Ferill 143. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.
Þingskjal 143 — 143. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um styrkingu hjólreiða á Íslandi.
Flm.: Róbert Marshall, Freyja Haraldsdóttir, Páll Valur Björnsson,
Heiða Kristín Helgadóttir, Brynhildur S. Björnsdóttir, Elín Hirst,
Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller, Birgitta Jónsdóttir,
Svandís Svavarsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Oddný G. Harðardóttir.
Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra auk mennta- og menningarmálaráðherra að skipa starfshóp sem kanni leiðir til að efla og styrkja umhverfi hjólreiða og vinni hjólreiðaáætlun fyrir landið. Slík áætlun er hugsuð sem tæki til að marka skýra stefnu til framtíðar um uppbyggingu hjólreiðamannvirkja, eflingu hjólreiða í skólum og á vinnustöðum, hjólaferðamennsku, aðkomu sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka að uppbyggingu og eflingu hjólreiðamenningar. Innanríkisráðherra kynni niðurstöður starfshópsins fyrir Alþingi eigi síðar en 1. maí 2016.
Greinargerð.
Staða hjólreiða á Íslandi hefur ekki verið könnuð sérstaklega og segja má að skortur sé á mælingum og rannsóknum á hjólreiðum, sérstaklega á hjólreiðum til samgangna eins og fram kemur í ritgerðinni Mat á gæðum hjólaleiða: Greiðfærni, öryggi og umhverfi eftir Davíð Arnar Stefánsson (Háskóli Íslands 2013). Samkvæmt könnun Capacent Gallup frá 2011 fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hjóluðu um 12,4% af íbúum svæðisins allt árið sem var aukning. 1
Það fer ekki framhjá neinum að hér á Íslandi hefur verið lögð áhersla á þarfir einkabílsins við gerð flestra samgöngumannvirkja. Einkabíllinn hefur haft algeran forgang í borgarskipulaginu á kostnað annarra samgöngumáta og langt umfram það sem þekkist í nágrannalöndum okkar. Það er ljóst af aukinni notkun reiðhjóla til samgangna að ákveðin vitundarvakning á sér nú stað en einnig er ljóst að skipulaginu verður ekki breytt nema með vilja og aðkomu stjórnvalda og skipulagsyfirvalda. Í því tilliti þarf að marka skýra stefnu í þessum málum og gera viðeigandi breytingar á lögum þannig að kveðið verði á um uppbyggingu hjólreiða sem valkostar í samgöngum.
Það er ljóst að æ fleiri nýta sér reiðhjólið enda eru það gömul sannindi og ný að reiðhjólið er besta farartækið sem hugsast getur í þéttbýli. Kostirnir eru fjölmargir, þægilegur ferðahraði, hættulítill, fallegur og spennandi ferðamáti sem er heilsueflandi og vænn fyrir umhverfi og pyngju.
Hér er lagt til að unnin verði sérstök hjólreiðaáætlun þar sem afmörkuð verði skýr stefna stjórnvalda í þessum málum til framtíðar. Í slíkri áætlun er gert ráð fyrir að tekið verði á uppbyggingu hjólreiðamannvirkja. Sett verði stefna um eflingu hjólreiða sem samgöngumáta í skólum og á vinnustöðum. Lagðar verði línur um hvernig best megi styrkja hjólreiðaferðamennsku. Loks er lögð áhersla á mikilvægi aðkomu sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka og ríkisstofnana sem málið varða og tryggt að samráð við slíka aðila verði á öllum stigum vinnunnar.