Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 103  —  103. mál.




Fyrirspurn



til umhverfis- og auðlindaráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda.

Frá Sigríði Á. Andersen.

    Hvernig skiptist losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi á eftirfarandi geira á árinu 2012, þegar tekið er tillit til nýjasta mats á losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi miðað við losunarstuðla í leiðbeiningum IPCC, sbr. svar ráðherra í 317. máli á 144. löggjafarþingi, þar sem fram kemur að ef miðað er við losunarstuðla í leiðbeiningum IPCC nemur losun frá framræstu landi í skóglendi 3,6 þúsundum tonna CO 2-ígilda, losun frá framræstu ræktuðu landi 2,16 milljónum tonna CO 2-ígilda og losun frá framræstu mólendi 9,47 milljónum tonna CO 2-ígilda:
     a.      rafmagn og hita,
     b.      umferð fólksbíla,
     c.      aðrar samgöngur en með fólksbílum,
     d.      sjávarútveg,
     e.      iðnað/efnanotkun,
     f.      landbúnað,
     g.      úrgang,
     h.      framræst mólendi,
     i.      framræst skóglendi,
     j.      framræst ræktað land,
     k.      aðra geira, ef um þá er að ræða?
    Spurt er um magnlosun (tonn CO 2-ígilda) og hlutfallslega losun (%) gróðurhúsalofttegunda.


Skriflegt svar óskast.

Greinargerð.

    Fyrirspurn um sama efni var lögð fram á 144. löggjafarþingi (þskj. 1115 í 649. máli). Tölur í svari ráðherra við þeirri fyrirspurn (þskj. 1230) um losun frá framræstu landi miðað við losunarstuðla í leiðbeiningum IPCC virðast ekki í samræmi við tölur í svari ráðherra við annarri fyrirspurn (þskj. 579 í 317. máli) og var því fyrirspurnin lögð fram að nýju (þskj. 1616 í 818. máli) en ekki náðist að svara henni og er því fyrirspurnin lögð fram enn á ný.