Ferill 55. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 55  —  55. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um stofnun áburðarverksmiðju.


Flm.: Þorsteinn Sæmundsson, Páll Jóhann Pálsson, Haraldur Einarsson,
Silja Dögg Gunnarsdóttir, Þórunn Egilsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna svo fljótt sem verða má hagkvæmni og möguleika þess að reisa sem fyrst áburðarverksmiðju á Íslandi.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var áður flutt á 143. löggjafarþingi (354. mál) og 144. löggjafarþingi (96. mál). Tillagan er endurflutt nú lítið breytt.
    Undanfarin ár hefur heimsmarkaðsverð á áburði hækkað umtalsvert, einkum vegna aukinna áburðarkaupa Kínverja og Indverja. Heimsmarkaðsverð áburðar náði hámarki árið 2008. Síðan hefur verðið lækkað nokkuð en er nú heldur hærra en fyrir árið 2006. Ljóst er að áburðarverð mun að öllum líkindum haldast hátt í næstu framtíð vegna aukinnar framleiðslu matvæla sem nauðsyn er á til að brauðfæða síaukinn mannfjölda. Þannig kemur fram í nýlegri skýrslu OECD að auka þarf matvælaframleiðslu í heiminum um 50% næstu 20 ár. Framleiðsla áburðar í heiminum er á höndum fárra stórra aðila. Eftirspurn á heimsvísu eykst um 3% árlega. Með því að reisa áburðarverksmiðju á Íslandi væri tryggt að nægilegur áburður yrði til hér til að styðja við vaxandi matvælaframleiðslu sem er eitt af markmiðum núverandi ríkisstjórnar auk þess sem útflutningur áburðar mundi auka gjaldeyristekjur.

Nauðsyn atvinnuuppbyggingar.
    Brýna nauðsyn ber til að efla fjölþætta atvinnuuppbygginu á Íslandi til þess að tryggja fjölbreytni í atvinnulífi og fjölga vellaunuðum störfum. Öll skilyrði eru fyrir hendi hér á landi til uppbyggingar og rekstrar áburðarverksmiðju sem framleiði áburð til útflutnings. Tiltölulega einfalt er að vinna köfnunarefni hér á landi. Einnig er nóg vatn og raforkukostir til staðar til vetnisframleiðslu með rafgreiningu. Vinna má brennistein sem nægir fyrir framleiðslu verksmiðjunnar úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar sem nú sleppur út í andrúmsloftið til skaða fyrir fólk og náttúru. Vinnsla brennisteins er aukaafurð hugsanlegrar metanólframleiðslu á Hellisheiði. Með slíkri vinnslu má slá margar flugur í einu höggi, vinna verðmæti úr úrgangi, fullnýta auðlindir okkar og hlífa viðkvæmri náttúru.

Rekstur áburðarverksmiðju.
    Rekstur áburðarverksmiðju byggist einkum á tveimur forsendum, annars vegar nægu rafmagni og hins vegar miklu vatni. Einnig þarf að vera til staðar góð hafnaraðstaða sem getur þjónustað stór fragtskip. Fyrrgreindir þættir eru fyrir hendi víða um land. Þar má nefna Hafnarfjörð, Helguvík, Þorlákshöfn og Húsavík auk Norðurlands vestra. Hópur áhugamanna um byggingu áburðarverksmiðju hefur unnið frumáætlun um byggingu verksmiðju sem framleiða mundi 700 þúsund tonn af áburði og 700 þúsund tonn af kalsíumnítrati. Gert er ráð fyrir að 5–600 manns komi að byggingu verksmiðjunnar en að áburðarverksmiðjan skapi 150–200 hálaunuð framtíðarstörf auk afleiddra starfa. Fjárfesting í verksmiðjunni næmi rúmum 130 milljörðum kr. samkvæmt áætlunum hópsins, sem kynnti verkefnið fyrir þáverandi stjórnvöldum fyrir u.þ.b. þremur árum en fékk ekki hljómgrunn. Brýnt er að hefja nú þegar hagkvæmniathugun vegna byggingar áburðarverksmiðju sem lið í því að fjölga hálaunastörfum í gjaldeyrisskapandi starfsemi.