Ferill 46. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 46  —  46. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.


Flm.: Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Ásmundur Friðriksson,
Vilhjálmur Árnason, Willum Þór Þórsson.


    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að móta heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sveitarfélögin. Stefnan verði tímasett samhliða því að tryggður verði fjárhagslegur stuðningur við afreksfólk.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður flutt á 140. löggjafarþingi (396. mál), 141. löggjafarþingi (154. mál) og á 143. löggjafarþingi (195. mál) en hlaut ekki afgreiðslu og er því nú endurflutt.
    Afreksíþróttir hafa skipað veglegan sess meðal landsmanna og afreksíþróttafólk okkar verið góð landkynning á erlendri grund. Jafnframt vita allir mikilvægi þess að börn og ungmenni hafi góðar fyrirmyndir. Slíkt er ómetanlegt fyrir allt forvarnastarf og uppbyggingu íþrótta- og æskulýðsmála. Ýmislegt hefur verið gert af hálfu hins opinbera sem vert er að nefna, sérsamböndum hefur verið gert kleift að halda úti landsliðum og taka þátt í alþjóðastarfi sem fulltrúar Íslands, ferðasjóður íþróttafélaga hefur verið efldur og stutt hefur verið við afrekssjóð ÍSÍ, en betur má ef duga skal.
    Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur mótað afreksstefnu sína þar sem settar hafa verið fram tímabundnar markvissar áætlanir um frammistöðu á stórmótum. En til að tryggja slagkraft markmiðanna til langframa ber, ásamt því að horfa á keppnisárangur, að styrkja eigin getu og hæfileika hreyfingarinnar til að vinna að langtímamarkmiðum í afreksíþróttum. Mörg íþróttafélög í samvinnu við sveitarfélög hafa gert slíkt hið sama.
    A-landslið kvenna og karla í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik, sem og yngri landsliðin, hafa mörg hver staðið sig með mikilli prýði á stórmótum og sömuleiðis Gerpla á Norðurlandameistara í hópfimleikum kvenna, þessi árangur vekur athygli á alþjóðavísu. Þar að auki eigum við einstaklinga, m.a. í frjálsum íþróttum, badminton, júdó og sundi, sem hafa á undanförnum árum náð frábærum árangri sem tekið er eftir á alþjóðavísu. Einnig hafa einstaklingar í ýmsum öðrum þróttum náð einstökum árangri á alþjóðavísu en þær íþróttir eiga ekki inni í Ólympíusambandi Íslands.
    Það er því tímabært að stjórnvöld móti stefnu um afreksfólk í íþróttum í samvinnu við sveitarfélögin og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og styðji þannig íþróttahreyfinguna með markvissari hætti.
    Í þingsályktunartillögunni er því lagt til að ráðherra verði falið að móta heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum, stefnu um sem feli m.a.í sér faglegan og fjárhagslegan styrk. Mikilvægt er að stefnan verði unnin í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sveitarfélögin til þess að tryggja að sem flestir taki þátt í vinnunni. Þannig eru mestar líkur á að stefnan verði grundvöllur að öflugum stuðningi við afreksfólkið okkar sem eykur líkur á að sem mestur árangur náist. Nauðsynlegt er að stefnan verði tímasett, t.d. til næstu 5–10 ára, og fjárhagslegur stuðningur tryggður samhliða.
    Stefnan verði endurskoðuð a.m.k. árlega. Þá telja flutningsmenn eðlilegt að ráðherra haldi allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis upplýstri um framgang málsins.