Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 124  —  124. mál.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um þjónustu við börn
með alvarlegar þroska- og geðraskanir.

Frá Heiðu Kristínu Helgadóttur.


1.      Hvernig miðar vinnu að heildstæðri lausn á þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir og fjölskyldur þeirra?
2.      Hvaða lausn sér ráðherra fyrir sér á þeirri stöðu sem upp kom fyrr á þessu ári þar sem vinnu sérfræðiteymis sem aðstoðaði sveitarfélög við útfærslu á þjónustu við þennan hóp var hætt vegna álits Persónuverndar um miðlun persónuupplýsinga um börn til teymisins?


Skriflegt svar óskast.