Ferill 821. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1653  —  821. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni um loftför.


     1.      Hversu mörg loftför voru skráð á Íslandi og/eða með gilt lofthæfisstaðfestingarvottorð árin 2008–2014, flokkað eftir eftirfarandi teg­undum:
                  a.      flutningaloftför (atvinnuloftför sem falla undir EASA-reglur, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 202/2007, um flokkun loftfara og lofthæfivottorða),
                  b.      almannaloftför með EASA-vottun (einkaloftför sem falla undir EASA-reglur, sbr. 3. gr. áðurnefndrar reglugerðar),
                  c.      söguleg loftför (almannaloftför),
                  d.      heimasmíðuð loftför (einkaloftför)?

    Í loftfaraskrá Sam­göngustofu, sbr. III. kafla laga nr. 60/1998, um loftferðir, er haldið utan um skráningu íslenskra loftfara eins og hún er á hverjum tíma. Skráin uppfærist við hverja breytingu sem gerð er á skráningu enda nauðsynlegt að skráin sýni rétta stöðu á hverjum tíma. Í loftfaraskránni koma fram upplýsingar um eiganda loftfars og teg­und þess, þar á meðal flokkað eftir því hvort um er að ræða flutningaloftfar, almannaloftfar með EASA- vottun eða loftfar sem ekki fellur undir EASA-reglur (Annex II loftfar). Þá koma þar fram upplýsingar um gildi lofthæfistaðfestingarvottorðs loftfarsins eða upplýsingar um heimild til starfrækslu loftfars þegar um er að ræða loftför sem ekki falla undir EASA-reglur.
    Hlutverk Sam­göngustofu gerir nauðsynlegt að kalla fram ýmsar upplýsingar úr loftfaraskránni, þar með talið aftur í tímann, m.a. um fjölda loftfara. Grunnurinn er þannig uppbyggður að hægt er að kalla fram upplýsingar eftir árum um:
       –          fjöldi skráðra loftfara í flugrekstri, þ.e. þau loftför sem falla undir a-lið. Þessi hópur nefnist „flugrekendur“ í töflunni hér að neðan;
          –      fjöldi skráðra loftfara sem ekki eru í flugrekstri, þ.e. þau loftför sem falla undir b-, c- og d-lið, en auk þess eru flokkuð undir þessum lið loftför sem falla undir reglugerð nr. 1185/2012 um starfrækslu og lofthæfi loftfars í opinberum rekstri. Þessi hópur nefnist „aðrir“ í töflunni hér að aftan.
    Gagnagrunnur Sam­göngustofu er ekki byggður þannig upp að hægt sé að sundurgreina aftur í tímann fjölda sögulegra loftfara og heimasmíðaðra loftfara frá fjölda almannaloftfara með EASA-vottun. Í samræmi við framangreint eru þær upplýsingar sem hægt er að ná fram úr gagnagrunni Sam­göngustofu um fjölda loftfara á árunum 2008–2014 eftirfarandi:

Skráð loftför 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014
Flugrekendur 104 100 81 84 83 85 79
Aðrir 302 299 300 282 278 278 280

    Um gildi lofthæfistaðfestingarvottorða og upplýsingar um heimildir til starfrækslu loftfara, gildir það sama og áður segir að gagnagrunnur Sam­göngustofu er hannaður þannig að það liggi fyrir á hverjum tíma hvort loftfar hefur gilt lofthæfistaðfestingarvottorð/heimild til starfrækslu. Hins vegar hefur það ekki verið álitið nauðsynlegt að hægt væri að kalla fram þessar upplýsingar aftur í tímann og liggja því þær upplýsingar ekki fyrir í grunninum.
    Í ágúst 2015 er staðan sú að í loftfaraskrá eru 365 loftför. Fjöldi loftfara, sem falla undir EASA-reglur, þ.e. flutningaloftför og einkaloftför sem falla undir EASA-reglur, eru 261 og þar af eru loftför með gilt lofthæfistaðfestingarvottorð 166. Fjöldi loftfara, sem ekki falla undir EASA-reglur, eru 104 og af þeim eru 58 með heimild til starfrækslu loftfars. Sam­göngustofa bendir þó á að upplýsingar um útgefin lofthæfistaðfestingarvottorð koma frá eigendum/umráðendum loftfara, en nokkuð hefur borið á því að þessar tilkynningar berist ekki. Þannig getur verið um einhverja skekkju að ræða í tölu um EASA-loftför sem ekki er á valdi stofnunarinnar að lagfæra.

     –      Hvað hafa á fyrrgreindu tímabili verið framkvæmdar margar ACAM-úttektir samkvæmt grein M.B.303 í viðauka I við reglugerð (EB) nr. 2042/2003 um áfram­haldandi lofthæfi loftfara og annarra framleiðsluvara, flokkað eftir teg­undum skv. 1. tölul., og hversu mörg loftför voru skyndikyrrsett með 1. stigs frávik og 2. stigs frávik?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum.

    ACAM-úttektir voru ekki framkvæmdar árið 2008 þar sem beiting reglugerðarinnar á Íslandi hófst ekki fyrr en 2009. Um ACAM-skoðanir (áfram­haldandi lofthæfi – Aircraft Continuing Airworthiness Monitoring) er fjallað í B-þætti, C-kafla, M.B.303 í reglugerð (EB) nr. 2042/2003 en reglugerðin er innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 206/2007 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði.
    Þau loftför, sem skoðuð eru í ACAM-úttektum hjá Sam­göngustofu, eru annars vegar flokkuð sem flutningaflug/atvinnuflug, þ.e. þau loftför sem falla undir a-lið 1. liðar fyrirspurnarinnar og hins vegar sem einkaloftför/almannaloftför, þ.e. þau loftför sem falla undir b-lið 1. liðar.
    Í samræmi við framangreint eru þær upplýsingar sem er að finna í gagnagrunni Sam­göngustofu varðandi fjölda ACAM-skoðana fyrir árin 2008–2014, flokkaðar eftir teg­undum loftfara, eftirfarandi:

Fjöldi/teg. úttekta 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014
Fjöldi flutninga-/atvinnuloftfara 0 20 41 33 39 22 24
Fjöldi einka-/almannaloftfara 0 0 5 5 6 5 9

    Ekki er beinlínis fjallað um „skyndikyrrsetningar“ í reglugerð (EB) nr. 2042/2003. Í reglugerðinni er mælt fyrir um í fyrrgreindu ákvæði M.B.303 að komi, við könnun á loftfari eða með öðrum hætti, fram vísbendingar um að ekki sé farið að þeim kröfum sem gerðar eru í reglugerðinni og frávikið flokkast sem fyrsta stigs frávik skuli lögbært yfirvald, þ.e. Sam­göngustofa, krefjast þess að gripið verði til viðeigandi aðgerða til leiðréttingar á frávikinu áður en til frekara flugs komi og skuli þar grípa til tafarlausra aðgerða til að afturkalla eða ógilda lofthæfistaðfestingarvottorð tímabundið.
    Kerfi Sam­göngustofu býður ekki upp á að kallaðar séu fram upplýsingar um slíkar aðgerðir.