað ökutækja.
    Kröfur sem gerðar eru til bifreiða sem nota á til að flytja fatlað fólk eru nokkuð ítarlegar með upptalningu á skilyrðum sem gilda í hverju tilviki, t.d. máli og fjölda, auk annars sem við á. Kröfurnar eru um:
     *      lofthæð,
     *      festingar hjólastóla,
     *      öryggisbelti,
     *      bakstuðning og höfuðpúða,
     *      rampa,
     *      lyftupall,
     *      fjölda dyra og stærð þeirra, neyðarútganga; staðsetningu þeirra, stærð, fjölda o.fl.
    Öryggi fatlaðs fólks í umferðinni var nýlega til talsverðrar umræðu. Nú stendur yfir vinna, af hálfu Sam­göngustofu og í samráði við hagsmunaaðila, við að skoða í heild öryggi fatlaðs fólks í umferðinni. Eru bundnar vonir við að stofnunin geti stuðlað að auknu öryggi þessa hóps, m.a. með einhverjum af eftirtöldum leiðum:
     *      Tillögum að breytingum á reglum, ef þörf er talin á.
     *      Aukinni fræðslu, sem beinst getur að fötluðum einstaklingum, þeim sem flytja fatlaða, eftirlitsaðilum (sér í lagi skoðunarstofum) o.fl.
     *      Bættu og einfaldara aðgengi að mikilvægum upplýsingum um atriði er lúta að öryggi fatlaðra í umferðinni.