Ferill 45. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 45  —  45. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um mótun klasastefnu.


Flm.: Willum Þór Þórsson, Þórunn Egilsdóttir, Karl Garðarsson,
Silja Dögg Gunnarsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Einarsson,
Höskuldur Þórhallsson, Vigdís Hauksdóttir, Elsa Lára Arnardóttir,
Frosti Sigurjónsson, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Páll Jóhann Pálsson,
Líneik Anna Sævarsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp sem fái það hlutverk að móta opinbera klasastefnu. Stefnan skuli fela í sér fyrirkomulag um hvernig hið opinbera efli stoðkerfi atvinnulífsins á landsvísu í samvinnu við atvinnulífið, rannsóknar- og menntastofnanir, sveitarfélögin og aðra hagsmunaaðila sem málið snertir. Stefnan skuli unnin í tengslum við stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014–2016. Markmið nýrrar klasastefnu verði eftirfarandi:
     a.      að ráðstafa fjármunum til atvinnuuppbyggingar og byggðaþróunar með markvissum hætti,
     b.      að efla samvinnu vísinda og atvinnulífs,
     c.      að efla nýsköpun,
     d.      að efla samkeppnishæfni fyrirtækja, atvinnugreina og þjóðarinnar,
     e.      að efla hagsæld.
Ríkisstjórnin skili skýrslu til Alþingis með niðurstöðum starfshóps fyrir árslok 2016.

Greinargerð.

    Mál þetta var áður flutt á 144. löggjafarþingi (415. mál) og er nú flutt aftur óbreytt.
    Lagt er til að mótuð verði opinber klasastefna og að ríkisstjórnin skipi starfshóp færustu sérfræðinga á þessu sviði. Lagt er til að klasastefnan verði mótuð í tengslum við stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014–2016. Jafnframt er ráðgert að við vinnuna verði litið til reynslu Dana, Norðmanna og þeirra þjóða sem lengst eru komnar í mótun opinberrar klasastefnu. Gert er ráð fyrir að ríkisstjórnin skili skýrslu til Alþingis með niðurstöðum starfshóps fyrir árslok 2016.
    Klasi er „landfræðileg þyrping tengdra fyrirtækja, birgja, þjónustuaðila, fyrirtækja í tengdum atvinnugreinum og stofnana á sérhæfðum sviðum sem eiga í samkeppni og einnig í samvinnu“. 1 Ýmsar rannsóknir og skýrslur staðfesta að klasasamstarf er vænlegt tæki til að efla nýsköpun og samkeppnishæfni smærri og meðalstórra fyrirtækja. Klasasamstarf hefur því í auknum mæli verið nýtt til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar um allan heim og til að efla samkeppnishæfni fyrirtækja, atvinnugreina, landsvæða og þjóða. Mikil áhersla er lögð á nýsköpun í nútíma klasastjórnun enda skiptir nýsköpun sköpum í langtímauppbyggingu atvinnugreina.
    Hugmyndafræðin er þekkt hér á landi. Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem er leiðandi stofnun á sviði rannsóknar- og þróunarstarfs, hefur gefið út leiðbeiningarhandbók um klasastjórnun. 2 Ýmis góð klasatengd verkefni hafa litið dagsins ljós hérlendis, bæði að frumkvæði hins opinbera og atvinnulífsins, þar sem „sjálfsprottnir“ klasar á borð við sjávarklasann, jarðvarmaklasann og ferðaklasann hafa náð góðum árangri og sannað gildi sitt. Stefna ætti að aukinni áherslu á samvinnu milli rannsóknarstarfs og þeirra klasa sem þegar hafa náð fótfestu og nýta þann grunn.
    Þrátt fyrir ágætisviðleitni hins opinbera til að efla klasasamstarf, m.a. með styrkjum, hefur Ísland enn sem komið er ekki markað sér markvissa klasastefnu. Mótun opinberrar klasastefnu er í fullu samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks frá 22. maí 2013. Í stefnuyfirlýsingunni er lagt kapp á að ýta undir fjárfestingu og fjölgun starfa, ekki síst hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum, og sérstök áhersla lögð á vöxt útflutningsgreina og nýsköpun. Í stefnuyfirlýsingunni segir:
    „Nauðsynlegt er að auka framleiðni hér á landi og það er forsenda langtímahagvaxtar að skapa umhverfi sem hvetur til nýsköpunar í starfandi fyrirtækjum, opinberum rekstri og nýjum fyrirtækjum. Til að tryggja að fjárveitingar til rannsókna og þróunarstarfs nýtist sem best leggur ríkisstjórnin áherslu á að samhæfa rekstrargrunna og rekstrarumhverfi ríkisstofnana sem stunda rannsóknir og þróun. […] Örva þarf samstarf og samlegð fyrirtækja til þess að vinna að stærri þróunarmálum einstakra greina, meðal annars með því að móta klasastefnu, bæta aðgengi sprotafyrirtækja að hlutafé og einfalda stuðningsumhverfið.“
    Annars staðar á Norðurlöndum hefur þegar verið tekin upp slík stefna. Norðmenn hafa farið mjög athyglisverða leið í uppbyggingu opinberrar klasastefnu. Stefnan var unnin að frumkvæði þarlendrar ríkisstjórnar undir forustu tveggja ráðuneyta. Norðmenn skilgreina eftirfarandi þrenns konar klasaform í klasastefnu sinni:
     a.      Héraðsklasar: Einstök landsvæði hafa styrk umfram önnur. Með opinberum, faglegum og fjárhagslegum stuðningi og mótframlagi frá fyrirtækjum og atvinnulífi á svæðunum sammælast menn um að einbeita sér að uppbyggingu atvinnulífs í kringum atvinnugrein á svæðinu og skylda starfsemi.
     b.      Landsklasar: Með samvinnu ólíkra klasa í sömu atvinnugrein má styrkja innviði klasasamstarfs sem bætir starfsskilyrði heildarinnar á ólíkum sviðum. Þar má nefna nýsköpun, menntun, markaðsmál, stjórnendaupplýsingar og fleira.
     c.      Alþjóðlegir klasar: Noregur er í fararbroddi í heiminum í olíuvinnslu, siglingum og fleiri greinum. Markvisst er hlúð að þessum lykilatvinnugreinum til að auka samkeppnishæfni Noregs í krafti klasasamstarfs. 3
    Danir hafa sömuleiðis tekið upp opinbera klasastefnu. Danir, líkt og Norðmenn, skipta klösum í héraðsklasa, landsklasa og alþjóðlega klasa. Danska mennta- og vísindaráðuneytið gaf út nýsköpunarstefnu í desember 2012. Framtíðarsýn danskra stjórnvalda er að styrkja samvinnu og smíða brýr milli vísindarannsókna, menntunar og nýsköpunar í atvinnulífinu. Lausnir á sviði nýsköpunar eiga að vera lykill að vexti og hagsæld. Meginmarkmiðin eru:
     a.      að samfélagslegar áskoranir séu hvati til nýsköpunar,
     b.      að vísindin umbreytist í verðmæti,
     c.      að menntun auki hæfni til nýsköpunar. 4
    Í dönsku fjárlögunum fyrir árið 2015 náðist sátt milli allra þeirra ólíku stjórnmálaflokka sem á danska þinginu sitja um fjárframlög sem byggjast á þessari stefnu. Ítarleg klasastefna er ein af lykilstoðum nýsköpunarstefnunnar.
    Þingsályktun um mótun klasastefnu er ætlað að móta farveg vinnu við eflingu nýsköpunar og atvinnulífsins vítt og breitt um Ísland. Með opinberri klasastefnu er hægt að efla samvinnu vísinda og atvinnulífs í þágu verðmætasköpunar sem leiðir af sér aukna framleiðni og hagsæld.
Neðanmálsgrein: 1
1     Nýsköpunarmiðstöð Íslands: Klasar: Handbók um þróun og stjórnun klasa. Reykjavík 2013, bls. 4 (tilvísun til neðanmálsgreinar sleppt).
Neðanmálsgrein: 2
2     www.nmi.is/handbok_klasar/files/assets/downloads/publication.pdf
Neðanmálsgrein: 3
3     Nánari upplýsingar um stefnuna má nálgast á www.nce.no/ og www.arenaprogrammet.no/.
Neðanmálsgrein: 4
4     Á ufm.dk/publikationer/2012/filer-2012/danmark-loesningernes-land.pdf má nálgast nánari upplýsingar um stefnuna.